Morgunblaðið - 16.08.2018, Side 61

Morgunblaðið - 16.08.2018, Side 61
samstarf hljómsveitarinnar við Ashkenazy í gegnum árin og haldið þannig upp á hans mikilvæga fram- lag til íslensks tónlistarlífs. „Áhrif hans verða seint ofmetin. Hann launaði Íslendingum ríkisborgara- réttinn ríkulega og hefur í gegnum árin lagt sitt af mörkum við upp- byggingu íslensks menningarlífs. Til marks um það er Ashkenazy heiðursforseti Listahátíðar í Reykjavík og stjórnandi 9. sinfóníu Beethovens á opnunartónleikum Hörpu í maí 2011. Sú stund gleym- ist seint,“ segir Arna Kristín. Eins og að umpotta blómi Stjórnendur Sinfóníuhljómsveit- arinnar leggja mikla áherslu á að hljómsveitin sé þjóðarhljómsveit sem þjóni öllum landsmönnum. „Við upplifum það á hverjum degi að Sinfóníuhljómsveit Íslands nýtur mikils meðbyrs í íslensku þjóð- félagi, ekki síst meðal áskrifenda og tónleikagesta. Það er ótrúlega gam- an að starfa í þeim aðstæðum, en við erum líka meðvituð um að það er ekki sjálfgefið fyrir okkur sem menningarstofnun,“ segir Árni Heimir. „Harpa er mikilvægt sameining- artákn og undirstrikar hversu miklu máli menningin skiptir og hefur skipt þessa þjóð á liðnum öld- um. Söngurinn og sögurnar héldu lífinu í þjóðinni í gegnum aldirnar, án þess að ég sé að gera lítið úr fiskinum, kaffinu, kartöflunum og öðru,“ segir Arna Kristín. Innt eftir því hvaða áhrif það hafi haft fyrir SÍ að flytja úr Háskóla- bíói í Hörpu fyrir nokkrum árum grípur Arna Kristín til myndlík- ingar. „Þetta er svolítið eins og að umpotta blómi. Það hefur ótrúlega mikið að segja þegar jurtin fær meira pláss fyrir ræturnar í nýjum potti því þá fær plantan rými til að blómstra og dafna. Áður fyrr voru ákveðnar takmarkanir í starfs- umgjörð hljómsveitarinnar sem hömluðu vexti hennar og listrænni framþróun, en Eldborg ýtir núna undir vöxt hjómsveitarinnar, enda með betri tónleikasölum Evrópu. Það er stórkostlegt fyrir okkur sem íslenska þjóð að eiga þá gersemi sem Sinfónían er,“ segir Arna Kristín. Mikilvægur liður í starfi SÍ er fræðslustarf, en fjórðungur af starf- semi SÍ fellur undir þá skilgrein- ingu. „Það er gríðarlega mikilvægt starf, enda snýr það að því að hlúa að áheyrendum framtíðarinnar. Við tökum á móti 15 þúsund nemendum á öllum skólastigum árlega og för- um í skólaheimsóknir. Okkur finnst mikilvægt að fræðslustarfið sé ekki aðeins í formi tónleika heldur gagn- virkt og þannig bjóðum við börnum og ungmennum til samstarfs þar sem þau fá tækifæri til að taka þátt í tónlistarflutningi með okkur,“ seg- ir Arna Kristín og nefnir í því sam- hengi þann fjölda barna sem árlega kemur fram á jólatónleikum SÍ. „Auk þess erum við í samstarfi við skólahljómsveitir á höfuðborg- arsvæðinu og fáum t.d. unga ein- leikara til að flytja með okkur Leik- fangasinfóníuna. Við erum mjög meðvituð um það hvað sinfóníu- hljómsveit getur verið mikil víta- mínsprauta inn í alls konar starf með ungu fólki í tónlist og reynum að nota það eins vel og við getum. Það er auðvitað verið að vinna frá- bært starf úti um allt á akrinum, en við getum boðið upp á ýmislegt, ekki síst í stærð og umfangi, sem engin önnur menningarstofnun hér- lendis getur,“ segir Árni Heimir. Menningarverðmætum bjargað Athygli vekur að óvenjumikið af íslenskum