Morgunblaðið - 31.08.2018, Page 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2018
✝ GuðbjörgBjarnadóttir
fæddist í Reykjavík
25. júlí 1954. Hún
lést 22. ágúst 2018.
Hún var dóttir
hjónanna Bjarna
Ólafssonar, f. 22.
september 1927, d.
19. janúar 2018, og
Jónínu K. Krist-
jánsdóttur, f. 7.
nóvember 1930.
Guðbjörg var elst í hópi fimm
systra. Þær eru Sigrún, f. 8.
ágúst 1956, Kristín, f. 14. desem-
ber 1960, Áslaug, f. 31. mars
1964, og Helga, f. 21. febrúar
1971.
Guðbjörg giftist 9. desember
1977 eftirlifandi eiginmanni sín-
um Ragnari Ingólfssyni, raf-
f. 9. september 2003, og Gísli
Rafn, f. 15. ágúst 2006. 2) Bryn-
dís, f. 26. október 1987, sam-
býlismaður Kristján Bergur
Helgason, f. 27. mars 1974. Barn
Kristjáns er Bergur Blær, f. 21.
júlí 1998.
Guðbjörg ólst upp í Smá-
íbúðahverfinu og gekk í Breiða-
gerðis- og Réttarholtsskóla. Eft-
ir að skólagöngu lauk hóf Guð-
björg störf hjá Pósti og síma og
vann hún svo hin ýmsu skif-
stofustörf, lengst í 19 ár hjá
Framkvæmdasýslu ríkisins þar
sem hún lauk sínum starfsferli
árið 2012.
Guðbjörg og Ragnar bjuggu í
Kópavogi á meðan dætur þeirra
gengu í grunn- og menntaskóla
en fluttu síðar til Reykjavíkur í
skamma stund áður en þau flutt-
ust búferlum austur í Gnúp-
verjahrepp þar sem þau reistu
sér hús og nefndu Heiðargerði.
Guðbjörg verður jarðsungin
frá Skálholtsdómkirkju í dag,
31. ágúst 2018, og hefst athöfnin
klukkan 14.
einda- og flug-
virkja, f. 24. júní
1952. Foreldrar
hans voru Ingólfur
Jónsson, f. 13. mars
1930, d. 11. febrúar
1967, og Petra
Fanney Þórlinds-
dóttir, f. 2. nóvem-
ber 1930, d. 3. júní
2004. Guðbjörg og
Ragnar eignuðust
tvær dætur. Þær
eru: 1) Þórunn, f. 23. nóvember
1978, eiginmaður Óskar Örn
Gunnarsson, f. 6. júlí 1973. Börn
Þórunnar eru Heiðrún Ósk, f.
19. desember 2000, Sigurður
Ragnar, f. 6. desember 2002, og
Hildur Brynja, f. 23. maí 2006.
Börn Óskars eru Karítas Líf, f.
27. júlí 2000, Guðmundur Rafn,
Elsku systir mín er fallin frá,
alltof snemma. Hún flutti í sveit-
ina með sínum manni fyrir
nokkrum árum. Fengu land hjá
sveitarfélaginu og byggðu sér
sumarbústað og stækkuðu síðar í
fallegt hús, sem þau kölluðu
Heiðargerði. Hestarnir kropp-
uðu í kring og spóinn vall í móa.
Gróðurinn óx og myndaði gott
skjól. Áhyggjulaust líf, sem einn
góðan veðurdag breyttist í mar-
tröð.
Stuttu eftir brúðkaup Þórunn-
ar dóttur þeirra, sem haldið var í
Heiðargerðinu í júlí, fór Guð-
björg til læknis og þá kom í ljós
krabbamein sem hún réði ekki
við. Mánuði eftir brúðkaupið
góða var hún öll.
Hún hafði gaman af lestri
góða bóka og að hlusta á góða
músík.
Þegar við vorum unglingar
var hlustað á Jethro Tull, Jesus
Crist Superstar og Cat Stevens
sem við spiluðum á Dual-plötu-
spilarann hennar, svo vorum við
að leika frægar söngkonur fyrir
framan spegilinn í kjallaranum,
og sungum í klósettpappírshólk
og klæddum okkur í lök, og vor-
um orðnar frægar söngkonur.
Hún tók sér langan tíma í að
mála sig áður en hún fór á ball,
og teppti klóið, og þá var nú
gaman að stríða henni og fá í
laun þetta fína garg. Hún hafði
gaman af hestaferðum og fóru
þau hjón með „Söfnuðinum“ í
margar góðar ferðir um allt land,
gammelinn tekinn fyrir graut, og
vísurnar sungnar, og svo var
lögg tekin með á pela.
