Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.08.2018, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.08.2018, Blaðsíða 22
MATUR Ólífuolía er góð til matargerðar en það er ekki síður gott að notahana út á salatið. Einfalt grænt salat getur orðið að dýrindis máltíð með því einu að hella smá olíu yfir og krydda með salti og pipar. Olía á salatið 22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.8. 2018 Ég er búin að vera í þessumbransa síðan pabbi var meðArgentínu steikhús, ég fæddist eiginlega þar,“ segir Klara Ósk- arsdóttir og hlær. Hún er dóttir mat- reiðslumeistarans Óskars Finnssonar og er nú veitingastjóri og meðeigandi á Gott í Reykjavík. Hún segist vera í vinnunni frá morgni til kvölds og vill hvergi annars staðar vera. Þetta er mín ástríða „Við fluttum til Bretlands þegar ég var tólf ára og ég er bara nýkomin heim en ég vann í veitingageiranum í London í mörg ár,“ segir hún. „Í London var ég aðstoðarveitingastjóri á nokkrum stöð- um. Ég er ekki í eldhúsinu en þetta er mín ástríða. Pabbi og Siggi í Gott (Sig- urður Gíslason) hafa þekkst lengi og við erum bara eins og ein stór fjöl- skylda,“ segir Klara, en staðurinn í Reykjavík er útibú, ef svo má segja, af veitingastaðnum Gott í Vestmanna- eyjum. Eyjamenn duglegir að koma Gott í Reykjavík opnaði 1. mars á þessu ári og er í sama húsi og Konsulat hótel í Hafnarstræti. Klara segir stað- inn hafa gengið vel alveg frá opnun, en viðskiptavinir eru bæði Íslendingar og útlendingar. Eyjamenn eru sér- staklega duglegir að koma. „Það var ótrúlegt að þegar við opn- uðum voru um 80% gestanna Eyja- menn. Það þekktust allir! Gamlir Eyja- menn koma gjarnan og líka þeir sem búa í Eyjum og eru í fríi í Reykjavík,“ segir Klara. Jákvæðni og bros Klara segir staðinn sniðinn að hinum sem er í Eyjum, enda óþarfi að breyta því sem gott er. „Þetta er sama koncept og sami matseðill, en staðurinn er allt öðruvísi innréttaður. Margir koma aftur og aft- ur því fólki líður vel af þessum mat því hann er svo ferskur og góður. Trufflu- borgarinn er mjög vinsæll,“ segir Klara og blaðamaður getur vottað að þessi borgari er einn sá besti í bænum. Síðan Klara byrjaði að vinna á veit- ingastöðum hefur faðir hennar gefið henni mörg góð ráð. „Kannski er besta ráðið sem hann hefur gefið mér er að vera jákvæð og brosa. Og það hefur hjálpað mér ótrú- lega mikið.“ Eyjamenn sækja í gottið Margir þekkja veitingastaðinn Gott í Vest- mannaeyjum en nú þarf ekki að sækja langt yfir skammt því Gott má nú finna í Reykjavík. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Morgunblaðið/Ásdís Klara Óskarsdóttir tekur brosandi á móti gestum á Gott í Hafnarstræti. Omega 3 Liðamín Hyal-Joint® vinnur gegn stífum liðum og viðheldur heilbrigði þeirra. Með þér í liði Alfreð Finnbogason Landsliðsmaðu attspyrnu „Tækifærið er núna.“ r í kn Registered trademark licensed by Bioiberica Fyrir tvo 2 stk 140 gr hamborg- arar með 20% fitu 1 box sveppir salt pipar Skerið sveppina í fernt og hellið smá ol- íu yfir og bakið í ofni við 200°C í 12 mín. Takið helmingin af sveppunum og mauk- ið fínt. Takið hinn helminginn og gróf- saxið og blandið sam- Smakkið til með salti, sítrónusafa og trufflu- olíu. Steikið hamborg- arana á pönnu eða grillið í ca 3 mínútur á hvorri hlið. Setjið þá á gott hamborgara- brauð með salatblaði. Setjið sveppamaukið ofan á og þar næst trufflumæjónesið. Berið fram með góðum ofnbökuðum kartöflum. an, smakkið til með trufflu olíu, salti og pipar. TRUFFLUMÆJÓ 2 eggjarauður 200 ml matarolía 1 msk truffluolía 1 msk sítrónusafi Þeytið eggjarauður í hrærivél í 2 mínútur og bætið matarolíu varlega saman við þangað til fallegt mæjónes myndast. Truffluborgari

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.