Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.08.2018, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.08.2018, Blaðsíða 40
SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 2018 DUCA Model 2959 L 215 cm Leður ct. 20 Verð 469.000,- L 241 cm Leður ct. 20 Verð 495.000,- Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla JEREMY Model 2987 L 202 cm Áklæði ct. 86 Verð 415.000,- L 202 cm Leður ct. 30 Verð 559.000,- TRATTO Model 2811 L 207 cm Áklæði ct. 70 Verð 279.000,- L 207 cm Leður ct. 10 Verð 369.000,- SAVOY Model V458 L 223 cm Áklæði ct. 70 Verð 279.000,- L 223 cm Leður ct. 10 Verð 395.000,- ETOILE Model 2623 L 200 cm Leður ct. 25 Verð 429.000,- L 230 cm Leður ct. 25 Verð 465.000,- Viktor Sigurjónsson og Atli Óskar Fjalarsson standa nú að fjármögnun á Karolinafund fyrir stuttmynd sína Lífið á Eyjunni. Þeir hafa unnið markvisst að gerð myndarinnar í átta mánuði og eru nú í undirbúningi fyrir lokatökur. Myndin segir frá hinum tólf ára Braga sem tekst ekki að fóta sig í föstum umgjörðum samfélagsins. Sagan tekur á mörgum mikilvægum málefnum líkt og geðheilsu, vináttu drengja og félagslegri einangrun svo eitthvað sé nefnt. Fjármögnunin fór af stað í síðustu viku og segir Viktor hana hafa farið ágætlega af stað. „Söfnunin verður fram yfir tökur og við erum núna að reyna að vekja athygli á samfélags- og félagsmiðlum. Svo erum við í samstarfi við marga góða styrktaraðila sem standa vel við bakið á okk- ur. Við Atli viljum leggja okkar af mörkum í þessari erfiðu umræðu,“ segir Viktor en nánari upplýsingar má finna á Karolinafund síðu verk- efnisins. Safnað fyrir stuttmynd Viktor Sigurjónsson og Atli Óskar Fjalarsson. Hópfjármögnun á Karolinafund stendur yfir fyrir stuttmyndina Lífið á eyjunni. Stuttmyndin er öll skotin á Seyðisfirði. Þorsteinn Pálsson forsætisráð- herra og Ronald Reagan Banda- ríkjaforseti prýða forsíðu Morg- unblaðsins 11. ágúst 1988. Þjóðarleiðtogarnir funduðu og snæddu hádegisverð í Hvíta hús- inu þar sem drjúgur tími gafst til að ræða alþjóðamál og einnig um menningar- og viðskiptamál ríkjanna. Þorsteinn vænti að það yrði hægt að skoða nánar einstök atriði varðandi tollamál og við- skipti landanna en tók hins vegar fram að ekki væri verið að ræða um fríverslunarsamning eins og þann sem Bandaríkin og Kanada hafa gert. Ronald Reagan sagði að Bandaríkin hefðu ágætt sam- komulag við Íslendinga um hval- veiðar, sem Bandaríkjastjórn kynni mjög vel að meta, en hann var spurður að því hvort Banda- ríkjastjórn ætlaði að koma í veg fyrir hvalveiðar Íslendinga. Í fylgd Þorsteins var Geir H Haarde, alþingismaður, sem fékk sjálfsævisögu Reagans að gjöf að fundi loknum eftir að hann tjáði Bandaríkjaforseta að hann hefði ekki lesið hana. GAMLA FRÉTTIN Á fundi með Reagan Þorsteinn Pálsson og Ronald Reagan að loknum fundi sínum í Hvíta húsinu. Morgunblaðið/RAX ÞRÍFARAR VIKUNNAR Jeff Daniels leikari Colm Meany leikari Erik Hamrén þjálfari karlalandsliðsins í fótbolta

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.