Morgunblaðið - 31.08.2018, Page 20

Morgunblaðið - 31.08.2018, Page 20
20 UMRÆÐAN Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2018 ✝ Birkir FannarHarðarson fæddist í Reykjavík 2. janúar 1999. Hann lést á krabbameinsdeild Landspílans 22. ágúst 2018 eftir tæplega eins árs baráttu við krabba- mein. Foreldrar hans eru María B. John- son, f. 28. desember 1965, og Hörður Guðjónsson, f. 11. júlí 1963. Þau skildu. Bróðir hans er Jökull Freyr Harðarson nemi, f. 14. mars 1995. Núverandi eiginmaður Maríu er Jón Axel Ólafsson, f. 27. september 1963, á hann tvö börn, Kristínu Ruth Jónsdóttur, f. 3. janúar 1986, og Ólaf Ásgeir Jóns- son, f. 22. desem- ber 1993. Birkir ólst upp hjá foreldrum sín- um í Grafarvogi og gekk í Hamraskóla og lauk síðan grunnskólanámi frá Foldaskóla árið 2015. Hann hóf nám við Menntaskólann í Hamrahlíð sama ár á félagsfræðibraut og stefndi hann á sálfræðinám í háskólanum í framhaldi. Útför Birkis Fannars fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 31. ágúst 2018, klukkan 13. Elsku yndislegi, sterki, yfir- vegaði, góðhjartaði strákurinn minn. Æðrulausa ofurhetjan mín. Það er endalaust sárt að þú sért ekki með okkur lengur. Svo sárt að þér, með allri þinni já- kvæðni, bjartsýni og úthugsuðu pælingum, hafi ekki tekist ætl- unarverkið þitt í þetta sinn – að verða „medical miracle“. En þú veist að þú ert og verð- ur alltaf stóra kraftaverkið mitt fyrir allt það sem þú varst. Takk fyrir allt og hvíl í friði, ástin mín, hvar sem þú ert. Hlakka til að sjá þig, ekki á morgun að þessu sinni, en ein- hvern tímann. Hlýr faðmur, koss á kinn, fallegt bros í hvert eitt sinn. Hönd svo mjúk, vanginn blíður, andlát þitt svo sárt það svíður. Tryggur, traustur, glaður, góður. Hygginn, hraustur, fagur, fróður. Einstakur þú varst, og verður, þannig varstu bara gerður. Óska sonur og bróðir góður, fjölskyldunnar fjársjóður. (Gréta Björg Jakobsdóttir) Þín mamma. Það er með öllu óskiljanlegt að ungt fólk í blóma lífsins sé tekið frá okkur, fjölskyldu og ástvin- um. Það virðist svo tilgangslaust. Sársaukinn er svo mikill og stóra spurningin er; ef Guð ræður öllu – hver er þá ástæðan? Sum okkar sem eftir stöndum eigum jafnvel erfitt með að sjá fyrir okkur að hið guðlega hafi slíkt miskunnarleysi að geta hrifsað burt ungan fallegan dreng, sem sá fyrir sér líf sitt framundan allt planlagt út í smæstu atriði. Hann kemur ekki heim aftur. Herbergið hans er tómt, líflaust og kalt. Maður heyrir ekki lengur að það sé verið að horfa á Friends, aftur! Maður heyrir ekki lengur í hljóðunum úr leikjatölvunni. Það er ekki lengur komið til okkar og sagt: „Ég þarf að semja við ykkur“ sem endaði oftast með góðum samningi fyrir alla (þó kannski örlítið betri fyrir annan aðilann). Núna kemur eina hlýjan frá minningunum, sem alla jafna kalla fram lítið bros – kannski hlátur og örugglega mörg tár. Birkir Fannar, þessi fallegi og góði drengur, var sérstakur að öllu leyti, sjálfstæður og óvenju djúpur af svo ungum manni að vera. Stundum sagður vera göm- ul sál. Nærvera hans þægileg og mjúk og voru öll samskipi við hann átakalaus og um leið gef- andi. Ég fylgdist með þegar Birkir breyttist úr unglingi í ungan mann og við áttum spjall um framtíðina – hvert leiðin lægi, hvert draumarnir mundu leiða hann og það var ekki annað hægt en að dáðst að því hversu skýra