Morgunblaðið - 24.08.2018, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.08.2018, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 2018 Hulda B. Ágústsdóttir Margrét Guðnadóttir Íslensk hönnun - Íslenskt handverk Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990 www.kirs.is, Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17 Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Talsvert er um að aldrað fólk og ör- yrkjar leiti ekki til tannlækna vegna mikils kostnaðar. Ein skýringin á því er að greiðsluþátttaka Sjúkratrygg- inga Íslands, SÍ, vegna tannlækna- þjónustu við þennan hóp hefur tekið mið af úreltri gjaldskrá, en frá og með næstu mánaðamótum verður miðað við nýja gjaldskrá og eykst greiðsluþátttakan þar með verulega. Skrifað var undir samstarfssamn- ing þessa efnis í gær og segir Elín Sigurgeirsdóttir, formaður Tann- læknafélags Íslands, að það hafi ver- ið löngu tímabært. „Samningslaust hefur verið á milli SÍ og tannlækna síðan síðasti samningur rann út árið 2004. Allan þann tíma hefur endur- greiðslan miðast við gjaldskrá síðan þá og vegna þess hefur fólk í þessum hópi ekki fengið þá niðurgreiðslu sem það á rétt á samkvæmt reglum.“ Þar vísar Elín til reglna um þátt- töku SÍ í kostnaði sjúkratryggðra við tannlækningar sem kveða á um 75% greiðsluþátttöku í kostnaði aldraðra og öryrkja. Raunin hefur þó verið sú að vegna þess að þátt- takan var miðuð við 14 ára gamla gjaldskrá var hlutur SÍ kominn nið- ur í 20-25%, eða um einn þriðja af því sem lög kveða á um. Vonast til meiri endurgreiðslu Í samningnum felst að 500 millj- ónir verði lagðar í þennan málaflokk á þessu ári, einn milljarður á næsta ári og sama upphæð árið 2020. „Hætt er við því að þessir fjármunir dugi ekki til vegna þess kúfs sem hefur myndast á þessum langa tíma og þess vegna verður greiðsluþátt- takan 50%,“ segir Elín. „Þó að þetta sé ekki eins há endurgreiðsla og við höfðum vonast til ákváðum við að gangast inn á þetta í þeirri trú að þátttakan verði aukin í 75% að ári. Annars gæti forsendubrestur stefnt samningnum í hættu.“ 270 tannlæknar, sem eru nánast allir starfandi tannlæknar á landinu, eru aðilar að samningnum og frá og með 1. september verða þeir með sömu gjaldskrá sem SÍ mun miða við. Um 61 þúsund Íslendingar falla undir samninginn og segir Elín að miðað við fjöldann og hversu mikil- vægt það sé að njóta góðrar tann- heilsu séu þetta ekki miklir fjár- munir. „Við erum að tala um heil- brigði fólksins, sem margt hefur ekki séð sér fært að leita til okkar vegna fjárhagsvanda. Allflestir tannlæknar kannast við það og að fólk í þessum hópi sé ekki að fara til tannlæknis fyrr en allt er komið í óefni. Þá er kostnaðurinn oft orðinn gríðarmikill og ég held að flestir tannlæknar hafi tekið að sér þjón- ustu fyrir fólk í þessum hópi án endurgjalds. Nú er kominn tími til að stjórnvöld fari að lögum og greiði fyrir þennan hóp það sem honum ber.“ 14 ára gömul gjaldskrá loks úr gildi Morgunblaðið/Kristinn Magnúss Undirritun Elín Sigurgeirsdóttir, formaður Tannlæknafélagsins, og Stein- grímur Ari Arason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, takast í hendur.  Frá og með næstu mánaðamótum eykst niðurgreiðsla tannlæknakostnaðar lífeyrisþega verulega  Næstum allir tannlæknar aðilar að nýjum samningi  Tímabært, segir formaður Tannlæknafélagsins Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is „Við byrjuðum að dæla á þriðjudaginn og erum að dýpka fyrir utan höfnina í innsiglingunni. Síðan erum við líka að dýpka snúningssvæðið sem ætlað er fyrir flutningaskip, t.d. þannig þau geti snúið í höfninni í stað þess að bakka inn,“ segir Dagur Þór Baldvinsson, yfirhafnarvörður hjá Skaga- fjarðarhöfnum, en dæluskipið Galilei 2000 frá Belgíu dælir þessa dagana úr höfninni. Dýpkað verður í -8,5 metra á báðum svæðum og um 65.500 rúmmetrum af efni dælt upp. Verða um 15.000 rúmmetrar af því notaðir í landfyllingu í