Morgunblaðið - 31.08.2018, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 31.08.2018, Blaðsíða 13
DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2018 Guðbjargar Þorleifsdóttur og að Ólafur Túbals sonur hennar var á sinni tíð einn þekktasti myndlist- armaður Íslendinga. Var meðal annars kunnur fyrir fallegar vatnslitamálaðar landslagsmyndir. Ólafur, sem lést 1964, eignaðist vináttu margra annarra lista- manna sem gjarnan komu í Múla- kot og fundu þar falleg myndefni. Margir máluðu til dæmis Eyja- fjallajökul sem blasir við af bæj- arhlaði og er kannski hvergi fal- legri að sjá. Fyrir vikið hefur staðurinn sterka tengingu við listasögu Íslendinga. Kaffi og ástarpungar „Uppbyggingin hér í Múlakoti er komin vel á veg. Búið er að endurnýja allt ytra byrði elsta hússins sem var mikilvægur áfangi. Næst er svo að fara í end- urbætur innandyra í þessu húsi sem á sér merka sögu. Við erum raunar þegar farin að taka á móti hópum sem vilja kynna sér þessa merku byggingu. Skrúðgarðurinn fallegi er svo óðum að taka á sig fyrri svip, nema hvað eftir er að reisa nýtt lysthús í stað þess sem fyrir var og rifið, enda ónýtt. Svona tökum við þetta skref fyrir skref eftir því sem aðstæður og efni leyfa,“ segir Sigríður Hjart- ar. Dagskrá Ljósakvöldsins á morgun laugardag er á þá leið að Björn Bjarnason, formaður Vina- félagsins, býður gesti velkomna klukkan 20. Þá flytur Vigdís Jóns- dóttir sagnfræðingur ávarp. Grét- ar Geirsson á Áshóli í Rangár- vallasýslu leikur á harmonikku milli atriða og fram verður borið kaffi og ástarpungar. Þátttöku- gjald er 1.000 kr. sem rennur óskipt til uppbyggingar gamla hússins. Ókeypis fyrir börn, eng- inn posi og klæðnaður eftir veðri. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Litbrigði Skógurinn við Múlakot er eftirtektarverður í fallegum jarðarlitum haustsins. Ljósmynd/aðsend Blóm Margra grasa kennir og flóran er falleg í garðinum góða í Múlakoti. Ljósmynd/aðsend Tónlist Nikkuspil og notaleg stemning á Ljósakvöldi í Múlakoti í Fljótshlíð sem haldið er á hverju ári. Við erum komin á Granda Lyfja hefur opnað nýtt apótek við Fiskislóð 3, í húsnæði Nettó, á Granda. Komið og nýtið ykkur vegleg opnunar- tilboð fram á mánudag, 3. september. 20% af öllum vörum. *Tilboð gildir ekki fyrir lyfseðilsskyld lyf. Lyfja á Granda er opin alla daga 8–24. lyfja.is andi lausn nda, arstaður, nda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.