sýn hann hafði á hvert skrefi í lífi sínu. Ég fylgdist með þegar fyrsta ástin blómstraði. Það voru forréttindi að fá að fylgja honum fyrstu skrefin inn í lífið. Það er því óbærileg sorg og sársauki að kveðja þennan góða unga vin og stjúpson í dag. Sárs- aukinn minn verður hjóm eitt við hlið þess sársauka sem hann þurfti að takast á við, þegar vís- indin gáfust endanlega upp. Ég vil færa öllu starfsfólki krabbameinsdeildar Landspítal- ans miklar þakkir fyrir frábæra umönnun og öðrum þeim sem lögðu allt í sölurnar til að gera honum lífið bærilegra og börðust þrotlaust fyrir lífi hans og líðan. Megi minning hans lifa björt. Jón Axel Ólafsson. Ljúfur, greindur, vel gefinn. Ungur heimspekingur. Besti vinur vina sinna. Allt planað, stefnt á sálfræðinám og vísindastörf. Við þökkum af öllu hjarta fyrir góðu árin 19. Amma Hildigunnur og afi Rafn. Brosmildur og hæglátur er það fyrsta sem kemur upp í hug- ann þegar ég hugsa um Birki Fannar systurson minn. Hann var á svipuðum aldri og synir mínir, Hinrik og Birkir voru fæddir sama ár og Tómas tveim- ur árum eldri. Samgangurinn var því mikill hjá þeim frændum. Þau voru ófá kvöldin þar sem auka- dýnur voru dregnar fram og mesta sportið var að sofa allir saman á gólfinu. Fyrir mig var kærkomið að fá Birki í heimsókn. Bræðurnir áttu það stundum til að tuða og rífast en um leið og frændinn mætti datt allt í dúna- logn. Á sinn ljúfa hátt náði Birkir Fannar fram því besta í frændum sínum. Hann féll algjörlega inn í heimilislífið og bræðurnir kölluðu hann oft helgarbróður sinn. Þetta þríeyki í fjölskyldunni gekk gjarnan undir nafninu „gúbbarnir“. Vinsælast var að vera fyrir austan í sveitinni hjá ömmu og afa. Þar var ýmislegt brallað. Oft fengu amma og afi strákana til að hjálpa sér við ýmis sveitastörf. Birkir var iðulega fyrstur til að segja já með bros á vör, og sagði síðan við frændur sína: „Komum strákar, drífum þetta af.“ Með aldrinum varð fjórhjólið og Mói, gamli pallbíllinn hans afa, vinsælli en kassabíllinn og buslið í læknum færðist yfir í fljótið þar sem öll frændsystkinin léku sér að því að stökkva af háum klettum ofan í ískaldan hyl- inn. Hildigunnur, litla systir bræðranna, fékk oft að vera með og Birkir alltaf jafn ljúfur við Birkir Fannar Harðarson Þegar mönnum er mik- ið niðri fyrir er landið oft kallað „bananalýðveldi“. Uppnefni eru vissulega slæmur siður og ekki til eftirbreytni en eitthvað verður það að kallast þegar þannig látæði gríp- ur fólk. Ég er doldið áhuga- samur um fjölmiðla, sæki í fréttir en verð því miður oft fyrir vonbrigðum, sérstaklega vegna þess að ekki er allt fréttir sem birt er sem slíkar og margar athyglisverðar fréttir líða fyrir framsetningu þeirra, sérstaklega ef málfarið slæmt. Á undanförnum áratugum hefur verið reynt að þvinga fram breytingar á ís- lensku máli. Þetta er gert með því að hætta að nota orð sem þó eru langt frá síðasta söludegi ef svo má að orði kom- ast. Reynt að að breyta merkingu ann- arra orða sem engu að síður eru full- komlega nothæf. Í staðinn eru ein- hverjir garmar brúkaðir sem virka sennilegir á prenti. Enginn hefur neitt við þetta að athuga því enn skilst inni- haldið þokkalega. Hér er fyrst og fremst átt við orðlag sem hefur á sér yfirbragð stofnanamáls þar sem nafnorðin ráða ríkjum en sagn- irnar lúta í lægra haldi. Þetta sést best í