Morgunblaðið - 31.08.2018, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 31.08.2018, Blaðsíða 25
Veðrið var ekki upp á það besta, þæfingur á götum og sóknar- nefndarfundur hafði verið boðað- ur síðdegis. Einhverjir hringdu í mig og báðu um að fundinum yrði frestað. Þá var Geir búinn að hafa samband og sagðist koma gang- andi. Elja, kraftur og lífsgleði ein- kenndu Geir og ég mun leitast við að lifa eftir lífsspeki hans, en hann sagði oft: „Lifðu hvert and- artak.“ Orð að sönnu og þess vegna skulum við njóta hvers andar- taks. Ég er óendanlega þakklát fyr- ir að hafa átt Geir að vini og hann mun alltaf eiga stóran hlut í hjarta mínu. „Ég varð glaður, er menn sögðu við mig: Göngum í hús Drottins.“ Þannig hefst 122. sálmur Davíðs. Ég veit að þessi hugsun hljómaði í huga vinar míns hvern helgidag á leið til messu í Dómkirkjunni. Það hefur hljómað með enn meiri gleði er hann yfirgaf jarðlífið og gekk inn í helgidóm himinsins til fundar við föður lífsins og kærleikans. Kæru Gunnar, Elmar, Reynir Tómas og fjölskyldan öll, mínar innilegustu samúðarkveðjur til ykkar. Blessuð sé minning Geirs R. Tómassonar. Oss hverfur daggardropinn smár við dagsins yl, vér vitum samt, að efra er hann áfram til. Og voru lífi lagði braut að ljóssins strönd sá guð, sem kveikti geimsins sól og gaf oss önd. (Einar M. Jónsson) Laufey Böðvarsdóttir. Kveðja frá Karlakórnum Fóstbræðrum Það er áralöng hefð fyrir því að Karlakórinn Fóstbræður syngur fyrir vistmenn elliheimil- isins Grundar að loknum síðustu vortónleikum. Upphaf þess mun hafa verið á þeim tíma þegar Jón Halldórsson, fyrsti söngstjóri kórsins, dvaldi þar síðustu æviár sín, en hann lést í hárri elli árið 1984. Það var eins nú í vor að kórinn ók vestur á Grund að loknum vor- tónleikum að syngja fyrir vist- menn. Þegar kórinn hafði sungið nokkur lög hafði einn söngmanna orð á því að hann sæi ekki betur en að fóstbróðirinn Geir Tómas- son sæti úti í sal. Fór formaður kórsins til hans og fékk það stað- fest að sá væri maðurinn. Varð Geir við beiðni kórmanna og gerði sér lítið fyrir og kom inn í kórinn og söng með honum tvö lög í öðrum tenór, sem var hans rödd. Auðvitað sungum við sam- an Fóstbræðralagið en hitt lagið var ekki síður viðeigandi; gamla sænska þjóðlagið: „Hæ, tröllum á meðan við tórum.“ Stóð öldung- urinn á 102. aldursári teinréttur og glæsilegur og tók undir í söngnum. Þessi óvænta uppá- koma verður lengi í minnum höfð í okkar hópi. Geir Tómasson fylgdi kórnum í aldri, en hann var fæddur árið 1916, sem kórinn er vanur að miða upphaf sitt við. Hann gekk til liðs við Fóstbræður árið 1947 og mun vera síðastur til að kveðja af þeim sem voru samþykktir inn í kórinn í stjórnandatíð Jóns Halldórssonar. Hann söng ekki mjög lengi í starfandi kór en þeim mun lengur með Gömlum Fóstbræðrum og var alla tíð hluti af samfélagi Fóstbræðra og bar hag kórsins fyrir brjósti. Það má telja þá Fóstbræður á fingrum annarrar handar sem hafa verið lengur í söngfélaginu en 71 ár. Hann var með í Ameríkuförinni árið 1989 þegar starfandi kór og Gamlir Fóstbræður ferðuðust saman alla leið að Kyrrahafs- strönd. Karlakórinn Fóstbræður mun í dag syngja við útför Geirs í Dómkirkjunni í Reykjavík sem stóð honum nærri. Má segja að þar ljúki ákveðnum kafla í sögu kórsins, þar sem nú er enginn eftirlifandi Fóstbróðir eldri en söngfélagið. Fyrir hönd Karlakórsins Fóst- bræðra sendi ég fjölskyldu Geirs Tómassonar samúðarkveðjur. Arinbjörn Vilhjálmsson, formaður Karlakórsins Fóstbræðra. Eitt af því dýrmætasta í lífinu eru góðir vinir og gott samferða- fólk. Geir Reynir Tómasson tann- læknir