Morgunblaðið - 31.08.2018, Side 29

Morgunblaðið - 31.08.2018, Side 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú hefur vald á tilfinningum þín- um alla jafna. Þú missir andlitið þegar þú færð nýjustu fréttir af ættingja. Það þarf sterk bein til að þola góða daga. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú hefur alltaf stefnt einarðlega að markmiðum þínum. Langtímaáætlanir eru nauðsynlegar í ýmsum málum og nú er rétti tíminn til að vinna að þeim. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Samræður við maka ganga stirðlega í dag. Gæluverkefni keyrir þig áfram. Það eru blikur á lofti í ástamál- unum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Reyndu að finna einhvers konar jafnvægi á milli þess sem þú vilt og þess sem aðrir krefjast af þér. Einhver lofar bót og betrun. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Láttu aðra ráða ferðinni í vinnunni í dag. Slakaðu bara á og finndu innri frið því þá leysast málin af sjálfu sér. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Nú er kominn tími til að nýta þekk- ingu sem þú hefur komið þér upp gegnum árin. Þú hefur alltaf átt auðvelt með að vefja öðrum um fingur þér. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú umgengst fólk sem veit virkilega hvað það er að gera. Þú þykist fær í flest- an sjó og ákveður að láta til skarar skríða í vinnunni. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það er engin minnkun að leita til annarra um hjálp, þegar ekkert gengur upp. Unglingarnir taka til hendinni með hundshaus, en þú skalt láta sem þú sjáir það ekki. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Vonir þínar varðandi starfs- frama virðast vera að rætast. Ræddu við þá sem þekkja til og þér mun opnast al- veg nýr heimur. 22. des. - 19. janúar Steingeit Eitthvað á eftir að koma þér verulega á óvart í dag. Leitaðu þér upp- lýsinga og gerðu áætlanir. Hlustaðu á innsæi þitt. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú færð stuðning við málstað þinn úr óvæntri átt og má segja að hann skipti sköpum fyrir þig. Að hika er sama og tapa. 19. feb. - 20. mars Fiskar Vertu á varðbergi gegn orkusugum og hlauptu í burtu ef einhver þeirra verð- ur á vegi þínum. Stilltu þig um að tengj- ast einhverjum sem er alveg ófær um að binda sig. Eins og ég sagði í Vísnahorni í gærvar hausthljóð í hagyrðingum og skáldum um og eftir helgina. Kristjana Sigríður Vagnsdóttir orti á Boðnarmiði og kann svo sannarlega að yrkja undir braghendum hætti og kallar „Sumarkveðju“ og finnst mér raunar að þetta sé barnagæla: Sumarið kveður, sunnan vindur sést ei meir; sofnað hafa blómin blíðu búast þau við roki stríðu. Undir feldinn ætla eg að óska blundinn ætla ég mér nú að njóta. neyðast til og fara að hrjóta Aftur þegar vakna verð og verkin tala villist ég um grasið græna göngu móð svo verði, væna. Allar nætur eru góðar, yndið bjarta, úti standi valtir vindar verði grænir fjallatindar. Skemmtileg orðaskipti urðu á Leirnum á þriðjudaginn og byrjaði með þessari vísu Ármanns Þorgríms- sonar – um þann sem varð „út und- an“: Mat á listum misjafnt er mun það hagyrðinga raun oft af snilld þó ort sé hér enginn fær þó skáldalaun. Fía á Sandi svaraði um hæl: „Það er nú ekkert nýtt, Ármann. Þegar afa mínum var neitað um skáldalaun var ort: Gvend á Sandi sveið í lófann synjað var um skáldstyrkinn. Einn með hnýttum höndum skóf ‘ann himnagrautarpottinn sinn.“ Og síðan spurði Fía: „Man einhver hver orti?