svokölluðum „lögreglufréttum“. Í þeim rembast blaðamenn við að skrifa skrýti- lega formbundið mál sem hugsanlega á að líkast einhvers konar kansellístíl en skekkir um leið og skælir eðlilegan stíl og gerir frásögn tilgerðalega og ljóta. Stjórnendur fjölmiðla eru líklega svo önnum kafnir að þeir mega ekki vera að því að skoða smáatriði eins og málfar í fréttum. Hér eru nokkur dæmi um „lögreglumállýsku“ sem ég hef safnað úr fjöl- miðlum mér til dundurs. Vel kann að vera að ein- hverjir geti kæst yfir svona „gullkornum“ en víst er að öðrum finnist þetta frekar „tragí- kómískt“, svo maður leyfi sér að sletta til að sýnast. Sumt af þessu í gæsa- löppunum eru garmar, orð og frasar sem blaða- og fréttamenn nota óhóflega en ætti að geymast í læst- um hirslum fjarri óvitum. 1. Af og til er „ítrekað“ 2. Aftur og aftur er „ítrekað“ 3. Árekstur er „umferðaróhapp“ 4. Atburður er það sem „á sér stað“ 5. Barsmíðar eru „líkamsárás“ 6. Bíl ekið á ljósastaur telst „umferð- aróhapp“ 7. Bíll er „ökutæki“ 8. Bíll sem hefur oltið er „umferð- aróhapp“ 9. Bílstjóri er „ökumaður“ 10. Dópaður náungi er „undir áhrifum fíkniefna“ 11. Fangelsi er „fangageymsla“ 12. Fangelsi meðan verið er að rann- saka mál er „í gæsluvarðhald á grund- velli rannsóknarhagsmuna“ 13. Fangi er líklega „vistmaður“, það er „vistaður í fangaklefa“ 14. Fáir eru „einhverjir“ 15. Fulli kallinn er maður (líka kell- ing) „undir áhrifum áfengis“ 16. Fulli kallinn er „ölvaður maður“ (á við bæði kynin) 17. Fyllerí í miðbænum er „áfengis- neysla í miðborginni“ 18. Fögur sýn er „sjónarspil“ 19. Grunaður er sá sem hefur „fengið stöðu grunaðs manns“ 20. Hjálparsveit er „viðbragðsaðili“ 21. Hvassviðri er „mikill vindur“ 22. Logn er „lítill vindur“ 23. Lögregla er „viðbragðsaðili“ 24. Margsinnis er „ítrekað“ 25. Nokkrir eru „einhverjir“ 26. Oft er „ítrekað“ 27. Rok er „mikill vindur“ 28. Sá sem er laminn hefur orðið fyrir „líkamsárás“ 29. Sá sem stungið er í steininn er nú „vistaður í fangageymslu“ 30. Samkvæmt lögreglunni er nú „samkvæmt dagbók lögreglunnar“ 31. Sjaldan er „ítrekað“ 32. Sjúkraflutningafólk er „viðbragðs- aðili“ 33. Skemmdir á bíl er „tjón á öku- tæki“ 34. Slökkvilið er „viðbragðsaðili“ 35. Slysstaður er „vettvangur“ 36. Snjór á vegum er „snjóþekja“ 37. Stundum er „ítrekað“ 38. Sumir eru „einhverjir“ 39. Umferðaróhapp er „umferðarslys“ 40. Umferðarslys er „umferðaróhapp“ „Lögreglumállýskan“ hjá blaða- og fréttamönnum Eftir Sigurð Sigurðarson »Hér er fyrst og fremst átt við orðlag sem hefur á sér yfirbragð stofnana- máls þar sem nafnorðin ráða ríkjum en sagnirnar lúta í lægra haldi. Sigurður Sigurðarson Höfundur er áhugamaður um íslenskt mál. sigurdur.sigurdarson@simnet.is Í morgunútvarpi Rásar 1, 28. ágúst sl., var viðtal við Pál Bjarnason, dag- skrárstjóra á sjúkrahús- inu Vogi, þar sem hann upplýsti að „straumar og tískur í sam- félaginu“ kalli á ýmsar breytingar á starfsemi SÁÁ. Páll nefndi sem dæmi að félagið hefði „gengið ansi langt“ í því að aðskilja kynin í meðferð og þegar hann var inntur eftir ástæðum breytinganna svaraði hann: „það er svona að hluta til bara krafa samfélagsins að þetta sé þannig. Fólk eigi ekki að mixa saman reitum þarna. Það er stundum vandamál af því menn verða svo uppteknir af hinu kyninu, það getur, það er ágætt að þurfa ekki að vera að velta því of mikið fyrir