verkum verður flutt á komandi starfsári. „Það kemur til af því að þetta er mikið afmælisár þar sem fjögur tónskáld eiga stór- afmæli,“ segir Árni Heimir og nefn- ir í því samhengi að Atli Heimir Sveinsson verður áttræður, Þorkell Sigurbjörnsson hefði orðið átt- ræður, Jón Ásgeirsson verður ní- ræður og Jórunn Viðar hefði orðið hundrað. „Við erum að fagna þeim öllum ásamt því að vera með tónleika á Myrkum músíkdögum þar sem flutt verður m.a. Metacosmos eftir Önnu Þorvaldsdóttur, staðartónskáldið okkar, og aðra tónleika næsta vor þar sem m.a. verða frumfluttar tvær nýjar sinfóníur. Í samstarfi við Kvikmyndasafn Íslands sýnum við Síðasta bæinn í dalnum sem Jórunn Viðar samdi tónlistina við, en með því samstarfi erum við að bjarga menningarverðmætum frá glötun,“ segir Árni Heimir og rifjar upp að Jórunn hafi á sínum tíma lagt mikla vinnu í samspil tónlistar og þess sem fyrir augu bæri. „Myndin var svo vinsæl og filman svo mikið spiluð að hún slitnaði margoft og var límd saman, en tón- listin var hljóðrituð aftur og þá fór ýmislegt úrskeiðis við samræm- inguna. Fyrir vikið var tónlistin ekki lengur í samræmi við mynd- ina. Þórður Magnússon tónskáld hefur skrifað alla tónlistina upp eft- ir þeim gögnum sem Jórunn lét eft- ir sig þannig að hún passi við myndina. Þetta verður því í fyrsta sinn síðan á sjötta áratugnum sem rétt tónlist heyrist á réttum stað í myndinni,“ segir Árni Heimir. Íslensk nútímatónlist vinsæl Sá mikli fjöldi íslenskra verka sem heyrist á komandi starfsári er afrakstur þeirrar ræktar sem stjórnendur SÍ hafa lagt við íslensk tónskáld. „Við erum ótrúlega stolt af okkar íslensku tónskáldum og hlökkum mikið til að heyra Meta- cosmos eftir Önnu og fiðlukonsert Daníels Bjarnasonar. Þessi tvö verk hafa fengið gríðarlega góðar viðtökur erlendis,“ segir Arna Kristín. „Verk þeirra eru meðal þeirra sem tekin verða upp í vetur fyrir þriðja og síðasta geisladiskinn með íslenskri tónlist sem Sinfóníu- hljómsveitin vinnur í samvinnu við bandaríska útgáfufyrirtækið Sono Luminus,“ segir Árni Heimir, en fyrsti diskurinn, Recurrence undir stjórn Daníels Bjarnasonar, er kominn út og hlaut Íslensku tónlist- arverðlaunin 2017 sem plata ársins í flokki sígildrar- og samtíma- tónlistar. „Ég er sannfærður um að útgáfa þessara þriggja diska verði mikill aflvaki og ýti enn frekar undir þann alþjóðlega áhuga sem verið hefur á íslenskum tónskáldum,“ segir Árni Heimir og tekur fram að það sé mikil gæfa að upptökurnar séu gerðar með SÍ. „Það er ákveðinn stimpill fyrir okkur að geta með þessum upptökum eignað okkur þessi verk,“ segir Árni Heimir. „Að einhverju leyti má segja að Sinfóníuhljómsveit Íslands hafi ræktað þetta hæfileikafólk, enda hafa þau tekið mörg sín fyrstu skref með okkur. Þegar þau vekja síðan þessa miklu alþjóðlegu at- hygli er mjög fallegt að athyglin nái aftur til okkar með flutningi hljóm- sveitarinnar á verkum þeirra. Ég veit ekki hvort fólk gerir sér al- mennt grein fyrir því hversu langt þessi íslensku tónskáld hafa náð á alþjóðavísu,“ segir Arna Kristín og bendir á að tímanir séu breyttir. „Ég efast um að margir hafi haft trú á því fyrir nokkrum árum að íslensk nútímatónlist væri að fara að slá í gegn,“ segir Arna Kristín. „Þetta hefur gerst mjög hratt og með