Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.08.2018, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.08.2018, Blaðsíða 19
hennar að hljóma flóknar. Til að ráða vísbend- ingar eins og „lánir palla einhvern veginn til að fá nálhús“ og „ sýla þýska þjóð með hrakn- ingum,“ þarf ekki bara íslenskukunnáttu. Það þarf rökhugsun og töluverða æfingu. Alveg sama hversu fær íslenskufræðingur sest niður með krossgátu Ásdísar er ólíklegt að sá hinn sami viti lausnarorðin „nálarprilla“ og „ísa- volk,“ án þess að hafa æft krossgátuhæfileika. Ásdís segir þó, að þrátt fyrir að hæfileikinn til að leysa krossgátu líkt og þá sem hún gerir krefjist meira en bara íslenskukunnáttu, sé hún gríðarlega mikilvæg. „Þú getur ekki leyst krossgátu án þess að þekkja tungumálið, það er ekki hægt. Þú þarft að þekkja uppbyggingu málsins, hvar sér- hljóðar koma, hvar samhljóðar koma. Á bakvið það er svo mikil þekking. Fyrir þessar kross- gátur þarftu að hafa mjög góða þekkingu á tungumálinu af því að það er leikið það mikið með tungumálið.“ Mikil vinna við hverja gátu Á bakvið hverja krossgátu sem Ásdís semur felst mikil vinna. „Ég reyni að finna einhver skemmtileg orð, eitthvað sem mér finnst sniðugt. Svo er ég með forrit sem heldur utan um formin og svo reyni ég að byggja í kringum þessi orð. Fyrst vinnurðu svolítið handavinnuna við að koma forminu saman. Þú reynir að velja orð sem eru líkleg til þess að vera skemmtileg. Ef þú sérð skemmtilega eða frumlega vísbendingu strax, þá skrifarðu hana niður.“ „Svo þegar formið er komið, þarftu að fara að leggjast í vísbendingavinnuna, sem er kannski mesta vinnan. Svo geturðu lent í því að þú komir ekki saman vísbendingu fyrir eitt- hvert orð. Þá gætirðu þurft að taka það orð út og breyta krossgátunni. Ég þarf í raun og veru að handvelja hvert einasta orð. Þetta er tölu- verð vinna.“ Kvartanir voru algengar Þrátt fyrir þá miklu vinnu sem fer í hverja krossgátu þekkir Ásdís það vel að fá símtöl fá ósáttu fólki. „Heldur betur, en það eru allir hættir því núna. Guði sé lof. Það er náttúrlega það allra versta sem þú gerir mér með þessu viðtali, nú gæti fólk farið að hafa samband við mig aftur,“ segir Ásdís kímin. „Það voru athugasemdir við vísbendingar og annað slíkt. Stundum geri ég mistök, ég er ekki Guð frekar en aðrir. Stundum var verið að benda mér á mistök, stundum skildi fólk ekki vísbendinguna og hélt að það væru mistök. Stundum var verið að hafa samband af því að krossgátan þótti annað hvort of létt eða of þung. Ef ég fæ kvartanir þá fæ ég yfirleitt kvartanir yfir því að sama krossgátan sé of létt og of þung. Þannig að ég veit ekkert hvað ég á að gera.“ Gæti alveg dáið út Ásdís er ekkert allt of viss um að krossgátan muni standast tímans tönn. „Ég held bara að krossgátan gæti alveg dáið út. Af því að þetta er svo mikið eldra fólk og ég verð svosem ekkert mikið vör við aukningu hjá yngra fólki. Þannig að kannski deyr þetta út. Kannski gæti einhver komið eftir 100 ár og endurvakið þetta,“ segir Ásdís. „Þú finnur hvergi annarsstaðar svona af- þreyingu. Þetta er eitthvað sem verður að handgera svo þetta sé gott. Þetta er þessi handavinna í tölvuumhverfinu. Tölvur geta gert margt fyrir okkur en ákveðið handverk geta þær ekki leyst. Kannski er list og hand- verk að verða mikilvæg á Íslandi út af tölv- unum. Það er svo lítið mál að búa til hluti vél- rænt og búa til hluti sem eru eins, þannig að öll hönnum verður merkilegri. Á meðan hér í gamla daga var allt gert í höndunum. Disk- urinn þinn var gerður í höndunum, askurinn þinn var gerður í höndunum. Handverk var venjulegt, það var hluti af daglegu lífi, núna er það eitthvað sérstakt nú er þetta eitthvað sem þú vilt kaupa.