Morgunblaðið - 31.08.2018, Page 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2018
Alberto Barbera, listrænn stjórn-
andi kvikmyndahátíðarinnar í Fen-
eyjum sem hófst í vikunni, sætir
harðri gagnrýni fyrir skort á mynd-
um í leikstjórn kvenna á hátíðinni.
Sjálfur lýsir hann dagskrá ársins
sem „einstakri“ en gagnrýnendur
taka ekki undir með honum þar.
Á hátíðinni verða frumsýndar
myndir eftir Mike Leigh, Paul
Greengrass, Coen-bræður, Luca
Guadagnino og Orson Welles. Að-
eins ein mynd af þeim 21 sem keppa
um aðalverðlaun hátíðarinnar er í
leikstjórn konu og er þar um að
ræða The Nightingale í leikstjórn
ástralska leikstjórans Jennifer
Kent, sem vakti mikla lukku með
hryllingsmyndinni The Badadook
fyrir fjórum árum.
„Ef ég veldi aðra mynd inn í
keppnina einvörðungu vegna þess
að henni væri leikstýrt af konu væri
það móðgun við viðkomandi leik-
stjóra … Ég myndi frekar skipta
um starf en láta neyða mig til að
velja inn mynd eingöngu af því að
henni væri leikstýrt af konu og ekki
á grundvelli gæða myndarinnar,“
segir The Guardian eftir Barbera.
Segir hann breytinga þörf, en „það
er ekki í okkar verkahring að
breyta hlutunum.“
Í frétt The Guardian er á það
bent að hlutfall kvenleikstjóra hafi
verið ívið betra á kvikmyndahátíð-
inni í Cannes í maí, en þar voru
þrjár af þeim 17 kvikmyndum sem
kepptu til verðlauna í leikstjórn
kvenna. Á kvikmyndahátíðinni í
Toronto sem hefst í næstu viku er
boðið upp á kvikmyndir í leikstjórn
kvenna á borð við Claire Denis,
Nicole Holofcener, Elizabeth
Chomko, Patriciu Rozema, Nadine
Labaki og Miu Hansen-Løve.
Gagnrýna skort á
kvenleikstjórum
Ljósmynd/Kasia Ladczuk, Nightingale Pictures
Blóðug Aisling Franciosi í kvik-
myndinni The Nightingale.
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
„Þessi hópur hefur verið að fást við
hið smæsta sem er um leið hið
stærsta þannig að það kennir ým-
issa grasa á sýningunni,“ segir
Marta Sigríður Pétursdóttir, sýn-
ingarstjóri sýningarinnar Allra
veðra von sem opnuð verður í
Hafnarborg, menningar- og lista-
miðstöð Hafnarfjarðar, kl. 20 í
kvöld.
Sýningin er önnur af haustsýn-
ingum Hafnarborgar en hin sýn-
ingin, Allt eitt-
hvað sögulegt,
verður sömuleið-
is opnuð kl. 20 í
kvöld. Allt eitt-
hvað sögulegt er
sýning Báru
Kristinsdóttur,
ljósmyndara,
sem hefur um
nokkurra ára
skeið myndað
gamla nælonhúð-
unarverksmiðju sem lokaði nýverið,
eiganda hennar og eina starfsmann-
inn sem eftir var. Báru tekst með
undraverðum hætti að festa horfinn
heim á filmu í sýningunni. Viðtal
við Báru er væntanlegt í helgar-
blaðinu á morgun.
Náið samband við veðrið
Sýningin Allra veðra von fæst við
viðfangsefni sem er nokkuð ólíkt
viðfangsefni sýningar Báru. „Mynd-
listarkonurnar eru að skoða veðrið
og samband einstaklingsins við
veðrið, það er þetta nána persónu-
lega samband sem hvert og eitt
okkar á við veðrið,“ segir Marta.
„Þetta eru alls konar verk, teikn-
ingar, ljósmyndir, innsetningar,
skúlptúrar og vídjóverk.“
Á ári hverju óskar Hafnarborg
eftir tillögum að haustsýningu
safnsins. Valinn er til samstarfs
sýningarstjóri sem leggur fram
áhugaverða tillögu að sýningu. Með
þessu vill Hafnarborg kalla til leiks
nýtt fólk og veita sýningarstjórum
með stuttan feril að baki tækifæri.
Í ár er Marta sá sýningarstjóri.
Sýningin er frumraun Mörtu í sýn-
ingarstjórn en hún hefur þó unnið
við sambærileg verkefni áður.