höfninni en restinni verður fargað á áður notuðum förgunarstað á hafi úti. Áætlað er að verkið taki fimm daga. „Það má ekkert bregða út af eins og þetta er núna og þetta verður mikill munur fyrir fyrirtæki eins og Eimskip og Samskip sem koma hingað með vörur hálfsmánaðarlega,“ segir Dagur Þór. „Við viljum vera öruggari með siglinguna. Síðan býður þetta upp á þann möguleika fyrir okkur að taka stærri skip, skipin eru líka alltaf að stækka,“ segir hann. Aðspurður nefnir Dagur að dýpri höfn auki einnig möguleika til að taka á móti skemmti- ferðaskipum. „Þótt aðallega sé verið að hugsa þetta fyrir flutningaskipin eykur þetta mögu- leikann á því líka,“ segir hann. Galilei 2000 er Íslendingum kunnugt skip, en það kom til landsins árið 2016 og hefur verið við dýpkun í Landeyjahöfn hingað til. Morgunblaðið/Björn Jóhann Stærri skipum auðvelduð aðkoman Lísbet Sigurðardóttir lisbet@mbl.is Við Bleiksárfossa á Eskifirði stendur rausnarleg mylla. Slíkar myllur eru ekki á hverju strái á Íslandi og reka margir upp stór augu þegar þeir sjá mylluna tróna yfir bænum. Myllan var gjöf Unnars Björgólfssonar, fyrr- verandi bæjarstjóra á Eskifirði, en gjöfina færði hann bænum árið 1996. Myllur hafa um langa hríð verið ein- kennistákn Eskifjarðar að sögn dótt- ur Unnars, Helgu, sem hefur nú feng- ið leyfi Fjarðabyggðar til þess að mála mylluna í upprunalegum lit. „Pabbi gaf mylluna og frændi minn, Hafsteinn Stefánsson, smíðaði hana. Myllur voru auðkenni Eski- fjarðar hér á árum áður. Það eru myllur í gömlum myndum af Eskifirði og myllur er að finna í skjaldarmerki Eskifjarðar. Pabba var svo mikið í mun að fegra bæinn og gera eitthvað skemmtilegt og halda þessari minn- ingu á lofti að hann fékk frænda sinn til þess að gera svona myllu.“ Ljóst er að bæjarbúum þykir vænt um mylluna. Þó hefur ekki verið ein- hugur um hver litur hennar eigi að vera. Myllan var upphaflega svört til þess að líkja eftir útliti gömlu myll- anna á myndum af bænum. Einhverj- um þótti þá betra að hafa hana græna að lit, eins og sjá má á myndinni, og var hún máluð í ljósum tónum. Helga og móðir hennar Jónína vildu hins vegar að myllan fengi sitt uppruna- lega útlit og sótti Helga því um leyfi til Fjarðabyggðar til þess að fá að mála hana svarta. Leyfið var gefið í gær og því stendur nú til að þær mæðgur máli mylluna á næstu vikum. Ætla að mála mylluna  Myllan var gjöf frá fyrrverandi bæjarstjóra Eskifjarðar  Ekki einhugur um lit myllunnar meðal bæjarbúa Ljósmynd/Emil Thorarensen Mylla Gjöf Unnars Björgólfssonar. Þrítugur Akureyringur, Magnús Norðquist Þóroddsson, hefur verið dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir líkamsárás og frelsissviptingu í apríl árið 2016. Maðurinn dró fórnarlamb sitt upp úr heitum potti við hús í bæn- um og barði það ítrekað ofan á gler- brotum á sólpalli við húsið. Þá flutti maðurinn, í félagi við annan mann sem var sýknaður, fórnarlambið rænulaust á pallbíl upp í Fálkafell klukkan hálfátta að morgni. Þar var það beitt frekara ofbeldi en síðan skilið eftir slasað og meðvitund- arlaust. Maðurinn fannst um klukkan ellefu um morguninn. Annar maður var sýknaður af ákæru um ofbeldi og frelsissviptingu en dæmdur í mán- aðar fangelsi fyrir fíkniefnabrot. Handrukkari í 18 mánaða fangelsi Mikið af stórum og feitum makríl hefur veiðst fyrir austan landið, að því er fram kom á vef HB Granda í gær. Skipið Víkingur AK var þá á leið til Vopnafjarðar með um 860 tonn af makríl sem fékkst í sex köstum eftir tvo sólarhringa á veiðunum. Góð veiði er sögð hafa verið í Reyðarfjarðardjúpi og á svæðinu þar norðaustur af síðustu daga. Haft er eftir Hjalta Einarssyni, skipstjóra á Víkingi, að mjög góð veiði hafi verið þar í fyrradag, en þá hafi verið „vaðandi makríll úti um allan sjó“. Makríllinn sé þó sprettharður og geti horfið aftur eins og hendi sé veifað. Góð makrílveiði í Reyðarfjarðardjúpi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.