Morgunblaðið - 24.08.2018, Side 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 2018
Hildur Loftsdóttir
hilo@mbl.is
Árið 2015 ákváðu fimm bestu vinir
að stofna hljómsveit og vinna Mús-
íktilraunir árið eftir. Sem þau gerðu.
Tilraunapönkbandið Hórmónar
hefur síðan þá verið þekkt fyrir
kraftmikla tónlist, frábæra sviðs-
framkomu og ögrandi feminíska og
pólitíska texta.
Í dag gefur bandið út sína fyrstu
plötu, Nanananabúbú, og mun halda
heljarinnar útgáfutónleika á Gaukn-
um sem hefjast kl. 20.30, þar sem
öllu verður tjaldað til.
Kunnum ekkert á hljóðfærin
Hórmónar eru Brynhildur Karls-
dóttir söngkona og textahöfundur,
Katrín Guðbjartsdóttir gítarleikari,
Urður Bergsdóttir sem leikur á
bassa og syngur, Örn Gauti Jó-
hannsson á slagverk og Hjalti
Torfason saxófónleikari sem einnig
sér um skarkala ýmsan: „Ég nota
gítareffekta á saxófóninn, eins og á
ekki að nota þá, þannig að það kem-
ur hávaði. Svo spila ég líka á raf-
magnssaxófón,“ útskýrir Hjalti þeg-
ar blaðamaður hittir sveitina í
sveittu æfingahúsnæði hennar á
vinnusvæði úti á Nesi.
Katrín: Þegar við ákváðum að
stofna hljómsveit lögðum við ekki
upp með neitt ákveðið.
Örn: Bara að passa að það heyrð-
ist eitthvað í okkur. Mér finnst það
eina markmiðið sem við höfum haft.
Katrín: Þetta er tilraunapönk-
band að því leyti að við kunnum ekk-
ert á hljóðfærin okkar. Og fram-
koman okkar er pönk.
Brynhildur: Við vildum líka skil-
greina okkur þannig að við hefðum
sem mest svigrúm til að þróast.
Urður: Við erum bara heppin að
hafa náð að semja lög í byrjun.
Hjalti: Ég lærði á saxófón í þrjá
mánuði þegar ég var 12 ára, en Örn
hefur æft sig á trommur í tíu ár og
er líka gítarleikari.
Örn: Þau eru öll hægt og rólega
að verða betri og ég að verða verri.
Hlátur.
Stundum eins og galdur
Brynhildur: Á vissan hátt höfum
við litið á það sem gjöf að vera ekki
með hefðbundna tónlistarmenntun,
þá gerum við bara það sem okkur
finnst hljóma vel.
Katrín: Skapandi rýmið verður
stærra og þá eru allir vegir færir.
Urður: Lögin verða öll til á æf-
ingum; við djömmum bara og þá
kemur eitthvað sem við fílum. Við
spilum það aftur og aftur, finnum
hvaða hljóðfæri passa og prófum
okkur áfram.
Brynhildur: Mér líður stundum
eins og þetta sé galdur, allt í einu
gerist eitthvað geðveikt.
Hjalti: Svo kemur textinn eftir á.
Urður: Brynhildur er með fullt
af textahugmyndum í bókinni sinni.
Við byrjum að spila og hún flettir
upp í bókinni og syngur með.
Brynhildur: Ég ber textana
samt undir þau, því þetta er eitt-
hvað sem við erum öll að segja.
Hjalti: Já, við höfum sagt nei við
texta sem þú hefur skrifað.
Örn: Hann var aðeins of pólitísk-
ur. Nafngreiningar.
Brynhildur: Við breyttum honum
þannig að í stað þess að gagnrýna
gömlu pólitíkusana gagnrýnum við
okkur sjálf.
Hjalti: Lagið varð ádeila á ungt
fólk sem fer ekki út að kjósa heldur
situr heima og kvartar undan öllu.
Rosaleg innlifun
Katrín: Við spilum mikið i bylgj-
um. Mjög mikið í nokkra mánuði og
síðan ekkert í einhvern tíma.
Hjalti: Fyrsta árið spiluðum við
rosalega mikið. Á Airwaves spil-
uðum við sjö eða átta tónleika og
keyrðum okkur út.
Örn: Við nefnilega gefum allt í
hverja tónleika. Það er ógeðslega
erfitt að spila tvenna og hvað þá
þrenna tónleika sama daginn.
Brynhildur: Á Airwaves í fyrra
spiluðum við svo bara þrjú gigg, en
samt missti ég röddina.
Urður: Innlifunin var svo mikil hjá
mér að ég endaði í spelku á háls-
inum.
Brynhildur: Urður er með Ís-
landsmet í að slamma með bassa.
Urður: Svo klippti ég á mér hárið
og fékk mér léttari bassa.
