Morgunblaðið - 24.08.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 2018
Bragð af
vináttu • Hágæðagæludýrafóður
framleitt
í Þýskalandi
• Bragðgott og
auðmeltanlegt
• Án viðbættra
litar-, bragð- og
rotvarnarefna
Útsölustaðir: Byko,
Dýraland, Gæludýr.is,
4 loppur, Multitask,
Launafl, Vélaval, Landstólpi.
Stjórnvöld hafa með skattaaf-slætti á bíla sem flokkaðir
eru umhverfisvænir hvatt til þess
að slíkir bílar séu keyptir. Með
því fer minna fé í ríkiskassann
vegna bílakaupanna og líka vegna
minni notk-
unar á jarð-
efnaeldsneyt-
inu, sem er
með háum
sköttum.
Ef allirkeyptu umhverfisvænu bíl-
ana kæmi að því að ríkissjóður
hefði mun minna upp úr krafsinu
þegar kemur að bíleigendum en
nú er þó að kostnaður vegna bíla,
aðallega samgöngumannvirkin,
verði eftir sem áður til staðar.
Nú hefur nefnd skilað tillögumum breytta skattlagningu
bíla og eldsneytis og frumvarps
er að vænta. Þetta er meðal ann-
ars til að koma í veg fyrir óeðli-
legar skattahækkanir vegna
breyttra mælikvarða ESB, en
einnig sem viðbrögð við því sem
lýst er hér að ofan.
Fjármálaráðherra segir aðhann vilji styðja áfram við
breytingar yfir í umhverfisvænni
bíla og segist horfa til þess hvort
í auknum mæli verði farið að
skattleggja ekna kílómetra í stað
seldra lítra af eldsneyti.
Framtíðin kann að liggja í þvíað skattleggja ekna kíló-
metra, taka í raun gjald fyrir
notkun, en þá þarf að gæta þess
að slík breyting verði ekki notuð
sem afsökun fyrir skattahækkun.
Það gengur ekki að taka íauknum mæli upp gjöld fyrir
notkun nema lækka þá á sama
tíma önnur gjöld.
Ekki hækkun nema
samhliða lækkun
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 23.8., kl. 18.00
Reykjavík 12 skýjað
Bolungarvík 10 léttskýjað
Akureyri 10 rigning
Nuuk 9 léttskýjað
Þórshöfn 10 skýjað
Ósló 16 léttskýjað
Kaupmannahöfn 23 heiðskírt
Stokkhólmur 22 heiðskírt
Helsinki 20 skúrir
Lúxemborg 28 léttskýjað
Brussel 22 skýjað
Dublin 16 léttskýjað
Glasgow 14 rigning
London 20 léttskýjað
París 25 léttskýjað
Amsterdam 20 súld
Hamborg 25 léttskýjað
Berlín 33 heiðskírt
Vín 32 heiðskírt
Moskva 18 heiðskírt
Algarve 28 heiðskírt
Madríd 33 léttskýjað
Barcelona 29 léttskýjað
Mallorca 32 léttskýjað
Róm 28 þrumuveður
Aþena 29 heiðskírt
Winnipeg 24 þoka
Montreal 21 skýjað
New York 23 heiðskírt
Chicago 23 heiðskírt
Orlando 30 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
24. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:47 21:14
ÍSAFJÖRÐUR 5:42 21:29
SIGLUFJÖRÐUR 5:25 21:12
DJÚPIVOGUR 5:14 20:46
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Ekki liggur fyrir hvenær byrjað
verður á að rífa húsnæði Kársnes-
skóla við Skólagerði í Kópavogi en
það var dæmt ónýtt vegna raka-
skemmda. Skrifað verður undir
samninga við verktaka um nið-
urrifið í næstu viku. Jafnframt er
unnið að undirbúningi nýrrar
skólabyggingar sem hýsa mun
bæði skóla og leikskóla og er
stefnt að því að útboð hönnunar
verði auglýst um aðra helgi, sam-
kvæmt upplýsingum Kópavogs-
bæjar.
Eftir að hætt var að nota hús-
næði Kársnesskóla við Skólagerði
hafa ítrekað verið unnið skemmdir
á húsinu. Meðal annars hefur ungt
fólk lagt bílum á körfuboltavelli á
bak við skólann á kvöldin og
sparkað boltum í glugga og brotið
rúður. Starfsmenn Kópavogsbæjar
koma reglulega og negla fyrir
glugga og hreinsa upp glerbrot til
að reyna að koma í veg fyrir að
börn sem þarna eru að leik skeri
sig.
Bæjarstjórn ákvað sl. vor að
bjóða út niðurrif skólahússins.
ABL Tak ehf. átti lægsta tilboð,
rúmar 33 milljónir, og samþykkti
bæjarráð að taka því. Dregist hef-
ur að ganga frá samningum vegna
þess að annar bjóðandi gerði at-
hugasemdir við útboðið. Nú liggur
fyrir að skrifað verður undir
samninga við verktakann í næstu
viku. Niðurrifið getur hafist í kjöl-
farið en Sigríður Björg Tóm-
asdóttir, upplýsingafulltrúi Kópa-
vogsbæjar, segir að ekki sé vitað
hvaða dag framkvæmdir hefjast.
Skóli á mörgum stöðum
Eftir að ákveðið var að rýma
skólahúsið, í febrúar á síðasta ári,
hefur nemendum verið kennt á
nokkrum stöðum, í húsnæði fyrr-
verandi Þinghólsskóla, í gömlu
bæjarskrifstofunum við Fannborg
og í lausum kennslustofum á Vall-
argerðisvelli. Þar var bætt við
lausum skólastofum í sumar.
Nú liggur fyrir að útboð á hönn-
un nýs húsnæðis við Skólagerði
verður auglýst um aðra helgi.
Miðað er við að þar verði yngstu
börnum skólans kennt en þeim
eldri í skólahúsnæðinu við Kópa-
vogsbraut. Í nýja húsinu verður
samrekinn leikskóli og frísund og
gert ráð fyrir aðstöðu fyrir tóm-
stundastarf og tónlistarkennslu.
Brjóta rúður í gamla skólanum
Skrifað undir samninga við verktaka um niðurrif Kársnesskóla í Kópavogi
Skemmdarverk Rúður hafa verið
brotnar og neglt fyrir fjölda ann-
arra glugga í hinu gamla skólahúsi
Kársnesskóla í Kópavogi.