var einn þessara sam- ferðamanna. Hann lést fimmtudaginn 16. ágúst sl. 102 ára að aldri. Þegar rýnt er í æviferil Geirs er hann mikill að vöxtum og glæsilegur og því tæpt á örfáum atriðum. Geir varð stúdent frá MR 1937, tók tannlæknapróf í Köln 1941 og doktorspróf árið eftir. Hann starfaði í Þýskalandi í tvö ár og önnur tvö í Svíþjóð, en kom til Íslands í júlí 1945 með Esju, ásamt 303 öðrum Íslend- ingum. Erilsamt var hjá tann- læknum við heimkomu enda að- eins 14 tannlæknar starfandi í landinu. Geir rak tannlæknastofu í Reykjavík, fyrst á Þórsgötu, svo í Domus Medica og síðast á Sól- vallagötu þar til hann var um átt- rætt. Fyrstu tíu árin fór hann ár- lega í tannlæknaferðir til Stykkishólms að beiðni land- læknis. Geir var mjög virkur í fé- lagstarfi Tannlæknafélags Ís- lands, sat í stjórn félagsins um árabil og formaður 1965-1968. Hann starfaði í hinum ýmsu nefndum og var virkur í norrænu samstarfi og forseti Skandínav- íska tannlæknafélagsins um ára- bil. Æðstu viðurkenningu Tann- læknafélags Íslands hlaut Geir er hann var kjörinn heiðursfélagi 1985. Þann heiður hefur aðeins 17 tannlæknum hlotnast í 90 ára sögu félagsins. Auk annarra við- urkenninga var hann handhafi þýsku heiðursorðunnar Das Verdienstkreuz des Verdienstor- dens der Bundesrepublik Deutschland. Geir ólst upp með einstæðri móður sinni, Kristínu Hansdótt- ur. Í viðtali í Læknablaðinu 2008 um spænsku veikina 1918, hann á þriðja ári, sagðist hann muna ljóslifandi að í nóvember er veik- in var í hámarki veiktist móðir hans og var þungt haldin, en náði heilsu á ný. Á meðan var honum komið fyrir ásamt fjölda barna á barnaheimili í Miðbæjarbarna- skólanum. Geir var mikill trúmaður og starfaði lengi í safnaðarnefnd Dómkirkjunnar og 95 ára flutti hann aðventuhugvekju í kirkj- unni og fór létt með. Við skólaslit MR þegar Geir var 75 ára stúd- ent flutti hann hátíðarræðu og við skólaslit á síðasta ári tók Geir til máls sem 80 ára jubelant. Geir var mikill áhugamaður um spírit- isma og var m.a. formaður Sálar- rannsóknafélags Íslands. Geir var virkur félagi í frímúrarastúk- unni Eddu. Á Jónsmessufundi Eddunnar 2013 flutti hann svo frábært erindi að það var birt í málgagni Reglunnar. Hann var þá var þá elsti Eddubróðir, 97 ára. Tæplega 99 ára að aldri keypti Geir sér nýjan bíl og end- urnýjaði ökuskírteinið árlega. Í viðtali í Tannlæknablaðinu 100 ára segir hann lykilinn að langlífi sínu m.a. vera jákvæðni og fallegt hugarfar. „Mottóið er meðalhófið. Prófa allt sem lífið hefur að bjóða, en vera sjálfum sér trúr og samkvæmur og muna að geyma ekki bros dagsins til morgundagsins “. Við kveðjum nú þennan einstaka samferða- mann og kollega sem gekk hnar- reistur, spengilegur, með nánast óskert andlegt atgervi með bros á vör fram á síðasta dag. Blessuð sé minning Geirs Reynis Tómassonar. Kveðja frá Tannlæknafélagi Íslands, Svend Richter. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2018 25 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 Hreinsa þakrennur, laga ryð á þökum og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Raðauglýsingar Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Lerkihlíð 15, Reykjavík, 50% ehl., fnr. 203-2979 , þingl. eig. Steinþóra Sævarsdóttir, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., þriðjudaginn 4. september nk. kl. 10:00. Álfheimar 34, Reykjavík, fnr. 202-1067 , þingl. eig. Þorbjörg Sveinsdóttir, gerðarbeiðandi Orkuveita Reykjavíkur-vatns sf., þriðjudaginn 4. september nk. kl. 10:30. Köllunarklettsvegur 4, Reykjavík, fnr. 223-2371 , þingl. eig. V63 ehf., gerðarbeiðendur Orkuveita Reykjavíkur-vatns sf.,Reykjavíkurborg, Tryggingamiðstöðin hf., Arion banki hf. og Húsfélagið Köllunarklettsvegi 4, þriðjudaginn 4. september nk. kl. 11:30. Hlíð 39, Kjósarhreppur, fnr. 208-6371 , þingl. eig. Fanney Þorkelsdóttir, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., þriðjudaginn 4. september nk. kl. 13:30. Eyjar 2, Kjósarhreppur, fnr. 208-5809 , þingl. eig. Ásdís Rún Ólafsdóttir, gerðarbeiðandi Kjósarhreppur, þriðjudaginn 4. september nk. kl. 14:00. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu 30. ágúst 2018. Félagsstarf eldri borgara Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðb. kl. 9-16. Opið hús kl. 13-16. Bókabíllinn kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17. Opið fyrir úti - og innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. s: 535-2700. Áskirkja Safnaðarfélag Áskirkju verður með kaffisölu sunnudaginn 2. september eftir messu kl 12. Kaffi/djús og vaffla 500 kr Verið öll velkomin Safnaðarfélag kirkjunnar Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10-10:30. Leikfimi kl. 12:50-13:30. Opið kaffihús kl. 14:30-15:15. Félagsmiðstöð Aflagranda 40 Við erum með Zumba Gold námskeið fyrir 60+ og er það mjög góð og skemmtileg hreyfing. Zumba er á föstudögum kl 10:30-11:30, námskeiðið verður niðurgreitt að hluta af félagsmiðstöðinni en námskeiðið kostar 9.000 krónur og stendur í 8 vikur. Hægt að skrá sig fyrir utan skrifstofurnar á Aflagranda eða í síma 411-2701. Námskeiðið er byrjað og velkomið að koma og taka þátt. Garðabæ Jónshúsi/ félags - og íþróttastarf: 512-1501.Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá 09:30-16:00. Hægt er að panta hádegismat með dagsfyrirvara. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10:00. Félagsvist FEBG í Jónshúsi kl. 13:00. Bíll fer frá Litlakoti kl. 12:20, Hleinum kl. 12:30, og frá Garðatorgi 7. kl. 12:40 og til baka að loknu félagsvist ef óskað er. Gerðuberg Opin handavinnustofa kl.08:30-16:00. Glervinnustofa m/leiðb. kl 09:00-12:00. Prjónakaffi kl. 10:00-12:00. Leikfimi gönguhóps kl. 10:00-10:20. Gönguhópur um hverfið kl.10:30-. Bókband m/leiðb. kl. 13:00-16:00. Kóræfing kl.13:00-15:00. Allir velkomnir. Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Hádegismatur kl. 11.30. Bingó kl. 13.15, 200 kr spjaldið, allir velkomnir. Kaffi kl. 14.30. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45, hádegismatur kl. 11.30, bridge kl. 13, bíósýning kl. 13:15 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50, við hringborðið kl.8.50, boccia kl.10.15 myndlistanámskeið hjá Margréti Zophoníasdóttir kl.12.30. Zumba dansleikfimi kl. 13, allir velkomnir óháð aldri. Haust hátíð Hæðargarðs verður fimmtudaginn 6. september nánari upplýsingar í Hæðargarði 31 eða í síma 411-2790. Korpúflar Gönguhópur kl. 10 í dag gengið frá Borgum og Bridge hópur Korpúlfa kl. 12:30 í Borgum síðan hefst hið sívinsæla vöfflukaffi í Borgum í dag kl. 14:30 sjáumst sem flest hress og kát. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10 – 14. Heitt á könnunni frá kl. 10 – 11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30 – 12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568-2586. Dreifingardeild Morgunblaðsins leitar að fólki 13 ára og eldra, til að bera út blöð. Blaðburður fer fram mánudaga til laugardaga og þarf að vera lokið fyrir kl. 7 á morgnana. Allar nánari upplýsingar í síma 569 1440 eða dreifing@mbl.is Hafðu samband í dag og byrjaðu launaða líkamsrækt strax á morgun. www.mbl.is/laushverfi Vantar þig aukapening? Vantar þig fagmann? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.