Hún var örugg á henni Kumru
sinni, svo Djákna og svo henni
Skuplu. Hún fór ríðandi tvisvar í
Arnarfell, fimmtug og sextug en
þegar hún varð fimmtug var
Hreinn Þorkelsson fararstjóri og
gaf hann, henni þessa vísu í af-
mælisgjöf, sem henni þótti vænt
um.
Inn í Múlum andann gleður
einstakt veðurlag.
Er Guðbjörg æskuárin kveður
með afmæli í dag.
Þau ferðuðust víða um lönd og
sl. vor keyptu þau sér húsbíl sem
til stóð að nota vel.
Elsku systir, takk fyrir sam-
veruna á lífsins leið. Hún sagði
undir það síðasta „dont worry,
be happy“. Við reynum það.
Mínar innilegustu samúðar-
kveðjur til ykkar, elsku Raggi,
Bryndís og Þórunn og barna-
börn.
Svo hljótt þaut mín jörð
yfir himinsins nafnlausa vegi
að hjarta mitt fann ekki mismun
á nóttu og degi.
Í feiminni þrá sem endalaust
bíður og bíður.
Hann blekkti mig tíminn
ég vissi ekki hvernig hann líður.
Og svo flaug hann á burt
með mitt vor yfir heiðar og hlíðar
með höll mína, tign mína og ríki
ég vissi það síðar,
með hið fegursta og besta
sem aðeins af afspurn ég þekki.
Og ég átti það, átti það allt,
en ég vissi það ekki.
Nú undrast ég það
þar sem einn ég í skugganum vaki
að mín æska er liðin
er horfin og langt mér að baki
á einfaldan hátt
eins og auðfarinn spölur á vegi
þó undrast ég mest
að ég gekk þar og vissi það eigi.
(Guðmundur Böðvarsson)
Sigrún, Fossnesi.
Í dag kveðjum við kæra vin-
konu, Guðbjörgu Bjarnadóttir.
Hún lést 22. ágúst eftir stutta en
illvíga baráttu við krabbamein
aðeins 64 ára gömul. Kynni okk-
ar hjóna eru ekki löng horfi mað-
ur á langa ævi, en þau Ragnar
Ingólfsson bjuggu í Heiðargerð-
inu hér í Skeiða- og Gnúpverja-
hreppi og voru það þau sem við
helst litum til þegar við ákváðum
að setjast að í sveitinni. Ekki
gera sömu mistök og við, að
byggja of lítið því maður þarf að
hafa nóg pláss fyrir sig og sína
sögðu þau og voru farin að huga
að því að stækka sumarhúsið sitt
og flytja alfarið austur.
Leiðir okkar lágu fyrst saman
í gegnum Sigrúnu systur hennar
í Fossnesi sem við höfum þekkt
frá örófi alda. Guðbjörg var
skemmtileg heim að sækja enda
sóttum við í félagsskap þeirra
hjóna þó að heimsóknirnar hefðu
mátt vera miklu fleiri, maður
heldur alltaf að það sé nægur
tími seinna, en svo er ekki endi-
lega eins og sýnir sig nú.
Hestaferðir voru margar farn-
ar saman og sýndi Guðbjörg þar
hvað hún var mikill töffari. Sama
hvað gekk á aldrei bugaðist hún.
Man þegar hestarnir þeirra
hjóna komu hlaupandi einir inn í
Tjarnarver annar með hnakkinn
undir kvið en hinn með hnakkinn
á sínum stað. Vildi til að ég var
vel ríðandi þannig að ég sneri óð-
ara við og fann þau hjón á göngu
kílómetra síðar. Guðbjörg hafði
dottið af baki og Raggi missti
hestinn frá sér þegar hann fór til
að hjálpa henni.
Í ferðum átti hún til að vera
með bók með sér með fróðleik
um það landsvæði sem við riðum
um og las fyrir okkur ferðafélag-
ana. Í vor fórum við í ferð sem
gerð var út frá Stóru-Mörk. Þar
var hún í miklu stuði, en skrapp
þó í trússbílinn og var þar hálfan
annan tíma vegna bakverkjar,
snaraðist svo á bak aftur eins og
ekkert hefði í skorist. Þarna er
líklegt að hún hafi verið farin að
kenna meins síns.
Í brúðkaupi dóttur sinnar
núna 21. júlí lék hún á als oddi
og ekkert bar þá á veikindum
hennar sem nú hafa sigrað hana.
Missir okkar allra er mikill en
hann er hjóm eitt miðað við það
sem Ragnar, Þórunn, Bryndís og
fjölskyldur þeirra þurfa að tak-
ast á við. Sumt er ekki hægt að
skilja. Sendum fjölskyldu hennar
okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Friður Guðs blessi þig, hafðu
þökk fyrir allt og allt.
Sigvaldi og Helga,
Lómsstöðum.
