Morgunblaðið - 16.08.2018, Side 57

Morgunblaðið - 16.08.2018, Side 57
Framsýnar frá stofnun, var jafn- framt fyrsti formaður sjóðsins, átti sæti í framkvæmdastjórn Sam- bands almennra lífeyrissjóða um árabil, sat í stjórn Söfnunarsjóðs líf- eyrisréttinda, átti sæti í miðstjórn ASÍ í nokkur kjörtímabil og í fram- kvæmdastjórn Verkamanna- sambandsins, var í fulltrúaráði verkalýðsfélaganna í Reykjavík og varabæjarfulltrúi í Kópavogi. Hann sat í húsnæðisnefnd Kópavogs, í stjórn Nýsköpunarsjóðs frá 2001 og í stjórn Samvinnuferða-Landsýnar um skeið. Halldór var helsti arkitektinn að miklum breytingum á skipulagi og uppbyggingu verkalýðsfélaganna í Reykjavík í lok síðustu aldar; sam- einingu Dagsbrúnar og Fram- sóknar og síðan stofnun Eflingar. Hann vann auk þess mikið að or- lofsmálum verkalýðshreyfingar- innar og uppbyggingu orlofshúsa hér á landi sem og skipulögðum or- lofsferðum, m.a. til sólarlanda. „Atvikin höguðu því svo að megn- ið af mínum starfsferli fór í baráttu fyrir bættum hag þeirra sem minnst báru úr býtum. Þó ég segi sjálfur frá held ég að margt hafi áunnist á þessum árum. Fyrir það er ég stolt- ur og jafnframt þakklátur fyrir þennan starfsvettvang. Það er gott að geta litið um öxl, fullviss um það að maður lagði góðum málstað lið.“ Halldór er við góða heilsu eftir aldri, fylgist vel með fréttum og þjóðmálum og veit ekkert skemmti- legra en að fara í góðan bíltúr um bæinn og fylgjast með breytingum og uppbyggingu samfélagsins. Fjölskylda Eiginkona Halldórs var Kristín Grímsdóttir, f. 13.12. 1931, d. 3.5. 2015, læknaritari og skrifstofumaður hjá Tryggingastofnun ríkisins. Þau slitu samvistum en voru nánir perlu- vinir alla tíð. Foreldrar Kristínar voru Grímur Grímsson sem kenndur var við Nordalsíshús, f. 27.3. 1893, d. 2.1. 1959, og k.h., Guðrún Guðbjarts- dóttir, f. 30.12. 1897, d. 21.12. 1973, húsfreyja. Börn Halldórs og Kristínar eru Grímur, f. 25.8. 1954, rafvirkjameist- ari í Hafnarfirði, kvæntur Hildi Blumenstein hárgreiðslumeistara og eru börn þeirra Edda Blumenstein, Kristín María og Dagný sem er látin; Guðrún Ellen, f. 26.2. 1957, hjúkr- unarfræðingur í Garðabæ, gift Guð- mundi Jóhannessyni, ljósmyndara og eiganda ljósmyndastofunnar Nær- myndar, og eru synir þeirra Halldór og Jóhann; Ketill Arnar, f. 2.6. 1961, húsasmíðameistari í Kópavogi, kvæntur Jóhönnu Oddsdóttur flug- freyju og eru dætur þeirra Guðrún Eydís og Svandís María; Hrafnhild- ur, f. 29.3. 1964, fjölmiðlafræðingur og úrvarpskona hjá RÚV, gift Smára Ríkarðssyni viðskiptafræðingi og eru börn þeirra Selma Sandra og Sindri. Systkini Halldórs voru Ragna Klara, f. 31.5. 1924, d. 19.6. 2009, hús- freyja í Kópavogi; Árni, f. 24.10. 1925, d. 17.2. 2007, vélstjóri í Reykjavík. Foreldrar Halldórs voru Björn Ketilsson, f. 24.8. 1896, d. 24.4. 1982, smiður á Stokkseyri og síðar í Reykjavík, og k.h., Ólöf Guðríður Árnadóttir, f. 23.2. 1884, d. 17.3. 