Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.08.2018, Blaðsíða 24
Íþróttafræðingurinn SteinunnLeifsdóttir hefur unnið á Hrafn-istu í Reykjavík undanfarin tólf
ár og líkar vel. „Þetta er dásamlegur
og gefandi vinnustaður. Þegar mað-
ur er orðinn hluti af heildinni þá líð-
ur manni rosalega vel.“ Steinunn
sinnir meðal annars styrktarþjálfun
fyrir hóp fólks sem býr í íbúðum um-
hverfis Hrafnistu. Hópurinn hittist
tvisvar í viku og æfir í um það bil
klukkutíma í hvert skipti.
„Við byrjum venjulega á stóla-
leikfimi í tuttugu mínútur þar sem
við gerum styrktar- og liðleika-
æfingar. Þá situr hópurinn, en við
tökum líka stundum léttar standandi
æfingar með eigin þunga. Eftir
stólaleikfimina er svo er farið í
tækjasalinn þar sem fólk ræður
hversu lengi það tekur á því,“ segir
Steinunn og bætir við að fólk verði
að finna hvar mörk þess liggja.
„Lykilatriðið er að þú mátt finna fyr-
ir þessu en þú mátt ekki finna til.
Það er rosalega mismunandi hvar
mörk fólks liggja og það má ekki ýta
of mikið við fólki því maður sér ekki
alla kvillana. Ég hef lent í því að
þrýsta of mikið á einstakling þegar
ég var of upptekin af árangrinum
frekar en raunverulegri getu við-
komandi.“
Frískandi félagslíf
Félagsskapurinn er mikilvægur
hluti af tímunum. „Það tekur stund-
um svolítinn tíma að vilja koma og
fólk þarf oft hvatningu til að mæta
þegar það þekkir ekki aðstæður. Það
getur verið erfitt að byrja á ein-
hverju nýju, en þegar fólk er komið
inn í þetta þá er auðvelt að halda
áfram og bæta sig.“ segir Steinunn.
„Vellíðan er líka gríðarlega mik-
ilvæg. Við leggjum mikið upp úr því
að fólki líði vel og að það sé gaman
að koma hingað – að þetta sé ekki
bara kvöð. Þetta er eins með fólk á
öllum aldri. Við getum ekki haldið út
í líkamsrækt ef okkur finnst það
leiðinlegt eða óþægilegt.“
Steinunn segir að hreyfing á efri
árum sé mjög mikilvæg fyrir athafn-
ir daglegs lífs. „Það skiptir miklu
máli að þú náir að bjarga þér. Þegar
komið er á efri ár getur verið mjög
erfitt að gera einfalda hluti eins og
að teygja sig upp í skáp eða klæða
sig í sokka, eða jafnvel standa upp á
stól. Eitt af markmiðum okkar er að
fólk geti verið eins lengi og hægt er
heima hjá sér.“
Mataræði er líka mikilvægur þátt-
ur. „Þegar fólk er komið á þennan
aldur þá minnkar ekki vítamín- og
næringarefnaþörfin en orkuþörfin
er minni. Þá er orðið miklu vanda-
samara að ákveða hvað er gott að
borða.“
Hreyfingin eykst
Steinunn segir að Íslendingar á efri
árum séu almennt að verða duglegri
að hreyfa sig. „Fólkið sem er að
koma inn núna er uppteknara af því
að fá reglulega hreyfingu en það var
fyrir tíu til tólf árum og fleiri koma
inn sem hafa áður stundað reglulega
líkamsrækt. Þó vantar mikið upp á
þar sem margir glíma við ýmiss kon-
ar vandamál sem gera þeim erfitt að
koma út og taka þátt.“
Kennsluaðferðir hafa einnig
breyst „Tækjasalurinn er orðinn
miklu stærri hluti af starfinu núna
en hann var því það er mun meiri
áhersla á styrktarþjálfun sem með-
ferð en hún styrkir, hjarta og æða-
kerfið, bætir meltinguna, eflir stoð-
kerfið og eykur andlega vellíðan,“
segir Steinunn.
Steinunn Leifsdóttir hefur unnið á
Hrafnistu frá árinu 2006.
Hreysti á Hrafnistu
Steinunn Leifsdóttir er
ein þeirra sem leiðir
hópa í styrktarþjálfun á
Hrafnistu í Reykjavík.
Hún segir hreyfingu
mjög mikilvæga fyrir
daglegt líf á efri árum
Arnar Tómas Valgeirsson
arnart@mbl.is
Steinunn leiðir hópinn í stólaleikfimi
og mætingin var góð í veðurblíðunni.
Morgunblaðið/Hari
Steinunn segir mikilvægt að hver og einn viti hvar mörk hans liggja.
HEILSA Regluleg hreyfing á eldri árum dregur úr tapi á vöðva-og beinmassa og eykur jafnvægi, sem dregur úr líkunum
á því að maður detti.
En hvað ef ég dett?
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.8. 2018
Láttu birtuna ekki trufla þig
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is
PLÍ-SÓL GARDÍNUR
Frábær lausn fyrir hallandi og óreglulega glugga
Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu
Íslensk framleiðsla eftir máli
Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku
OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18
alnabaer.is