afgerandi hætti,“ segir Árni Heimir. Tengja álfurnar tvær Spurð hvort greina megi ein- hvern séríslenskan hljóm í verkum íslenskra samtímatónskálda svarar Árni Heimir því neitandi og bendir á að hvert tónskáld hafi sinn sér- staka og skýra stíl. „En með sama hætti og Ísland liggur á mótum tveggja fleka, landfræðilega séð, þá hefur tónlist t.d. Önnu og Daníels þá sérstöðu að tengja álfurnar tvær saman í tónlistarlegu tilliti,“ segir Arna Kristín. „Hljómsveitarverk þeirra eiga það líka sameiginlegt að þau eru mjög opin og næm fyrir stemningum og hinum fíngerðari upplifunum sem sinfóníuhljómsveit getur búið til með fjölbreyttum samsetningum hljóðfæra sinna og lita,“ segir Árni Heimir. MENNING 61 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2018 Boðið verður upp á 40 ólíkar efnisskrár hjá Sin- fóníuhljómsveit Íslands hérlendis á komandi starfsári sem hefst með tvennum tónleikum á menningarnótt. Alls eru 25 tónleikar starfsárs- ins sem heyra undir áskriftarraðir. Gula röðin er fyrir þá sem vilja fjölbreytta klassík; Rauða röð- in fyrir þá sem vilja kraft; Græna röðin er fyrir þá sem vilja heyra vinsæl verk og Litli tónsprot- inn er fyrir yngstu tónlistarunnendurna. Loks er það Föstudagsröðin sem er fyrir þá sem vilja prófa eitthvað nýtt. Blaðamaður Morgun- blaðsins bað Örnu Kristínu og Árna Heimi að velja samtals níu tónleika hvort sem þau myndu setja á sitt Regnbogakort, vel vitandi að það væri líkt og að biðja þau um að gera upp á milli barnanna sinna. Sellókonsert sem allir elska „Í Gulu röðinni verð ég fyrst að nefna tón- leikana 13. september undir yfirskriftinni Sum- arnætur sem Yan Pascal Tortelier stjórnar,“ segir Arna Kristín, en á efnisskránni er m.a. sönglagaflokk- ur eftir Berlioz sem er sjaldheyrður hér- lendis. „Síðan verð ég að nefna Vor- blótið 21. febrúar þar sem Daníel Bjarnason stjórnar eigin fiðlukonsert sem Pekka Kuusisto flytur. Þeir Pekka og Daníel eru í miklu uppáhaldi.“ Innt eftir tónleikum í Rauðu röðinni segist Arna Kristín bíða spennt eftir tónleikunum 23. maí undir yfirskriftinni Thibaudet og Beethoven sem Osmo Vänskä stjórnar. „Verkin þrjú sem flutt verða eru öll æðisleg, þ.e. Vetrarhiminn eftir Kaiju Saariaho, Hetjuhljómkviðan eftir Beethoven og píanó- konsert nr. 3 eftir James MacMillan,“ segir Arna Kristín og tekur fram að það sé sér sér- stakt tilhlökkunarefni að heyra franska píanó- leikarann Jean-Yves Thibaudet takast á við konsert MacMillan. Arna Kristín ætlar ekki að missa af flutningi Andreasar Brantelid á selló- konsert Edwards Elgar undir stjórn Evu Ollikainen 28. febrúar. „Enda elska allir þennan sellókonsert.“ „Í Grænu röðinni verð ég að nefna tónleikana 23. mars þar sem Anne Sofie von Otter syngur undir stjórn Tortelier. Hún er stórkostleg söng- kona og ánægjulegt að fá hana aftur til lands- ins. Ástríðan og krafturinn sem fylgir Tortelier dregur mann alltaf alla leið fremst á sætis- brúnina, túlkun hans nær slíku flugi að unun er á að hlýða. Við erum svo sannarlega heppin að hafa fengið hann til liðs við okkur.