„Ég hef reynslu af því að vinna
með myndlistarfólki og skrifa fyrir
sýningar. Ég hef til dæmis unnið
mjög mikið með Lilju Birgisdóttur
myndlistarmanni.“
Listakonurnar sem sýna verk sín
á sýningunni leituðu til Mörtu fyrir
tæpu ári síðan. „Í okkar samtali
kviknaði þessi hugmynd um að
vinna með veðrið. Steinunn Lilja
setti fram hugmynd að einu verki
og það varð einhvernveginn kveik-
urinn að þessari sýningu. Það varð
nú reyndar ekkert af því verki og
Steinunn skapaði annars konar
verk. Þetta er búið að vera í ferli
síðan í desember og þetta hefur allt
verið að gerast smátt og smátt,“
segir Marta sem bendir á að það sé
heldur kómískt að þær hafi verið að
vinna að verki um veðrið á sama
tíma og sumarið í Reykjavík hafi
verið nánast sólarlaust.
„Það var auðvitað enginn búinn
að sjá það fyrir að sumarið 2018
myndi verða eitt það versta, veður-
lega séð, í manna minnum á suð-
vesturhorni landsins. Þetta er eig-
inlega búið að vera svolítið fyndið,
að við séum að vinna með veðrið
þegar fólk talaði eiginlega ekki um
neitt annað allt sumarið.“
Kvíði fyrir veðrabreytingum
Öfgafullt veður hefur verið víða
um heim síðustu ár og þetta sum-
arið voru miklir þurrkar í Svíþjóð
og Noregi, að sögn Mörtu tekur
sýningin mið af því og þeirri ábyrgð
sem mannfólkið ber á þessum
breytingum.
„Óvart kom upp að þema sýning-
arinnar er líka svolítill kvíði gagn-
vart þeim breytingum sem margir
finna fyrir í veðri. Við erum öll
meðvituð um þau áhrif sem
mannskepnan hefur á veðurkerfi
jarðarinnar þannig að óhjákvæmi-
lega er það hluti af því að vinna úr
þessu risavaxna viðfangsefni.“
Marta bendir á að ekki sé verið
að finna upp hjólið með því að fást
við þetta viðfangsefni.
„Veðrið hefur haft áhrif á list-
sköpun mannkyns frá upphafi tím-
ans svo það er ekkert nýtt að fást
við þetta en það er af nægu að
taka,“ segir Marta. „Þetta er eitt-
hvað sem hefur líka svo mikil áhrif
á daglegt líf okkar allra. Það er
gaman að vera með myndlistarsýn-
ingu með viðfangsefni sem allir
geta tengt við, fólk á öllum aldri.“
Alþjóðlegar, ungar listakonur
Fimm myndlistarkonur sýna á
sýningunni. Þær starfa undir
merkjum myndlistarhópsins IY-
FAC, International Young Female
Artist Club, sem hefur áður unnið
að tveimur sýningum. Listakon-
urnar eru þær Halla Birgisdóttir,
Ragnheiður Harpa Leifsdóttir,
Ragnheiður Maísól Sturludóttir,
Sigrún Hlín Sigurðardóttir og
Steinunn Lilja Emilsdóttir.
„Verk Höllu Birgisdóttur heitir
„Hæðir og lægðir“. Í verkinu skoð-
ar hún hvernig veðrið endurspegl-
ast í tilfinningalífi manneskjunnar.
Ragnheiður Harpa fæst við sólar-
ljósið svo það er einhver bjartsýni
og fegurð þarna líka. Veðrið hræðir
okkur og getur verið leiðinlegt en
það getur líka verið svo ótrúlega
fallegt,“ segir Marta. Hún bendir á
að Sigrún Hlín sýni stóran skúlptúr
og að Ragnheiður Maísól sýni þjóð-
fræðilegt verk um veðurlestur.
Gefin verður út bók samhliða
sýningunni. „Við fengum Harald
Ólafsson, veðurfræðing, og Eirík
Valdimarsson til þess að skrifa um
veður og um sína sýn á veðrið. Svo
tekur Marteinn Sindri, heimspek-
ingur, viðtöl við myndlistarkon-
urnar þar sem þetta nána og ein-
staklingsbundna samband okkar við
veðrið er rannsakað nánar.“
Manneskjan frammi fyrir veðrinu
Tilfinningar Verkið Hæðir og lægðir eftir Höllu Birgisdóttur. Í verkinu
skoðar Halla hvernig veðrið endurspeglast í tilfinningalífi manneskjunnar.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Veðrið Klippimynd eftir Steinunni Lilju Emilsdóttur sem verður til sýnis á
sýningunni í Hafnarborg. Fimm listakonur sýna verk sín á sýningunni.
Marta Sigríður
Pétursdóttir
Sýning fimm listakvenna í Hafnarborg sem fjallar um samband fólks við veður opnuð í kvöld
Teikningar, skúlptúrar, innsetningar og ljósmyndir eru á meðal þess sem sjá má á sýningunni
NÝ ÞJÓNUSTA
FYRIR ÁSKRIFENDUR
HLJÓÐMOGGI FYRIR
FÓLK Á FERÐ