Guðbjörg
Bjarnadóttir
✝ Lilja Randvers-dóttir fæddist í
Miklagarði, Saur-
bæjarhreppi í Eyja-
firði, 20. júlí 1930.
Hún lést á öldrunar-
heimilinu Hlíð á Ak-
ureyri 22. ágúst
2018.
Foreldrar henn-
ar voru Randver
Karles Jóhannes-
son, f. 22.9. 1896 á
Jökli, d. 10.4. 1980, og Hólm-
fríður Ólafsdóttir, f. 18.9. 1906 á
Helgastöðum, Saurbæjarhreppi,
d. 16.1. 1933. Lilja átti eina hálf-
systur samfeðra, Margréti Ólínu,
f. í Hleiðargarði í Saurbæjar-
hreppi 14.5. 1920, d. 18.7. 1936.
Móðir hennar var Marselía Ein-
arsdóttir, f. 29.8. 1891 á Guðrún-
arstöðum í Saurbæjarhreppi, d.
11.2. 1924.
Ingvar, f. 10.7. 1963, og Hans
Liljendal, f. 30.11. 1973.
Karl og Lilja hófu búskap í
Melgerði árið 1951 þar sem þau
tóku við búi Ólafs Jóhannes-
sonar, móðurafa Lilju. Í Mel-
gerði bjuggu þau fyrst í félagi
við Vigfúsínu föðursystur Lilju,
sem þá var orðin ekkja og Aðal-
stein móðurbróður hennar, en
smám saman tóku Karl og Lilja
alfarið við búskapnum þar.
Árið 1960 kaupa þau jörðina
Dvergsstaði af Frímanni Karles-
syni föður Karls og fluttu þangað
það ár. Þar stunduðu þau búskap
þar til þau fluttu til Akureyrar
árið 1992 í Núpasíðu 10D.
Í Melgerði tóku þau að sér tvo
drengi, þá Geirlaug og Ólaf Sig-
fússyni, sem þá höfðu misst báða
foreldra sína, hjónin Sigfús móð-
urbróður Lilju og Vigfúsínu föð-
ursystur hennar. Þá var Randver
faðir Lilju einnig til heimilis hjá
þeim, fyrst í Melgerði og síðan á
Dvergsstöðum allt þar til hann
lést árið 1980.
Lilja verður jarðsungin frá
Akureyrarkirkju í dag, 31. ágúst
2018, klukkan 13.
Lilja flutti árið
1934 með föður sín-
um, hálfsystur,
móðurafa og ömmu,
hjónunum Ólafi Jó-
hannessyni og Guð-
rúnu Sigfúsdóttur
og þremur móður-
bræðrum, þeim Sig-
fúsi, Aðalsteini og
Jóhannesi, frá
Miklagarði í Mel-
gerði í Saurbæjar-
hreppi, en þar stunduðu þau bú-
skap.
Lilja giftist Karli Liljendal
Frímannssyni, f. 17.3. 1924 á
Arnarstöðum í Saurbæjarhreppi,
d. 6.5. 2010. Karl og Lilja giftu
sig 23. júní 1951 og eignuðust
þau sex syni; Gunnar, f. 29.3.
1952, Jón, f. 14.5. 1953, d. 22.4.
1992, Randver Karl, f. 17.11.
1958, Hólmgeir, f. 29.6. 1960,
Lilja Randversdóttir fæddist
í Miklagarði 1930. Móðir sína
missti hún á þriðja ári og ólst
upp hjá föður sínum og fjöl-
skyldu móður sinnar eftir það.
Faðir minn var móðurbróðir
Lilju og leit alla tíð á hana sem
hálfgerða litlu systur sína.
Lilja giftist Karli Liljendal
Frímannssyni og þau bjuggu
fyrst í Melgerði en fluttu síðar í
Dvergsstaði. Lilja og Karl áttu
sex syni, Gunnar, Jón, Randver
Karl, Hólmgeir, Ingvar og
Hans Liljendal. Þau hjón
misstu Jón sviplega 1992 og er
óhætt að segja að það hafi ver-
ið þeim erfitt.
Lilja og Kalli bjuggu mynd-
arbúi á Dvergsstöðum enda var
Kalli fæddur bóndi og sagði
pabbi mér einu sinni að þegar
Kalli kom í Melgerði hefði ann-
að höfuð komið á hverja
skepnu. Á Dvergsstöðum var
allt hreint innan húss sem utan
og ég man að gamall maður
sagði við mig að á Dvergs-
staðajeppanum tylldi ekki skít-
ur, hann stæði alltaf nýþveginn
á hlaðinu. Við komum í Dvergs-
staði oft í mánuði alla mína
æsku og þar var alltaf jafn gott
að koma. Þar var alltaf tekið
jafn vel á móti okkur af þeim
hjónum og drengjunum þeirra.
