Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.08.2018, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.08.2018, Blaðsíða 34
LESBÓK „Ég kaus að lýsa verkin með litum og fá mína litadýrð hingað inn– baða verk Ásmundar dýrðarljóma,“ sagði Hrafnhildur Arn-ardóttir Shoplifter þegar hún gerði Innrás í Ásmundarsafn á dögunum. Síðasti dagur þess dýrðarljóma er á sunnudaginn. Úr dýrðarljóma Shoplifter 34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.8. 2018 Hólar í Hjaltadal: Árið 1625 skrifaðibiskupsdóttirin Halldóra Guðbrands-dóttir (Þorlákssonar) dönskum stjórnvöldum bréf þar sem hún biður um stað- arforráð á biskupsstólnum í veikindum föður síns. Bréfið er það elsta, sem varðveist hefur með undirskrift íslenskrar konu Flórens á Ítalíu: Árið 1625 varð tónskáldið og söngkonan Francesca Caccini fyrst kvenna í heiminum til að semja óperu. La liberazione di Ruggiero dall isola di Alcina nefnist hún, á íslensku Frelsun Ruggiero frá eyju Alcinu. Þótt konurnar tvær hafi hvor með sínum hætti markað spor í söguna, virðast þær fátt annað hafa átt sameiginlegt en að vera báðar annálaðir kvenskörungar og uppi á sama tíma. Hvort tveggja bréfið og óperan ásamt sálmum úr Grallaranum, messubók Guð- brands biskups frá árinu 1594, eru efniviðir tónverksins Bréf Halldóru Guðbrandsdóttur – 1625 – tvær konur, sem Kammerhópurinn ReykjavíkBarokk frumflytur kl. 11, sunnu- daginn 12. ágúst í Hóladómkirkju á Hólahátíð í Hjaltadal og endurtekur svo leikinn í Hjalla- kirkju í Kópavogi kl. 20 þriðjudaginn 14. ágúst. „Við teflum konunum saman og syngjum til skiptis á íslensku og ítölsku. Samtal íslenskrar konu á þessum tíma við dönsk stjórnvöld er af- ar áhugavert. Og þar sem við fengum styrk frá afmælissjóði fullveldishátíðarinnar fannst okk- ur fara vel á að láta dagskrána hverfast um Halldóru og þetta ákveðna bréf,“ segir Diljá Sigursveinsdóttir, fiðluleikari, sem ásamt Guð- nýju Einarsdóttur, organista, er hugmynda- smiður og listrænn stjórnandi verksins. Halldóra hefur áður verið Kammerhópnum ReykjavíkBarokk innblástur enda kom hún við sögu í tónleikhúsi sem hópurinn efndi til í fyrra í tilefni 500 ára afmælis siðaskiptanna í Evrópu. „Það var að vísu í allt öðru samhengi, en okkur Guðnýju fannst við ekki vera búnar að gera Halldóru nægileg skil. Hún togaði okk- ur áfram í leit að meiri heimildum. Við vildum Halldóru í fyrsta sæti.“ Félagar þeirra í hljómsveitinni voru hjartanlega sammála, en átta af tólf taka þátt í tónleikhúsinu að þessu sinni. Auk þeirra Diljár og Guðnýjar, spila og syngja þau Jóhanna Halldórsdóttir, einsöngkonan í hópnum, Hildi- gunnur Halldórsdóttir og Íris Dögg Gísladótt- ir, fiðluleikarar, Aðalheiður Jónsdóttir, blokk- flautuleikari, Sigurður Halldórsson, sellóleikari, og Arngeir Heiðar Hauksson, lútuleikari. Dömukór og raftónmyndir „Með hljómsveitinni er Þórey Sigþórsdóttir sem er allt í senn handritshöfundur, leikstjóri, leikkona og sögumaður í sýningunni. Við fáum líka til liðs við okkur sex ungar stúlkur úr Dömukórnum Áróru, sem hafa verið í kór frá unga aldri og syngja afskaplega fallega. Einn- ig verðum við með raftónmyndir eftir Kristínu Lárusdóttur,“ segir Diljá og útskýrir að raf- tónlistarkonan semji lítil tónverk út frá text- unum og stemmningunni í sýningunni og að þau komi inn á milli í verkinu um Halldóru. „Þannig mætast andstæðurnar og kallast á í tvenns konar hljóðheimum. Annars vegar í lágstemmdri tónlist aftur úr öldum, sem við í ReykjavíkBarokk leikum á barokkhljóðfæri með girnistrengjum og hins vegar raftónheimi nútímans.