“ Seinni tón- leikarnir í Grænu röðinni sem Arna Kristín nefn- ir eru líka með söngkonu í aðalhlutverki, því 20. september syngur Þóra Einarsdóttir Fjóra síð- ustu söngva Richards Strauss. Á sömu tón- leikum eru einnig flutt Ævintýri Ugluspegils eftir Strauss og sinfónía nr. 5 eftir Tsjajkovskíj undir stjórn Petris Sakari. „Mér finnst Þóra yndisleg. Ævintýri Ugluspegils er eitt af mínum uppá- haldsverkum, sem mér þótti alltaf mjög gaman að flytja. Verkið kallar á risahljómsveit sem tekst að fram- kalla alla þá liti og melódíur sem í verkinu leynast. Þetta er mjög flott verk.“ Þegar kemur að Litla tónsprot- anum velur Arna Kristín tónlistarævintýrið Maxi fer á fjöll eftir Hallfríði Ólafsdóttur sem flutt verður 6. október undir stjórn Daníels Bjarnasonar, en sögumaður er Unnur Eggerts- dóttir. „Verkið var frumflutt í Walt Disney- tónleikahöllinni af Fílharmóníuhljómsveitinni í Los Angeles,“ segir Arna Kristín og rifjar upp að SÍ og Fílharmóníuhljómsveitin í LA hafi pant- að verkið í sameiningu. „Maxi er í verkinu að segja sögu Íslands og íslenskrar tónlistar, auk þess sem náttúran leikur stórt hlutverk.“ Skálmöld og Ari Eldjárn verða fyrir valinu þegar kemur að tónleikum utan raða. Skálmöld leikur undir stjórn Bernharðs Wilkinssonar á þrennum tónleikum í næstu viku og Bernharður stjórnar líka á uppistandstónleikum Ara í september. „Það er pínu þungarokkstaug í mér. Mér finnst magnað hvað samstarfið við Skálmöld hefur farið á flug. Ég verð að nefna Ara því ég kenndi honum á sínum tíma á þverflautu og finnst ég því eiga pínu í honum,“ segir Arna Kristín og rifjar upp á síðast hafi Ari tekið flautusóló, en uppistandstónleikarnir eru endurteknir vegna fjölda áskorana. Klaus Mäkelä næsta stórstjarna „Ég er líka ótrúlega spenntur fyrir Véronique Gens. Ég hef heyrt hana syngja hjá Parísaróper- unni og hún er frábær söngkona,“ segir Árni Heimir þegar hann er beðinn að velja sér tón- leika í Gulu röðinni. Seinni tónleikarnir sem Árni Heimir nefnir eru Bernstein og Villa-Lobos sem verða 24. janúar. Á efnisskránni eru sin- fónískir dansar úr West Side Story eftir Bern- stein, sem er í miklu uppáhaldi hjá Árna Heimi. lier verður fyrir valinu í Grænu röðinni. „Það er svo eftirminnilegt þegar Nikolai Lugansky spil- aði Rachmaninoff á fyrstu tónleikunum sem Tortelier stjórnaði hérlendis. Það urðu svo mikil fagnaðarlæti að við ákváðum strax að fá hann aftur og að þessu sinni leikur hann á næstsíð- ustu tónleikunum sem Tortelier stjórnar sem aðalhljómsveitarstjórnandi.“ Seinni tónleikarnir í Grænu röðinni sem Árni Heimir velur sér eru aðventutónleikarnir 6. des- ember undir stjórn Dirks Vermeulen. „Vegna þess að Les indes galantes eftir Jean-Philippe Rameau er svo rosalega flott stykki. Þetta er eitt þessara verka sem enginn veit að hann þekkir en allir kannast við þegar þeir heyra. Það er svo sjaldan sem við förum eitthvað út fyrir boxið í barokkinu, enda leikum við sjaldan bar- okktónlist. Rameau, sem var á pari við Bach á sínum tíma, er eitt helsta tónskáld Frakka á 18. öld,“ segir Árni Heimir. Strákurinn með slikkeríið eftir Jóhann G. Jóhannsson verður fyrir valinu í tónleikaröð Litla tónsprotans, en verkið er flutt 14. maí. „Mér finnst svo áhugavert að við séum að eign- ast íslenskt tónlistarævintýri við sögu eftir Roald Dahl. Ég held að þetta geti ekki klikkað, enda sjá Bryn- hildur Guðjóns- dóttir og Unn- steinn Manúel Stefánsson um sönginn,“ segir Árni Heimir, en stjórnandi