sér á meðan maður er að skoða sín vandamál“. Við í Rótinni teljum að það sé út af fyrir sig gott að hlustað sé á kröfur sam- tímans, en það hlýtur þó að þurfa að gera ríka kröfu um að stærsti rekstrar- aðili landsins í fíknimeðferð láti stjórn- ast af gagnreyndri þekkingu en ekki tískustraumum. Krafan um að veitt sé meðferð sem byggist á gagnreyndri þekkingu sem tekur mið af kyni (e. gender-responsive) og er áfallamiðuð (e. trauma-informed) er ekki krafa um „apartheit“-stefnu heldur krafa um að sú þekking sem til er um mismunandi þarfir kynja, hópa og einstaklinga sé nýtt í meðferð. Undan- farna áratugi hefur þekking á kynja- mun, þegar kemur að þróun og meðferð við fíknivanda, aukist mikið og nýlega hafa alþjóðastofnanir gefið út efni um mikilvægi þess að gangskör sé gerð að því að bæta stefnumótun og meðferð fyrir konur með fíknivanda. Eitt helsta baráttumál Rótarinnar frá stofnun fé- lagsins er að meðferðin sé heildræn og að fíknivandinn sé skoðaður út frá af- leiðingum áfalla og ofbeldis sem ein- kennir reynslu meirihluta kvenna sem glíma við fíkn, í samræmi við tilmæli Al- þjóðaheilbrigðisstofnununarinnar, stofn- ana SÞ og Evrópustofnanir sem fjalla um fíkn. Að sjálfsögðu er það skylda SÁÁ að tryggja öryggi skjólstæðinga sinna en það er ófaglegt og ólíðandi að smætta kröfuna um kynjaskiptingu niður í að eingöngu sé verið að koma í veg fyrir kynferðisleg sambönd í meðferð. Slíkar yfirlýsingar opinbera því miður að SÁÁ virðist framkvæma stefnu vegna sam- félagslegs þrýsting án þess að þekking sé til staðar hjá starfsfólki, á eðli vanda þeirra sem því er ætlað að sinna. Þær stangast líka á við margendurteknar yf- irlýsingar yfirmanna félagsins um að þar hafi verið safnað saman „allri þeirri þekkingu sem til er um áfengis- og vímuefnafíkn“, svo vitnað sé í fyrrver- andi yfirlækni. Að lokum eru hér nokkur atriði af óskalista Rótarinnar um æskilega þætti í fíknimeðferð kvenna sem rétt er að ítreka í þessu sambandi:  Meðferðarstofnun er öruggur stað- ur fyrir konur en ekki staður til að æfa sig í uppbyggilegum samskiptum við hitt kynið.  Jafnréttisáætlun er mikilvægt verkfæri til að vinna að kynjajafnrétti.  Kynjasjónarmið í meðferð þurfa að byggjast á sérþekkingu. Kynjaskipting, kynjamiðun og klínískar leiðbeiningar eru til staðar.  Viðmið og verklagsreglur um kyn- ferðislega áreitni og ofbeldi eru virkar.  Meðferðin er áfalla- og ein- staklingsmiðuð.  Frásagnir kvenna sem greina frá kynferðisofbeldi eða áreitni í meðferð eru teknar alvarlega og beint í réttan farveg.  „Konur meðhöndla konur“ er besta viðmið fyrir konur með áfallasögu. Er kynjaskipt meðferð tískustraumur? Eftir Áslaugu Krist- jönu Árnadóttur, Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur, Helenu Bragadóttur, Katrínu G. Alfreðsdóttur, Kristínu I. Pálsdóttur, Soffíu Bæringsdóttur og Þórlaugu Sveinsdóttur »Gera þarf ríka kröfu um að stærsti rekstraraðili landsins í fíknimeðferð láti stjórnast af gagnreyndri þekkingu en ekki tísku- straumum í störfum sínum. Þórlaug Sveinsdóttir, Áslaug Kristjana Árnadóttir, Katrín G. Alfreðsdóttir, Guðrún Ebba Ólafsdóttir og Kristín I. Pálsdóttir. Á myndina vantar Helenu og Soffíu. Höfundar eru í ráði Rótarinnar, félagi um málefni kvenna með áfengis- og fíknivanda. stinapals@simnet.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.