Morgunblaðið - 16.08.2018, Side 56
56 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2018
Mér finnst mikill léttir að komast úr rigningunni sem verið hefursvo lengi heima á Íslandi. Núna er sólskin og 30 stiga hiti hér íLyon í Frakklandi, yndislegri borg sem hefur upp á margt að
bjóða. Hér er fjöldi áhugaverðra staða að skoða og matarmenningin
blómstrar og henni langar mig að kynnast,“ segir Bergþóra Jónsdóttir,
blaðamaður á Gestgjafanum, sem er 47 ára í dag.
Bergþóra og Inga Lilja Ásgeirsdóttir dóttir hennar verða ytra fram
yfir helgi og ætla þar að njóta alls þess besta sem borgin hefur að bjóða.
„Nokkur ár bjó ég í Þýskalandi og þar lærði ég að meta Ísland. Alltaf
þegar tækifæri býðst fer ég eitthvað út fyrir bæinn og finnst í raun
nauðsynlegt. Svo er ég líka komin með dellu fyrir fjallgöngum; þær
gefa mér mikið og ferðirnar þurfa ekki að vera langar svo þær séu
skemmtileg ævintýri. Mér finnst frábært að ganga til dæmis upp að
steini í Esjunni, á Úlfarsfell eða Helgafell við Hafnarfjörð, þótt ég stefni
reyndar á að komast í einhvern gönguhóp í vetur og fara víðar um.“
Bergþóra er fædd og uppalin á Patreksfirði og fer þangað mikið í frí-
um. Hún er með BA-próf í táknmálsfræðum og með kennsluréttindi og
starfaði lengi við kennslu, en sneri sér síðan að blaðamennsku og líkar
vel. Börnin eru þrjú og elstur er Dagur Árnason sem er 25 ára og flog-
inn úr heiðrinu. Næst kemur Inga Lilja sem fyrr er nefnd og er tæpra
18 ára og yngst er Birta Sól 14 ára og búa þær með móður sinni í Hafn-
arfirði.
Ljósmynd/Birtingur
Ferðalangur Er komin með dellu fyrir fjallgöngum, segir Bergþóra.
Nýtur lífsins með
dóttur sinni í Lyon
Bergþóra Jónsdóttir er 47 ára í dag
H
alldór Guðjón Björns-
son fæddist á Stokks-
eyri 16.8. 1928 en
flutti til Reykjavíkur
tveggja ára og ólst
þar upp. Hann lauk gagnfræðaskóla-
prófi frá Ingimarsskólanum.
Halldór stundaði verslunarstörf í
Reykjavík og starfaði síðan í 19 ár
hjá Olíufélaginu hf. Hann hóf störf
hjá Dagsbrún 1969 og starfaði þar
samfleytt meðan félagið var við lýði
til 1997 er hann varð starfsmaður hjá
Dagsbrún-Framsókn – stéttarfélagi,
við stofnun félagsins, og loks hjá Efl-
ingu.
Halldór sat í stjórn Dagsbrúnar
frá 1958, gegndi embætti ritara fé-
lagsins frá 1968, var varaformaður
Dagsbrúnar 1981-96, formaður
Dagsbrúnar frá 1996, formaður
Dagsbrúnar-Framsóknar – stétt-
arfélags frá árslokum 1997 og for-
maður Eflingar 1998-2000 er hann
gaf ekki lengur kost á sér. Halldór
var formaður Starfsgreina-
sambandsins frá stofnun þess haust-
ið 2000, var varaforseti ASÍ, átti sæti
í stjórn Lífeyrissjóðs Dagsbrúnar og
Framsóknar frá upphafi og síðan í
Framsýn með sameiningu sjóðanna,
átti sæti í stjórn Lífeyrissjóðsins
Halldór G. Björnsson, fyrrv. formaður Dagsbrúnar – 90 ára
Fjölskyldan Hér eru þau Halldór og Kristín með börnunum sínum á suðrænum slóðum fyrir aðeins örfáum árum.
Virtur og yfirvegaður
verkalýðsleiðtogi
Slakað á í sólinni Halldór og Kristín njóta sumarblíðunnar á Spáni.
Pétur Friðrik Hjaltason ökukennari er níræður í
dag. Eiginkona hans var Kristín Gunnlaugsdóttir,
f. 1928, d. 2012. Synir hans: Hjalti Heimir, f. 1956,
d. 2009, og Ómar Þröstur, f. 1960, d.1983, en
uppeldissonur Péturs Friðriks er Gunnlaugur
Hauksson, f. 1951.
Pétur fær kossa og knús frá barnabörnum í tilefni
dagsins.
Árnað heilla
90 ára
Fæðingardeildin í
Reykjavík Ágúst Ægir
Vattnes Ægisson
fæddist 3. maí 2018,
kl. 13.40. Hann vó
3.210 grömm og var
50,5 cm á lengd.
Foreldrar hans eru
Ægir Már Burknason
og Halldóra Vattnes
Kristjánsdóttir.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Meira til skiptanna