Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.08.2018, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.08.2018, Blaðsíða 15
uð þið þegar ég var lítil og ein? Ég er búin að bæla þetta svo lengi niður, en núna er ég að grafa þetta upp aftur og átta mig á þessu. Ég sé mig alveg í þessum krökkum í dag og er rosalega stolt af þeim. Þannig að það var mjög góð tilfinning að finna allt í einu 20 ár- um seinna að ég er ekki eina mann- eskjan sem líður svona. Þegar kemur að þessari kynja- byltingu þá er ég varfærnislega bjartsýn á framtíðina. Eftir fyrri heimsstyrjöldin var rosaleg kynja- bylting og það var verið að hjálpa trans fólki í Þýskalandi, mjög svipað því sem er að gerast í dag. Og svo allt í einu kom fasisminn og allt fór í bælingu aftur. Fasismi er aftur í uppsiglingu í heiminum, ekki síst ef maður horfir til Bandaríkjanna. Ís- lendingar eru opnir og það eru rosa góðir hlutir að gerast hér á landi þar sem fólk fær að vera það sjálft, en við verðum að vera á verði við halda því til streitu, við verðum að passa þetta, því það er ekki sjálfgefið að þetta haldi áfram að vera svona. Trans maður/kona: Fólk sem var úthlutað röngu líkamlegu kyni við fæðingu miðað við kynvitund þess. Flæðigerva: Notað um kynvit- und þeirra sem upplifa knvitund sína flæðandi (e. gender-fluid) Sís: Notað yfir alla þá sem eru ekki trans. Kynsegin: Notað yfir einstak- linga sem skilgreina sig ekki bara karlkyns eða kvenkyns. Kynleiðrétting: Langt ferli; röð skurðaðgerða og horm- ónagjafa til að breyta líkama einstaklings svo hann sam- ræmist kynvitund hans. Brjóstnám: Aðgerð þar sem brjóst eru minnkuð eða fjar- lægð. „Íslenskan er svo kynjuð, að um leið og þú ferð að tala um sjálfan þig, ertu að kynja þig í hverri einustu setningu,“ segir Elí. kærasta. Það er svolítið erfitt, því fólk spyr hvaða máli þetta skipti þar sem ég sé kynsegin, en ég á rosalega erfitt með að vera elskuð sem kvenmaður. Ég þurfti að útskýra sérstaklega fyrir kærustunni minni, sem er tvíkyn- hneigð, að ef við förum alveg niður í dýpstu tilfinningar sem hafa ekkert með líkamlegt atgervi eða kyntjáningu að gera, þá er ekki eins að vera hrifin af stelpu og strák. Ég upplifi þá tilfinn- ingu sterkt og ég er ekki kvenmaður. Ég er búin að reyna það í mörg, mörg ár, en það gengur bara ekki upp. Fjölskyldan mín var rosalega opin þegar ég kom út fyrst. Ég skrifaði þeim öllum mjög fínt bréf og þau spurðu hvað ég vildi láta kalla mig. Ég held að sumir hafi ekki tekið eins mik- ið mark á mér af því að ég ætla bara að vera hún í bili. Ég á mjög erfitt með breytingar og vil að þær gerist hægt og rólega, og þar sem ég þarf að hugsa mig um held ég að margir hafi hugsað að þetta væri bara tímabil hjá mér. En ef svo er þá hefur það varað síðan ég var fimm ára. Kynjabyltingin er heldur ekki tískubylgja eins og sumir hafa vilja halda, mér leið svona löngu áður en ég vissi hvað þetta var. Ég lék alltaf stráka sem barn, og sem unglingur fór mig að gruna að ég væri strákur í stelpulíkama. En mér fannst það samt ekki passa af því að ég var með svo kvenlegan líkama, ég hlyti að verða rosa lélegur strákur! Ég var mikið að pæla í þessu og var eiginlega komin út, en hrökklaðist aftur inn í skápinn. Ýmislegt kom upp sem var í mótstöðu við þetta, ég varð þunglynd og átti mjög erfitt. Það var heldur ekkert fræðslustarf í gangi og allir sem ég hitti voru trans konur, ég var eini trans karlinn, svo ég lét mig bara hverfa. Síðan var ég svo heppin að ég hálfpartinn villtist niður í Sam- tökin ’78 á félagsfund fyrir um tveim- ur árum. Allt í einu var komið fullt af krökkum um tvítugt með kynjabylt- ingu í gangi og ég fékk bara stjörnur í augun! Um leið hugsaði ég: hvar vor- ’ Allt í einu var komiðfullt af krökkum umtvítugt með kynjabyltingu ígangi og ég fékk bara stjörnur í augun! Um leið hugsaði ég: hvar voruð þið þegar ég var lítil og ein? mjög skilningsríkir en mér finnst stimpillinn að við séum eitthvað ógeðsleg, athyglissjúk og að við séum að þykjast mjög erfiður að díla við. Ég hef lengi verið að hugsa um hvaða skref ég vil taka; hvort ég vilji fara í skurðaðgerð eða hormóna- meðferð, því það er mjög mikil tog- streita að vera svona. Í smátíma var ég mjög langt niðri af því að mér leið eins og það væri sama hvaða ákvörð- un ég myndi taka, það yrði ranga ákvörðunin; hvort sem ég myndi halda öllu venjulegu eða breyta ein- hverju. Niðurstaðan er að ég ætla ekki að gera neitt í bili. Ég vil alls ekki verða karl með skegg, frekar bara strákur, og verð sjálf skotin í kven- legum strákum. En ef ég geri eitt- hvað, þá mun ég bíða þangað til ég eignast barn. Því konan í mér, vífið, vill mjög mikið eignast barn eins og kona, með kvenlíkama og nota brjóstin í það sem þau eiga að vera notuð. Ég hef samt hugsað út í brjóstaminnkun, sem væri eitt það vægasta sem ég gæti gert, en ég vil ekki taka áhættuna á að geta ekki framleitt mjólk fyrir barnið mitt, svo ég ætla að bíða með allar að- gerðir. Persónufornöfnin: hán, hé og hín eru notuð hérlendis, eink- um af kynsegin fólki. Orðin taka oftast með sér hvorug- kyn, en það er persónubundið hvað fólk kýs í þeim efnum. ’Það er margir mjög skilnings-ríkir en mér finnst stimpillinnað við séum eitthvað ógeðsleg, at-hyglissjúk og að við séum að þykj- ast mjög erfiður að díla við. „Konan í mér, vífið, vill mjög mikið eignast barn eins og kona,“ segir Hrafnsunna. 12.8. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.