“ Og það gerði Ólafur Stef- ánsson: „Þetta er úr fjárlagarímu Al- þingisrímnanna eftir þá Guðmund skólaskáld og Valdimar Ásmundsson (1899-1901)“. Ólafur Stefánsson heldur upp á Ferhendur tjaldarins, Rubáiyát, í þýðingu Einars Benediktssonar og lætur vel að yrkja undir því lagi og þeim hætti: Þótt gráni hár og gerist sviðið hljótt, og gengnu sporin máist furðu skjótt, við augum mínum ennþá birta skín, og enn um stund mun doka hinsta nótt. Ólafi lætur líka vel að yrkja limru ef þannig liggur á honum: Í mannlífsins brekkunni miðri, á Móhúsavöllum þeim syðri, hann til kostanna tók túnjálkinn Hrók, þótt bakeymslin væru ’onum byrði. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Sumarkveðja og skáldalaun Í klípu „ÞÚ SAGÐIST VILJA KRÆKLINGABÍL“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG HELD ÉG KUNNI BETUR VIÐ ÞAÐ BLÁA.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að fá sms á mánudagsmorgni. ÉG VIL AÐ KOMIÐ SÉ FRAM VIÐ MIG SEM DROTTNINGU DROTTNINGU? Í ALVÖRUNNI? ÉG VEIT HVAR FISK ER AÐ FINNA YÐAR HÁTIGN! ÉG BÝST VIÐ AÐ ÞEGAR ÞÚ FÓRST Í VÍKING TIL PARÍSAR HAFIRÐU SÉÐ MIKIÐ AF KONUM Í FLOTTUM, SEXÍ FÖTUM! ENGIN ÞÖRF Á AFBRÝÐI- SEMI! ÉG FÓR EKKI TIL PARÍSAR! ÉG FÓR TIL AFSKEKKTRAR EYJU Í SUÐURHÖFUM ÞAR SEM KONURNAR ERU EKKI Í FÖTUM! Víkverji er lausnarmiðaður ein-staklingur sem kallar ekki allt ömmu sína. En Víkverji er mannlegur og honum fallast stundum hendur þegar búið er að gera einfalda hluti svo flókna að meistaragráða dugir ekki til þess að ráða þokkalega við ein- falt verkefni eins og það að gera sér dagamun og fara í bakarí í því skyni að kaupa eitthvað gott með kaffinu. x x x Lífið var einfalt og ljúft einn sumar-daginn. Víkverji færði sínum heittelskaða maka kaffi út á sólpall og spurði um leið, er ekki lífið dásamlegt? Makinn játti því en bætti við að snúð- ur eða vínarbrauð úr bakaríi myndi gera daginn fullkominn. Þetta fannst Víkverja góð hugmynd og fyrr en varði voru hjónin mætt í stuttubuxum og hlýrabol í hverfisbak- aríið í leit að bakkelsi til þess að full- komna daginn x x x Góðan og blessaðan daginn, við ætl-um að fá einn snúð og eitt vínar- brauð. „Viltu snúðinn með, glassúr, súkku- laði eða karamellu?“ Súkkulaði takk, sagði betri helm- ingurinn brosandi. „Mjúkt eða hart? “ Hart takk fyrir. „Borða hér eða fara með?“ Fara með. „Eitthvað fleira?“ Já, takk, eitt venjulegt vínarbrauð með glassúr svaraði Víkverji tilbúinn með allar upplýsingar eftir að hafa hlustað á yfirheyrslu makans. „Vínarbrauðslengju eða eitt stykki?“ Nú var aðeins farið að þykkna í Vík- verja en hann kann sig og svaraði ró- lega, eitt stykki, takk fyrir. „Borða hér eða taka með?“ Taka með, við ætlum að borða bakkelsið saman í garðinum heima, sagði Víkverji ámátlega og hélt að nú væri spurningaflóðinu lokið. „Borgað saman eða í sitthvoru- lagi?“ Saman, sagði betri helmingurinn ákveðinn og brosti hughreystandi til Víkverja, nú var þessi flókna verslun vonandi að verða búin, eða hvað? „Borga með peningum eða korti?“ vikverji@mbl.is Víkverji Og ég segi yður: Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, kný- ið á og fyrir yður mun upp lokið verða. (Lúk: 11.9) Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is Frábært verð á glerjum Einfókus gler Verð frá kr. 16.900,- Margskipt gler Verð frá kr. 41.900,- Rock Star umgjarðir kr. 11.900,- Gleraugnaverslunin Eyesland býður mikið úrval af gæðagleraugum fyrir krakka á góðu verði – og þú færð frábæra þjónustu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.