Morgunblaðið - 31.08.2018, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2018
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Ámorgun, að kvöldilaugardagsins 1. sept-ember, heldur VinafélagGamla bæjarins í Múla-
koti í Fljótshlíð árlegt Ljósakvöld í
svonefndum Guðbjargargarði þar á
bæ. Með Ljósakvöldinu vill félagið
minnast gamalla tíma í Múlakoti,
þegar ræktun, hótel- og veit-
ingareksturinn og listfengi húsráð-
enda þar báru hróður staðarins um
land allt. Jafnframt vill Vinafélagið
fagna því sem áunnist hefur við að
bæta hús og garð. Dagskráin hefst
kl. 20.
Stórhýsi endurviðað
Íbúðarhúsið í Múlakoti, sem
er innarlega í Fljótshlíðinni, var
reist í nokkrum áföngum á 1897-
1946. Þetta er stórhýsi sem stend-
ur á rústum torfbæjar fyrri alda
og var friðlýst árið 2014. Alls 27
vistarverur eru í byggingunni og
þarna var rekið eitt fyrsta sveita-
hótelið á Íslandi. Innbú gamla tím-
ans er að stórum hluta enn í hús-
inu, en í því var búið fram til 1997.
Í sumar hafa þök elsta hússins,
skúrar norðan við það og gangur
milli fyrsta og annars byggingar-
áfanga gömlu húsasamstæðunnar
verið endurviðuð og lagt á þau
nýtt bárujárn.
Guðbjargargarður er nefndur
eftir Guðbjörgu Þorleifsdóttur sem
hóf ræktunarstarf árið 1897 og er
þetta einn fyrsti skrúðgarður Ís-
lendinga. Þar hefur verið tekið til
hendi á síðustu árum og margt
endurbætt. Í vikunni kom svo 50
manna hópur garðyrkjunema í
Landbúnaðarháskóla Íslands á
Reykjum í Ölfusi í sína fjórðu
vinnuferð á staðinn til að bæta
garðinn, meðal annars með gerð
nýrra gróðurbeða.
Á Ljósakvöldi á morgun verða
svo ný garðhúsgögn tekin í notk-
un. Þau eru smíðuð úr 100 ára
gömlum reynitrjám úr garðinum
góða.
Gróður og myndlist
„Á óskalista var hellulögn,
endurgerð grasflata, nýmyndun
blómabeða og gróðursetning í þau.
Í stuttu máli, allt tókst þetta.
Hellulögn nýja dvalarsvæðisins á
gamla setusvæði garðsins var lyk-
ilatriði, sem tókst ótrúlega vel,“
segir Sigríður Hjartar í Múlakoti.
Þau Stefán Guðbergsson, eigin-
maður hennar, eru eigendur jarð-
arinnar og hófu fyrir nokkrum ár-
um það endurreisnarstarf sem enn
stendur. Er markmið þess að
Múlakot öðlist að nýju sess sem
menningarsetur. Er allt þetta unn-
ið undir merkjum sjálfsgeign-
arstofnunarinnar Gamli bæinn í
Múlakoti. Aðild að stofnuninni eiga
Skógasafn, Rangárþing eystra og
þau Sigríður og Stefán sem eru
eigendur vesturjarðarinnar í Múla-
koti, hvar þau búa.
Hvað menningu í Múlakoti
viðvíkur má tiltaka ræktunarstarf
Ljósakvöld í garði Guðbjargar
Múlakot í Fljótshlíð öðl-
ast fyrri sess sem menn-
ingarsetur. Í garðinum
þar verður efnt til sam-
komu annað kvöld, þar
sem fólk getur kynnt sér
sögu staðarins þar sem
merkar byggingar standa
í skrúðgarði sem er
meira en 120 ára.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Múlakotshjón Sigríður Hjartar og
Stefán Guðbergsson rækta garðinn.
Ljósm/aðsent
Garðvinna Nemendur og fleiri úr garðyrkjuskólanum að Reykjum í Ölfusi komu í Múlakot í vikunni og sinntu ýmsum störfum í garðinum.
20%
opnunar-
afsláttur
Gildir til og með 3. sept.
Ef þig vantar langvara
við þínum van
er Lyfja góður funda
hérna úti’ á Gra