Brynhildur: Þetta er sko í alvöru
blóð, sviti og tár.
Katrín: Það er sjúklega gaman að
spila á Airwaves.
Hjalti: Þá fær maður líka mestu
fjölmiðlaathyglina, t.d. að utan.
Urður: Þetta er hinn árlegi stökk-
pallur sem maður fær sem tónlist-
armaður.
Katrín: Við undirbúum okkur al-
veg sérstaklega fyrir Airwaves.
Urður: Við fáum mjög góðar um-
fjallanir miðað við hvernig við horf-
um á okkur. Yfirleitt mjög jákvæðar.
Sem kemur alltaf mjög á óvart.
Hjalti: Við erum alltaf að bíða eft-
ir að einhver rífi okkur í tætlur.
Brynhildur: Við höfum samt feng-
ið neikvæð komment á youtube.
Örn: Youtube er bara eins og al-
menningsklósett þar sem fólk tússar
eitthvað á vegginn.
Allt að gerast í samfélaginu
Örn: Þessi feminíska hlið bandins
er bara mjög nauðsynleg.
Hjalti: Það var samt ekki mark-
miðið til að byrja með. En af því að
það eru stelpur í bandinu og text-
arnir eru sterkir, þá varð það fók-
usinn. Mér finnst það bara mjög
fínt. Það er líka ákveðin orka í sveit-
inni varðandi tilfinningar og sam-
skipti sem er rosalega kvenleg, og
ég myndi ekki vilja hafa það öðru-
vísi.
Örn: Þessi hljómsveit er svo mikið
fólk að reyna að láta heyra í sér. Há-
vær, sterk skilaboð, allir að öskra.
Kvenmenn að láta heyra í sér. Ég er
Hljómsveit sem vill láta í sér heyra
Hórmónar gefa út plötuna Nanananabúbú Heljarinnar útgáfutónleikar á Gauknum í kvöld
Fimm ungmenni með miklar skoðanir Gefa allt í hverja tónleika Í alvöru blóð, sviti og tár
Morgunblaðið/Eggert
Kraftmikil Brynhildur, Örn Gauti, Urður, Katrín og Hjalti eru feminísk, andkapitalísk, filterslaus og ögrandi tilraunapönkhljómsveit.
Norræna húsið fagnar 50 ára afmæli
í dag og boðar af þeim sökum til há-
tíðardagskrár í dag, föstudag, og á
morgun. Í dag verður efnt til ráð-
stefnu um fortíð, nútíð og framtíð
hússins sem ber heitið 50 ára
reynsla af norrænni menningar-
pólitík á Íslandi og stendur yfir frá
11-14:30 í húsi Vigdísar.
Á ráðstefnunni verða mál á dag-
skrá er varða t.a.m. Norræna húsið
sjálft og Norðurlandasamvinnu. Til
máls taka: Forseti Íslands, Guðni
Th. Jóhannesson, Katrín Jakobs-
dóttir forsætisráðherra, Lilja Dögg
Alfreðsdóttir mennta- og menning-
armálaráðherra og framkvæmda-
stjóri norrænu ráðherranefndar-
innar, Dagfinn Høybråten.
Auk ráðstefnunnar er blásið til
hátíðardagskráar í dag og á morgun,
laugardag. Á þessum degi fyrir 50
árum voru fánar Norðurlandanna
dregnir að húni í fyrsta sinn við Nor-
ræna húsið við athöfn. Verður leik-
urinn endurtekinn við Norræna hús-
ið í dag klukkan níu og er vinum og
velunnurum hússins boðið að vera
viðstaddir. Í kjölfarið verður boðið
upp á morgunkaffi að athöfn lokinni
og sögusýningin 50 minningar opnuð
fyrir gesti.
Á morgun, laugardag, verður al-
menningi boðið til norrænnar menn-
ingarveislu með tvennum úti-
tónleikum og fjölskylduvænum
atburðum. Dagskrá laugardagsins
hefst kl. 10 með fríum morgunverði.
Við tekur fjölskyldudagskrá þar sem
ýmis afþreying er á boðstólum, s.s.
norrænir leikir, fjölskyldujóga,
barnabíó og tónleikar fyrir unga
fólkið þar sem Gróa, Flóni og RuGl
stíga á pall. Síðdegis verður tónlist-
arspekúlantinn Arnar Eggert Thor-
oddsen með Pub Quiz í hátíðartjald-
inu. Um kvöldið verða tónleikar á
stóra sviðinu þar sem fram koma
hljómsveitir af norrænum uppruna;
Nanook, Miss tati og SEINT.
ninag@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Afmælisbarn Norræna húsið efnir
til hátíðarveislu í dag og á morgun.
Norræna húsið heldur
upp á 50 ára afmæli
//////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////