“ Kammerhópurinn var stofnaður 2012 og samanstendur af hljóðfæraleikurum sem leika á upprunahljóðfæri. Markmið hópsins er að auka veg barokktónlistar og vera gleðigjafi í íslensku tónlistarlífi. „Flest okkar eru tónlist- arkennarar og svo spilum við saman þegar við höfum tíma og orku,“ segir Diljá. Þótt sálmar úr Grallaranum hafi áður verið fluttir opinberlega, m.a. á tónleikum Reykja- víkBarokks á siðbótarafmælisárinu í fyrra, tel- ur hún ólíklegt að óperan eftir Caccini hafi nokkurn tímann verið tekin til flutnings hér á landi, enda hafi þurft að sérpanta nóturnar. Spurð um skilgreiningu á tónleikhúsi eins og hún kallar flutninginn á verkinu á sunnudag- inn, segir hún tónleikhús vissulega opið hugtak og að sama skapi svolítið öðruvísi viðburður en tónleikar. „Í stuttu máli hugsum við okkur tón- leikhús sem vettvang þar sem við segjum sög- ur á leikrænan hátt, sköpum ákveðin hughrif með tónlistinni og umhugsun með textanum.“ Kammerhópurinn verður þó í sínum hefð- bundnu, látlausu klæðum, en Diljá útilokar ekki að Þórey birtist sem Halldóra í fullum skrúða líkt og tíðkaðist á sautjándu öld. Engar smákonur Þær Diljá og Guðný fara ekki í launkofa með að hafa lagt upp með að gera konum hátt undir höfði; hafa skýrt kvennaþema í tónverkinu. Og Diljá segir enga tilviljun að þær völdu að heiðra þær Halldóru og Caccini. „Halldóra var hægri hönd föður síns og hafði áhrif á gang mála á ýmsum sviðum. Mér finnst ekki ólíklegt að hún hafi hjálpað pabba sínum að prenta og lesa yfir sálmatextana í Grallaranum og sungið þá síðan í kirkjunni. Þá var Caccini heldur engin smákona. Enda segir það sína sögu að hún var hæst launaði tónlistarmaðurinn hjá Medici-ættinni, valdamestu ættinni í Flórens á þeim tíma. Ég er mjög spennt og finnst gaman að fá tækifæri til að láta ljós þessara löngu liðnu kvenna skína. Í rauninni er klassíski tón- listarheimurinn alltaf að fást við sagnfræði. Við erum oftast að spila gamla tónlist eftir löngu látin tónskáld. Á tónleikunum sem við helgum Halldóru Guðbrandsdóttur fáum við hins vegar nýstárlegt og svolítið annað sjón- arhorn með því að túlka fjögurra alda gamalt handrit á Þjóðskjalasafni,“ segir Diljá að lok- um. En ein spurning áður en hún hverfur á braut: Af hverju er messubók Guðbrands Þor- lákssonar kölluð Grallarinn? „Hún kallast Graduale á latínu, sem þýðir einfaldlega messubók, en Íslendingar gáfu henni nafnið Grallarinn með stóru G, eins og hún hefur verið kölluð æ síðan.“ ReykjavíkBarokk, Dömu- kórinn Áróra og Þórey Sigþórsdóttir fremst í flokki í hlutverki Halldóru, henni á vinstri hönd eru Jóhanna Halldórsdóttir, Guðný Einarsdóttir og Diljá Sigursveinsdóttir. Morgunblaðið/Kristinn Magnúss Grallarinn og kvenskörungarnir Kammerhópurinn ReykjavíkBarokk stendur fyrir tónleikhúsi í Hóladómkirkju á Hólahátíð þar sem verkið Bréf Halldóru Guðbrandsdóttur – 1625 – tvær konur, verður frumflutt sunnudaginn 12. ágúst. Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is ’ Í stuttu máli hugsum viðokkur tónleikhús sem vett-vang þar sem við segjum sögur áleikrænan hátt, sköpum ákveðin hughrif með tónlistinni og um- hugsun með textanum.“

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.