1972, húsfreyja. Úr frændgarði Halldórs Guðjóns Björnssonar Halldór Guðjón Björnsson Ólöf Gísladóttir húsfr. í Stóradal Jón Jónsson b. í Stóradal Guðríður Jónsdóttir húsfr. í Stóradal Ólöf Guðríður Árnadóttir húsfr. á Stokkseyri og í Rvík Árni Árnason b. í Stóradal í Mýrdal Guðríður Sveinsdóttir húsfr. á Brekkum og Skammadalshóli Árni Jónsson b. á Brekkum og á Skammadalshóli Jón Árna- son b. í Neðra- dal í Mýrdal Hafdís Árnadóttir í Kramhúsinu Árni Jónsson b. í Hvammi við Hjalteyri Hreiðar Her- mannsson framkvstj. í Rvík Hermann Jóns- son b. í Norður- hvammi í Mýrdal Hermann Hreiðarsson framkvstj. og fv. landsliðsm. í knattspyrnu Jón Þór Þórhallsson forstj. Skýrr og framkvstj. Eur- opean Consulting Partners Sigríður Jónsdóttir húsfr. í Rvík Arnfríður Bjarnadóttir húsfr. á Ketilsstöðum Björn Sigurðsson b. á Ketilsstöðum Ragnhildur Björnsdóttir húsfr. á Ketilsstöðum Ingveldur Sveinsdóttir frá Neðra-Dal undir Eyjafjöllum Þorbjörg Ketilsdóttir hjúkrunark. á Vífilsstöðum Brynheiður Ketilsdóttir Ragnar Ketilsson b. á Ketilsstöðum og síðar í Vík Ingólfur Gísli Ketilsson b. á Ketilsstöðum og síðar í Eyjum Sigurfinnur Ketilsson b. á Dyrhólum Ketill Ketilsson b. á Ketilsstöðum í Mýrdal Ketill Ketilsson vinnum. í Reynisdal og víðar í Mýrdal Björn Ketilsson smiður á Stokkseyri og í Rvík Afmælisbarnið Halldór Guðjón. ÍSLENDINGAR 57 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2018 Ólafur Friðriksson fæddist áEskifirði 16.8. 1886. Foreldrarhans voru hjónin Friðrik Möller, póstafgreiðslumaður á Eski- firði og síðar póstmeistari á Akureyri, og Ragnheiður Jónsdóttir, af Kjarna- ætt. Eiginkona Ólafs var Anna Frið- riksson, f. Christiansen-Hejnæs. Ólafur lauk prófum frá Gagnfræða- skóla Akureyrar 1903, var síðan í Kaupmannahöfn og víðar við nám og störf og kynnti sér hugmyndafræði ýmissa sósíalískra hreyfinga. Hann kom síðan heim, gerði stuttan stans á Akureyri, hélt síðan til Reykjavíkur 1915 og átti þar heima síðan. Ólafur var einn af atkvæðamestu stofnendum Alþýðuflokksins og Al- þýðusambandsins og sat þar í stjórn 1916-24 og 1930-32, og aðalhvata- maður að stofnun Sjómannafélags Reykjavíkur 1915, ritari þess 1915-17 og varaformaður 1928-50. Hann varð fyrsti ritstjóri Alþýðublaðsins, 1919 og í hópi róttækustu málsvava flokksins. Ólafur varð helsti forsprakki „Hvíta stríðsins“, nokkurra daga óeirða við hús hans að Suðurgötu 14, árið 1921 er hann kom heim af Alþjóðaþingi kommúnista í Moskvu með 14 ára rússneskan dreng sem haldinn var smitandi augnsjúkdómi. Landlæknir vildi láta vísa drengnum úr landi en Ólafur neitaði að afhenda drenginn, hélt því fram að þetta væri aðför auð- valdsins að sér og drengnum, og safn- aði að sér hópi verkamanna og stuðn- ingsmanna. Kallað varð út liðsauka lögreglunnar til að ná drengnum og deilan varð að alvarlegustu pólitísku róstum sem þá höfðu átt sér stað í Reykjavík. Í kjölfarið var Ólafi vikið úr starfi sem ritstjóra Alþýðublaðsins og hann, Hendrik Ottósson og fleiri dæmdir til fangelsisvistar en voru síð- ar náðaðir. Þrátt fyrir stofnun Kommúnista- flokks Íslands árið 1930 hélt Ólafur tryggð við Alþýðuflokkinn og var aft- ur ritstjóri Alþýðublaðsins 1939-42. Hann samdi skáldsögur og reyfara, og var bæjarfulltrúi 1918-38. Ólafur lést 12.11. 