“ Halldór Ármannsson hefur reglulega leyst krossgátu Sunnudagsmoggans síðan Ásdís Bergþórsdóttir hóf að gera hana árið 1998. Hann man vel eftir fyrstu vísbendingunni sem kveikti áhugann. „Skýringin var svona „í túni sveiflast mari- júana“ og svarið var „vallarsveifgras“ sem er ein helsta tegundin af grasi sem er hér í tún- unum. Þá er það í túni sem er vallar, sveif er sveiflaðist og gras er marijúana. Vallarsveif- gras. Ég hugsaði með mér að þetta væri eitt- hvað sem væri gaman að eiga við.“ Hann viðurkennir að þjálfunin sem hann hefur náð með árunum nýtist honum vel, en það að leysa krossgáturnar sé þó yfirleitt nokkuð tímafrekt. „Þetta er misjafnt hjá mér. Ég myndi segja að ég væri oft svona þrjá til fjóra tíma, allt í allt að klára eina gátu. En ég geri hana ekki alla í einu. Ég byrja aldrei á laugardagsmorgnum. Ég nenni ekki að fara niður og ná í blaðið,“ segir Halldór og hlær. „Ég sest oft niður svona um þrjú, fjögur og tek klukkutíma eða eitthvað svoleiðis. Og svo aftur um kvöldið áður en ég fer að sofa. Ég er hálftíma til klukkutíma í einu, í þrjú skipti á dag. Eitthvað svoleiðis, með báðar gáturnar. Þá er ég í mesta lagi í átta til tíu tíma með báð- ar gáturnar og í minnsta lagi svona sex tíma,“ segir Halldór sem leysir bæði gátuna í Sunnu- dagsmogga og í Fréttablaðinu. Þrátt fyrir alla reynsluna segir Halldór þó að það sé alltaf jafn erfitt að byrja fyrsta orðið í hverri krossgátu. „Fyrsta orðið er erfiðast. Ég þarf yfirleitt að fara í gegnum mörg orð þangað til ég finn eitt, en ég get verið heillengi að finna fyrsta orðið. Vísbending í Kenýa Halldór er efnafræðingur að mennt og hefur starfað við jarðhita í yfir 40 ár. Í starfi sínu hefur hann ferðast um heim allan og lentu hann og vinnufélagi hans í skemmtilegu atviki eitt skipti þar sem þeir voru staddir í Kenýa. „Við erum nokkrir í vinnunni sem leysum krossgátuna og berum oft saman bækur okk- ar. Við vorum eitt sinn tveir saman á ferð í Kenýa með krossgátuna með okkur en við átt- um eftir að finna eitt orð. Vinnufélagi minn fer síðan út að hlaupa um kvöldið, lítur upp og sér buffal. Þá fattaði hann að það var orðið sem vantaði. Við sögðum félaga okkar hérna heima frá þessu, en hann hafði einmitt verið að glíma við sama orð. Hann sagði að þetta væri svindl hjá okkur,“ segir Halldór og hlær um leið og hann rifjar upp þessa óvenjulegu krossgátuaðstoð. Mikill munur á krossgátu og sudoku Krossgátur eru ekki einu þrautirnar sem Hall- dór leysir, en hann hefur einnig gaman af su- doku talnagátunni. Hann segir þó að erfitt sé að bera þrautirnar tvær saman. „Þetta er töluvert mikið öðruvísi. Í sudoku ertu alltaf að raða einhverju upp og skipu- leggja. Á meðan í krossgátunni ertu meira í hugarfluginu. Ég held samt að hvort tveggja sé ágætis þjálfun fyrir hugann.“ Fyrir utan það að vera góð hugarleikfimi segir Halldór þó að krossgátan sé fyrst og fremst afþreying og eitthvað til að hlakka til um helgar. Með hjálp vefsíðu Morgunblaðsins getur hann síðan nálgast krossgátuna erlend- is, sem hann segir að sé skemmtileg til- breyting. „Það er munur á því þegar ég er að gera hana hérna heima eða í útlöndum. Hérna eru náttúrulega allar orðabækurnar mínar til- búnar, en þegar ég er að gera þetta í útlönd- um þá hef ég ekkert svoleiðis. Það er meiri áskorun en það hefur samt gengið furðuvel. Ég ímynda mér alltaf þegar ég er hérna heima og er að fletta þessu upp, að þetta myndi ég ekki geta ef ég hefði ekki orðabók, en svo samt einhvernveginn virðist það ganga án þeirra.“ Ásdís Bergþórsdóttir fékk stundum athugasemdir frá les- endum hér áður, þá gjarnan um að sama krossgátan væri ýmist of þung eða allt of létt. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Morgunblaðið/Ásdís Halldór Ármannsson ver nokkrum klukku- tímum um hverja helgi í að leysa krossgátur. Morgunblaðið/Valli Áslaug Faaberg og Ásgeir Jónsson leysa krossgátuna á hverjum laugardagsmorgni. 12.8. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 Greinin er unnin sem hluti af skólaverkefni höfundar í blaða- og fréttamennsku við Háskóla Íslands.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.