Ég ætla ekki að gleyma föð-
ur hennar, honum Randver,
sem alltaf tók mér jafn vel og
hinum drengjunum. Ég á enn
safn bóka sem hann batt lista-
vel inn. Eftir að þau fluttu til
Akureyrar kom ég nokkrum
sinnum í Núpasíðuna og þá var
gaman að skoða myndir af fólk-
inu okkar sem Lilja átti tölu-
vert af.
Lilja hafði líka gaman af
þegar ég kom með litlu stúlk-
una mína og hún sá myndir af
langömmu sinni og alnöfnu.
Lilja sagði mér að hún hefði
glaðst þegar hún heyrði að ég
hefði skírt eftir ömmu og hún
hefði í raun skírt elsta dreng-
inn Gunnar í höfuðið á henni.
Eftir að pabbi dó kom ég
nokkrum sinnum til hennar og
þá ræddum við oft um kveð-
skap og hún sagði mér sögur úr
Melgerði.
Síðasta heimsóknin í sumar
var með kvæði sem einhverjir
töldu eftir pabba en mér fannst
ekki líkt hans kveðskap en bar
það undir Lilju sem strax taldi
upp sömu rökin á móti því og
ég hafði hugsað. Ég hafði gam-
an af hvað við vorum sammála.
Lilja var eins og pabbi mjög
tengd sveitinni sinni og mér
hefur stundum dottið í hug það
sem sagt var um einn forföður
okkar: „Enginn elskaði sveitina
sína eins og hann.“
Við hjónin sendum drengj-
unum frá Dvergsstöðum og
öðrum aðstandendum innilegar
samúðarkveðjur.
Sigfús Aðalsteinsson.
Lilja
Randversdóttir
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
HALLDÓR HÖRÐUR ARASON,
Njarðarvöllum 2, Njarðvík,
lést á Hrafnistu, Nesvöllum, miðvikudaginn
22. ágúst.
Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju þriðjudaginn
4. september klukkan 13.
Sendum starfsfólki Hrafnistu Nesvöllum, innilegar þakkir fyrir
einstaka umönnun og frábæra þjónustu.
Stefán Halldórsson
Jón Rúnar Halldórsson Signý Elíasdóttir
Jóhanna Halldórsdóttir Sigtryggur Hafsteinsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær sonur okkar, stjúpsonur, bróðir
og barnabarn,
BIRKIR FANNAR HARÐARSON,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans
miðvikudaginn 22. ágúst.
Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju
í dag, föstudag, klukkan 13.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem
vildu minnast hans er bent á Ljósið, endurhæfingu fyrir
krabbameinsgreinda, www.ljosid.is/minningarkort.
Hörður Guðjónsson
María B. Johnson Jón Axel Ólafsson
Jökull Freyr Harðarson
Hildigunnur Johnson Rafn F. Johnson
Ástkær eiginkona mín og lífsförunautur,
móðir okkar, tengdamóðir og amma,
STEINUNN JÓNA SVEINSDÓTTIR
lífeindafræðingur,
andaðist þriðjudaginn 28. ágúst á
líknardeild Landspítalans.
Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 7. september
klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlega afþökkuð en þeim
sem vildu minnast hennar er bent á Barnaheill og Líf
styrktarfélag.
Reynir Tómas Geirsson
Ásta Kristín Reynisd. Parker Justin Allen Parker
María Reynisdóttir Brynjólfur Borgar Jónsson
og barnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdmóðir og amma,
ÓLÖF KRISTJANA GUNNARSDÓTTIR,
lést þriðjudaginn 14. ágúst.
Jarðarför hefur farið fram í kyrrþey.
Þökkum samhug og veittan stuðning.
Benedikt Helgi Sigfússon
Sigfús G. Benediktsson
Stefanía Ó. Benediktsd. Magnús Baldursson
Halldóra S. Benediktsd. Halldór F. Steinarsson
Ásgeir B. Benediktsson Sandra Örvarsdóttir
María H. Benediktsdóttir Sirius J. Grimm
og barnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
RAGNA ÓLÖF WOLFRAM,
lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, sunnudaginn
5. ágúst. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Ása Pálsdóttir
Anna Wolfram Gunnar Örn Ólafsson
Jenný Wolfram Ágúst Sigurbjörnsson
og fjölskyldur
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda
Morgunblaðinu greinar eru vin-
samlega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Smellt á
Morgunblaðslógóið í hægra
horninu efst og viðeigandi liður,
„Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig
er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagreinUnd-
irskrift | Minningargreinahöf-
undar eru beðnir að hafa skírn-
arnöfn sín en ekki stuttnefni
undir greinunum.
Minningargreinar