Morgunblaðið - 24.08.2018, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 24.08.2018, Blaðsíða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 2018 Efnilegur Skákmaður færir biskup á stóru taflborði við Reykjavíkurhöfn og tvær konur úr röðum aðdáenda hans fylgjast spenntar með fallegri leikfléttu hans sem virtist ganga fullkomlega upp. Kristinn Magnússon Vorið 2007 birtist grein í The Economist um efnahagsstefnuna sem Hugo Chávez, for- seti Venesúela, mótaði og kallaði „petrolíu sósíalisma“. Blaðið lýsti henni sem blöndu af her-popúlisma og miðstýringu í anda ný- marxisma. Forsetinn réðst hvað eftir annað á „auðmannastéttina“ enda segðist hann málsvari fátæka mannsins, það er meirihluta íbúa landsins. Þess vegna væri undarlegt að sjá fjórhjóladrifna bíla (einkum Hum- mer) fylla götur höfuðborgarinnar Caracas, erfitt væri að fá borð á bestu veitingastöðum, nú væri blómatími listaverkasala og viskíin- nflytjenda. Nýja auðmannastéttin þrifist vel í Venesúela í skjóli „Bó- livar-byltingarinnar“ sem nefnd væri eftir sjálfstæðishetju landsins. Þetta var í Caracas fyrir 11 árum. Skömmu eftir að greinin birtist tók að halla hratt undan fæti hjá Hugo Chávez og stjórnarhættir hans urðu æ gerræðislegri. Hann andaðist í mars 2013. Nú er svo komið að nágrannaríki Venesúela grípa til sérstakra ráð- stafana vegna straums flóttamanna þaðan. Stjórn Brasilíu sendi til dæmis um helgina herafla og lög- reglulið á vettvang sín megin landa- mæranna til að halda aftur af heimamönnum sem höfðu ráðist á búðir flóttamanna frá Venesúela og borið að þeim eld í bænum Pac- arima. Til að hefna árásarinnar var ráðist á bíla frá Brasilíu í Vene- súela. Talsmaður flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna segir að fleiri flytji nú á brott frá Venesúela en áður hafi þekkst í sögu Suður-Ameríku. Fólk streymir yfir landa- mærin til Kólumbíu og reynir að komast þaðan til annarra landa. Flóttinn frá Vene- súela vegna örbirgðar er til marks um öm- urlega stjórnarhætti Chávez og eftirmanns hans Nicolas Mad- uros. Landið, auðugasta ríki Suð- ur-Ameríku, dró á sínum tíma til sín fólk í krafti dýrmætra jarðefna og olíuvinnslu. Hún er nú svipur hjá sjón vegna viðhaldsskorts á úr- eltum tækjum og spilltra stjórnar- hátta undir sósíalískri ríkisforsjá. Framleiðslan er sögð á borð við það sem hún var árið 1947. Töfralausn boðuð Föstudaginn 17. ágúst tilkynnti Nicolas Maduro að hann hefði fundið töfraráð gegn efnhagsvand- anum. Til sögunnar kæmi, mánu- daginn 20. ágúst, nýr lögeyrir, bol- ivar soberano, fimm núll yrðu tekin af gömlu myntinni. Þá yrði um 3.000% hækkun á lágmarkslaunum frá 7. september (þau verða þá um 30 dollarar á mánuði á svörtum markaði). Verð á bensíni yrði sama og á heimsmarkaði til að útiloka smygl til annarra landa. Allt yrði þetta tengt rafmyntinni petro sem kynnt var til sögunnar í febrúar 2018. Maduro talaði beint á Facebook sunnudaginn 19. ágúst og sagði: „Við erum á leið til nýs jafnvægis. Þetta gerist ekki á einni nóttu. Þetta ferli til nýs jafnvægis þróast. Þetta er ótrúlega mögnuð töfra- formúla. Við mótuðum hana af eig- in hugarafli og greiningu.“ Rafmyntin petro hefur aldrei gengið kaupum og sölum. Henni er lýst sem gervimynt en Maduro skráir hana á 60 dollara (3.600 nýja bolivana) og segir hana reista á verði olíutunnu og muni verðgildið sveiflast í samræmi við það. Að dæmið gangi upp og unnt sé að sigr- ast á óðaverðbólgu á þennan veg telja reyndir hagfræðingar ólíklegt. Eina sem dugi í tilvikum sem þess- um sé að henda út gömlu myntinni og taka tafarlaust upp bandarískan dollar. Sé ekki gripið til þessa úr- ræðis vaxi vandinn áfram. Fréttir í byrjun vikunnar hermdu að eftir myntbreytinguna hefði öll efnahags- starfsemin lamast. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn sendi frá sér spá í júlí um að í árslok yrði verðbólga í Venesúela líklega 1.000.000% (milljón prósent). Í um- sögn af hálfu sjóðsins sagði að þar með líktist verðbólgan því sem var í Þýskalandi árið 1923 og Simbabve í kringum aldamótin 2000. Í Morgunblaðinu þriðjudaginn 21. ágúst sagði Sonia Petros frá Vene- súela: „Í gær keypti systir mín tvo lítra af kóki fyrir sex milljónir bóli- víana. Síðan fór hún um nóttina og verðið var komið upp í 21 milljón. Ástandið verður klikkaðra með hverjum deginum og verðið hækkar stöðugt.“ Í Grikklandi Um sömu mundir og fréttir bár- ust af efnahagshamförunum í Vene- súela var sagt frá því að Grikkir hefðu losnað undan átta ára forsjá ESB og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Landið væri að nýju „eðlilegt“ að sögn efnahagsstjóra ESB. Sumarið 2015 fór fram þjóðar- atkvæðagreiðsla í Grikklandi um hvort hafna ætti aðild að evrunni. Þá spurði breska blaðið The Daily Telegraph í fyrirsögn hvort Grikk- land gæti orðið evrópskt Venesúela. Þar sagði að tengsl milli stjórnvalda í Aþenu og Caracas hefðu orðið náin eftir að róttæka vinstrabandalagið Syriza komst til valda í Grikklandi. Ráðamenn landanna væru einhuga í ástríðu sinni í þágu sósíalisma og fyrirlitningar í garð „ný-frjáls- hyggjumanna“. Alexis Tsipras, leiðtogi Syriza, var við jarðarför Hugos Chávez í Caracas. Þegar Tsipras varð for- sætisráðherra snemma árs 2015 fögnuðu Chavistar með þeim orðum að „ferskir pólitískir vindar“ lékju um Evrópu. Sem forsætisráðherra hefur Alex- is Tsipras ekki reynst neinn bylt- ingamaður. Hann sýndi þó tilburði í þá átt vorið 2015 þegar hann hvatti kjósendur til að hafna evrunni í þjóðaratkvæðagreiðslu. Eftir að um 60% kjósenda fóru að ráðum hans og sögðu nei við evrunni hafði hann vilja þeirra að engu og samdi við ESB og lánardrottna landsins. Þótt forráðamenn ESB segi Grikkland „eðlilegt“ land að nýju er skuldaklafinn þungur eins og hugur almennings í garð stjórnvalda. Í Níkaragva Ekki aðeins í Grikklandi bundu sósíalistar vonir við að Chavistar í Venesúela yrðu kyndilberar ný- marxmismans. Daniel Ortega, ein- ræðisherra Níkaragva, var náinn vinur og samherji Chávez. Ortega stjórnar nú með her- og lögregluvaldi og eiginkonu sína sem varaforseta. Hún beitir ríkisfjöl- miðlum til að lýsa andstæðingum eiginmannsins sem glæpamönnum, hryðjuverkamönnum og eiturlyfja- barónum. Námsmenn og aðrir hafa nú mót- mælt óstjórn Ortega-hjónanna sam- fellt í fjóra mánuði. Valdi hefur ver- ið beitt gegn mótmælendum og 448 fallið í valinn. Á Íslandi Hér tóku vinstrisinnar upp hanskann fyrir Hugo Chávez á með- an Hummerar voru vinsælustu bíl- arnir á götum Caracas. Þegar hann gerði atlögu að frjáls- um sjónvarpsstöðvum vegna gagn- rýni þeirra á sig bar Fréttablaðið (31. maí 2007) aðförina undir ís- lenskan vinstrisinna sem taldi þetta ekkert tiltökumál, stærstu einka- reknu sjónvarpsstöðvarnar hefðu tekið þátt í valdaránstilraun gegn Chávez. Þá kom þessi skýring: „Chávez er þjóðernissinnaður og mjög andvígur öllum bandarískum áhrifum á menningarlíf Venesúela. Með þessum aðgerðum getur hann sett á fót nýja sjónvarpsstöð sem nær til allra landsmanna. Markmið hennar er að vera menningarlegt ríkissjónvarp, sem styður innlenda dagskrár- og kvikmyndagerðar- menn.“ Fjölmiðlaárás Chavez snerist ekkert um menningarlegt ríkissjón- varp. Ömurlegri afsökun vinstri- sinna á valdabrölti einræðisherra í nafni sósíalisma má enn halda á loft vegna ófarnaðar Venesúela. Eftir Björn Bjarnason » Flóttinn frá Vene- súela vegna örbirgð- ar er til marks um öm- urlega stjórnarhætti Chávez og eftirmanns hans Nicolas Maduros. Björn Bjarnason Höfundur er fv. ráðherra. Hrun Venesúela vegna sósíalisma Chavista

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.