1964. Merkir Íslendingar Ólafur Friðriksson 95 ára Margrét Ingunn Ólafsdóttir 90 ára Geoffrey Thornton Booth Pétur Friðrik Hjaltason 85 ára Erna Jónsdóttir Ingibjörg Hannesdóttir 80 ára Birna Ósk Björnsdóttir Högni Jónsson Sigurgeir Steingrímsson 75 ára Guðrún Steingrímsdóttir Hjördís Marmundsdóttir Hólmfríður Jóhannsdóttir Jón Már Guðmundsson Karl Karlsson Sigrún Geirsdóttir Sævarr Pálsson 70 ára Birgir Þór Ólafsson Helga Árnadóttir Hlöðver Kjartansson Kristinn R. Bjarnason Kristján Vífill Karlsson Málfríður Björnsdóttir Ómar Örn Arnbjörnsson Steinar Hilmarsson Þórdís Þorkelsdóttir 60 ára Dagbjört Hansdóttir Drífa Gústafsdóttir Einar Berg Gunnarsson Fanney H. G Kristjánsdóttir Gezim Morina Hörður Birkisson Jóhanna Hreinsdóttir Laufey K. Kristjánsdóttir Sigurður Gói Ólafsson Steinunn Hreinsdóttir Valgeir Skúlason Vilborg Hannesdóttir Þóra Björk Hjartardóttir 50 ára Anna Helga Bjarnadóttir Ágúst Jónsson Áslaug H. Aðalsteinsdóttir Elín S. Hallgrímsdóttir Hafdís Björg Bjarnadóttir Jóhann Sævar Ragnarsson Margrét Ólafsdóttir Ragnhildur Garðarsdóttir Valgeir Stefánsson Örn Gunnarsson 40 ára Árni Már Harðarson Elís Már Kjartansson Grímur V. Magnússon Gunnar Sigurðsson Heiða B. Svavarsdóttir Hrafnhildur Víglundsdóttir Margrét Rós Þórhallsdóttir Nerijus Savickas Ólafur H. Baldursson Pawel Hubert Nowak Ronald Marcin Kopka Rúnar Bjarki Ríkharðsson Steingrímur Helgason Steinunn S. Randversdóttir Þórunn Elfa Ævarsdóttir Össur Willardsson 30 ára Anna Lára Bjarnfreðsdóttir Bang-On Hreinsson Bjarki Freyr Jónsson Eyþór Björnsson Fanney Sigurgeirsdóttir Jóhann Þór H. Svavarsson Jökull Steinan Jökulsson Krzysztof Jan Budryk Lucia Turzová Milos Curuvija Ríkharður Guðjónsson Sandra Líf Þórðardóttir Til hamingju með daginn 30 ára Unnsteinn ólst upp í Reykjavík, býr þar og starfar við tæknideild Grand Hótels. Systkini: Steinunn, f. 1978, starfsmaður hjá Securitas; Hildiþór, f. 1983, tónlistarmaður, og Konráð, f. 1998, nemi. Foreldrar: Guðrún Sig- urðardóttir, f. 1958, starf- ar á velferðarsviði Reykja- víkurborgar, og Jónas Jóhannsson, 1963, húsa- smíðameistari. Unnsteinn A. Jónasson 30 ára Klara býr í Reykja- vík, lauk BA-prófi í graf- ískri hönnun frá LHÍ og er grafískur hönnuður og hugmyndasmiður á aug- lýsingastofunni Tvist. Maki: Friðleifur Heiðar Þrastarson, f. 1990, mat- reiðslumaður. Sonur: Þröstur Heiðar, f. 2015. Foreldrar: Einar Arnalds, f. 1950, d. 2004, ritstjóri, og Sigrún Jóhannsdóttir, f. 1952, sjúkraþjálfari. Klara Jóhanna Arnalds 30 ára Halldóra ólst upp í Hafnarfirði, býr í Reykja- vík, lauk prófi í snyrtifræði og starfar hjá OragniQ Iceland. Maki: Ægir Már Burkna- son, f. 1985, grafískur hönnuður hjá S. Helgason steinsmiðju. Synir: Fjölnir Hrafn, f. 2011, og Ágúst Ægir, f. 2018. Foreldrar: Kristján Vatt- nes, f. 1962, og Helga Daníelsdóttir, f. 1963. Halldóra V. Kristjánsdóttir Laugavegur 61 I Kringlan I Smáralind I sími 552 4910 I www.jonogoskar.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.