tón- leikanna er Noam Aviel. Utan raða velur Árni Heimir tón- leika SÍ á Myrk- um músík- dögum 31. janúar. „Það er óvenjulega spennandi að fá að heyra bæði Metacosmos eftir Önnu Þor- valdsdóttur og Flutter eftir Þuríði Jónsdóttur, tvö verk í stórum formum eftir þessi frábæru tónskáld. Ég man ennþá hvað mér fannst flautukonsert Þuríðar flottur þegar hann var frumfluttur hjá okkur 2008. Einnig verður flutningur Ungsveitar SÍ á Handsfree eftir Önnu Meredith spennandi,“ segir Árni Heimir og bendir á að ungsveitin spili ekki á nein hljóð- færi í verkinu, heldur sé um að ræða kóreógra- ferað verk með hreyfingum og hljóðum sem hópurinn framkallar með líkamanum. Að lokum nefnir Árni Heimir tónleikana Klassíkina okkar sem haldnir verða 31. ágúst í samstarfi við RÚV þar sem þjóðin kaus um dagskrána. „Af því að mér finnst líka gaman að fá stöku sinnum að fara í frí og láta aðra taka ákvörðun um hvað hljómsveitin eigi að spila.“ „Ég held að sjaldan hafi tekist eins vel að hræra saman góða blöndu af sinfónískri tónlist og söngleikatónlist og þar,“ segir Árni Heimir og bendir á að Bernstein hefði orðið 100 ára í ár hefði hann lifað. „Af tónleikum í Rauðu röðinni verð ég að nefna tónleikana 11. október þar sem flutt verða fiðlu- konsert eftir Tsjajkovskíj og sinfónía nr. 10 eftir Shostako- vitsj undir stjórn Klaus Mäkelä. Hann er spútnik, enda aðeins rétt rúmlega tvítugur. Það eru ekki nema þrjú ár síð- an ég heyrði fyrst um hann frá finnskum um- boðsmanni, en hann er í dag orðinn aðal- gestastjórnandi hjá sænsku útvarpshljóm- sveitinni. Allir sem þekkja til hans segja að hann verði næsta stórstjarna í klassíska heim- inum og því hlakka ég mjög mikið til að heyra hann stjórna,“ segir Árni Heimir. Seinni tónleikarnir í Rauðu röðinni sem Árni Heimir valdi sér eru Isabelle Faust og Mahler sem verða 11. apríl á næsta ári. „Isabelle Faust er alveg einstök. Hún er mjög tilfinninganæm og hefur svo fallegan tón. Hún lék síðast með Sinfóníunni í Háskólabíói þannig að það verður spennandi að heyra hvernig hún bregst við Eld- borg,“ segir Árni Heimir, en Faust mun leika fiðlukonsert Johannesar Brahms auk þess sem hljómsveitin leikur sinfóníu nr. 10 eftir Gustav Mahler undir stjórn Osmos Vänskä. „Osmo er stórkostlegur Mahler-túlkandi. Hann er að flytja og taka upp allar Mahler-sinfóníurn- ar með sinfóníuhljómsveitinni í Minnesota. Hluti af samkomulaginu við hann þegar hann var ráðinn aðalgestahljómsveitarstjórinn okkar var að hann fengi tækifæri til að flytja mikinn Mahler. Hann hefur því á hverju ári flutt Mahler- sinfóníu,“ segir Árni Heimir og bendir á að Mahler-sinfóníur séu stór verk og því dýr í flutningi þar sem kalla þurfi út mikið af auka- hljóðfæraleikurum. „Maður leggur ekki svona verkefni í hendurnar á hverjum sem er. Við vilj- um geta treyst því að útkoman sé fyrsta flokks af því við leggjum óvenjumikið í þetta. Við þurf- um aldrei að hafa áhyggjur af því með Osmo, því við vitum að hann skilar alltaf góðu verki.“ Lugansky spilar Grieg 9. maí undir stjórn Torte- Hvað vilja þau heyra? ARNA KRISTÍN EINARSDÓTTIR OG ÁRNI HEIMIR INGÓLFSSON SETJA SAMAN REGNBOGAKORTIN SÍN Ligia Amadio Véronique Gens Pekka Kuusisto Jean-Yves Thibaudet

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.