Morgunblaðið - 16.08.2018, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 16.08.2018, Blaðsíða 60
60 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2018 VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Ég er mjög stolt af komandi starfsári og hlakka til, enda margt spennandi fram undan. Við erum með óvenjumargar stjörnur í hópi einleikara og einsöngvara og bjóð- um upp á fjölbreytta dagskrá. Há- punktur starfsársins verður síðan þriggja vikna tónleikaferð hljóm- sveitarinnar til Japans í nóvember. Það er því af nógu að taka,“ segir Arna Kristín Einarsdóttir, fram- kvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands (SÍ). „Eitt af því sem markar sérstöðu okkar á alþjóðavísu er hvað efnis- skráin okkar er ótrúlega fjölbreytt. Sinfóníuhljómsveit Íslands er þjóð- arhljómsveit og við viljum að allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi, allt frá þungarokki til barokks með viðkomu í samtímatónlist og allt þar á milli. Okkar markmið er að ná til sem flestra og jafnframt gera allt í hæstu gæðum,“ segir Arna Kristín. Að vanda er árið samsett af föst- um áskriftarvikum og árlegum lið- um utan áskriftar á borð við Myrka músíkdaga og bíótónleika. „Að vissu leyti verður starfsárið hverju sinni til með lífrænum hætti. Við eigum í samtali við Yan Pascal Tortelier, aðalhljómsveitarstjóra okkar, sem hefur ákveðnar áherslur í sínu verkefnavali, Osmo Vänskä og Vladimir Ashkenazy hafa sínar óskir og síðan þurfum við að raða dagskránni að öðru leyti saman þannig að árið myndi góða heild og endurspegli breidd í verkefnavali. Við þurfum síðan að finna til réttu sérfræðingana til að taka að sér öll þessi mjög svo ólíku verkefni,“ seg- ir Árni Heimir Ingólfsson, tónlist- arfræðingur og listrænn ráðgjafi SÍ. Skipulagningin langhlaup „Það er alltaf ákveðið langhlaup að skipuleggja tónleikaárið, því það geta liðið nokkur ár frá því línur voru lagðar þar til hlutirnir verða að veruleika. Sem dæmi má nefna að fyrir um þremur árum var mörkuð sú stefna að auka hlut kvenna í hópi hljómsveitarstjóra og tónskálda sem við erum að sjá raungerast í dag,“ segir Arna Kristín. „Það er okkar hlutverk að spegla samtímann og í dag getum við gengið út frá því að konur í sam- tímatónlist hafi tækifæri og mennt- un til jafns við karla. En í gegnum söguna hafa tækifærin verið svo ójöfn að myndast hefur skekkja. Konur fengu ekki að mennta sig og verk þeirra sem þó sömdu voru þögguð niður og glötuðust í tímans rás. Þannig eru furðumargar áheyrilegar sinfóníur eftir konur á 19. öld sem hafa legið í þagnargildi svo að segja frá því þær urðu til, en gaman er að draga fram í dags- ljósið,“ segir Árni Heimir og tekur fram að eitt af því sem huga þurfi að í verkefnavali sé að kynna áhugaverða og stundum gleymda hluti úr fortíðinni. „Um leið og eftirspurnin eftir konum í hópi hljómsveitarstjóra og tónskálda eykst bregðast umboðs- skrifstofur við og auka hlut þeirra. Við getum þannig knúið fram þessa breytingu með því hvernig við setj- um fram okkar kröfur til umboðs- manna og hljómsveitarstjóra. Í dag er hljómsveitarstjórum ekki stætt á öðru en að bjóða á sinni efnisskrá verk eftir konu,“ segir Árni Heimir. „Þessi breyting er líka að verða í nágrannalöndum okkar sem við viljum bera okkur saman við. Þetta er skýr stefna og við erum að upp- skera núna og munum uppskera enn frekar í framtíðinni,“ segir Arna Kristín. „Við sjáum fyrir okkur að eftir tvö ár verði verk eftir konu á öllum efnisskrám hljómsveitarinnar. Við erum þannig að búa til nýtt norm. Við gerum þetta ekki af kvöð,“ seg- ir Árni Heimir. „Heldur af innri ástríðu og þörf. Einsleit listræn mynd er ekki áhugaverð. Við viljum dýnamík. Við viljum sjá hlutina frá ólíku sjónarhorni, fá mismunandi liti og ólíkan hljóm. Kynin eru ólík og því mikilvægt að skapa rými fyr- ir þau bæði. Þannig verður efnis- skráin áhugaverðari,“ segir Arna Kristín. Þakklát fyrir reynsluna Eins og fyrr sagði heldur Sinfón- íuhljómsveitin til Japans í nóv- ember, en þar kemur sveitin fram á 12 tónleikum með píanóleikaranum Nobuyuki Tsujii. „Þetta er fyrsta tónleikaferðin sem við förum í eftir hrun sem samanstendur af fleiri en einum tónleikum, en það eru fleiri í bígerð, sem er afar spennandi. Þessi ferð á sér mjög langan að- draganda. Það er magnað að loks skuli vera komið að þessu,“ segir Arna Kristín og rifjar upp að SÍ hafi þurft að aflýsa fyrirhugaðri tónleikaferð sinni til Japans fyrir áratug, þ.e. í miðju bankahruni haustið 2008, stuttu fyrir brottför. „Eins erfitt og þetta var á sínum tíma er ég í dag þakklát fyrir reynsluna, því við fundum áþreif- anlega hvað tónlistin skiptir miklu máli og þá sérstaklega þegar sam- félög verða fyrir áfalli,“ segir Arna Kristín og rifjar upp að í stað þess að SÍ léki allar sinfóníur Sibeliusar undir stjórn Petris Sakari fyrir jap- anska tónleikagesti spilaði SÍ fyrir Íslendinga sem flykktust á tónleika sveitarinnar fyrst í höfuðborginni og síðan víðs vegar um landið. „Sveitin lék í staðinn fyrir fólk sem þurfti tilfinnanlega á því að halda að geta horfið inn í annan heim og fengið andlega næringu þessa öm- urlega daga í október 2008,“ segir Árni Heimir. Stjórnandi í Japansferðinni er Vladimir Ashkenazy. „Okkur þykir mjög dýrmætt að geta haldið upp á „Margt spennandi fram undan“  Nýtt starfsár Sinfóníuhljómsveitar Íslands hefst í Hörpu á laugardag með tvennum tónleikum  Íslensk tónlist á miklu flugi  Hápunktur starfsársins er þriggja vikna tónleikaferð til Japans Morgunblaðið/Árni Sæberg Tilhlökkun Arna Kristín Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, og Árni Heimir Ingólfsson, tónlistarfræðingur og listrænn ráðgjafi SÍ. Leitar þú að traustu BÍLAVERKSTÆÐI Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi Sími 587 1400 |www. motorstilling.is SMURÞJÓNUSTA < HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA TÍMAPANTANIR 587 1400 Við erum sérhæfðir í viðgerðum á amerískum bílum. Mótorstilling býður almennar bílaviðgerðir fyrir allar tegundir bíla.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.