Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.08.2018, Blaðsíða 37
Kínversk stjórnvöld hafa bannað
sýningu á nýju Bangsímon-mynd-
inni, Christopher Robin, sem var
frumsýnd hér á landi í vikunni. Þótt
engin opinber skýring hafi verið gef-
in þá er líkleg ástæða sú að kín-
versk stjórnvöld túlki bangsann sem
eins konar táknmynd andstöðu gegn
stjórnvöldum. Þessi einkennilega
þróun hófst árið 2013 þegar mynd
var dreift á netinu þar sem Xi Jinp-
ing, forseta Kína, og Barack
Obama, forseta Bandaríkjanna, var
stillt upp til hliðar við Bangsímon
og Tuma Tígur, en tvíeykin þóttu
heldur keimlík.
Kínversk stjórnvöld ritskoða
myndefni sem þykir óheppilegt fyrir
ríkisstjórnina og hefur samanburð-
inum af forsetanum og bangsanum
verið staðfastlega eytt af samfélags-
miðlum í Kína síðan þá. Breski grín-
istinn og þáttastjórnandinn John
Oliver var bannaður á kínverskum
miðlum fyrr í sumar eftir að hafa
farið hörðum orðum um Jinping, en
hann sagði meðal annars að rit-
skoðun á einhverju eins sakleysis-
legu og Bangsímon væri merki um
mikið óöryggi.
Bangsímon og Tuma Tígri stillt upp til hliðar við Xi Jinping og Barack Obama,
Æ, ANSANS!
Bangsímon bannaður í Kína
Eyrnaslapi og Bangsímon takast í hendur til hliðar við Shinzo Abe og Xi Jinping.
Bandaríska leikkonan
Kelly Ann McGillis
fæddist árið 1957 í Kali-
forníu. Hún hætti í
menntaskóla til að ein-
beita sér að leiklist-
arferli sínum og nam
meðal annars við Juilli-
ard. Eftir að hafa leikið
nokkur hlutverk á sviði
fékk hún hlutverk í
dramatísku gam-
anmyndinni Reuben,
Reuben árið 1983 sem
var tilnefnd til ósk-
arsverðlauna. Eftir
þetta fékk McGillis ým-
is hlutverk í sjónvarpi, en skaust
loks inn í sviðsljósið fyrir alvöru
fyrir hlutverk sitt í myndinni Wit-
ness þar sem hún lék á móti
Harrison Ford.
McGillis var tilnefnd til BAFTA
og Golden Globe verðlauna
fyrir leik sinn í Wit-
ness og hlaut í kjöl-
farið mikla athygli í
Hollywood en ári síð-
ar fékk hún sitt
frægasta hlut-
verk sem flug-
kennarinn
Charlie í há-
loftahasarnum
Top Gun. Eftir
Top Gun lék
McGillis í nokkr-
um stórum mynd-
um, þar á meðal
á móti Jodie Foster í The Accu-
sed, en með tímanum færðust
hlutverk hennar yfir í sjónvarpið.
McGillis kom opinberlega út úr
skápnum árið 2009 og lýsti yfir að
hún væri loksins búin að taka
samkynhneigð sína í sátt.
Hún var þá 52 ára göm-
ul en hún er tvískilin og
á tvö börn úr fyrra
hjónabandi. McGillis
sagði í viðtali að
hún væri sátt með
hvernig ferill
sinn hefði
þróast og að
það væri ekk-
ert vit í að
reyna að vera
þrítug að
eilífu.
HVAÐ VARÐ UM
Sem Charlie
í Top Gun.
Jodie Foster og Kelly McGillis í réttardramanu The Accused.
Í dag segist McGillis ánægð með feril sinn.
Kelly McGillis?
12.8. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
SJÓNVARP Bandaríski þrekraunaþátturinn Am-
erican Gladiators er að öllum líkindum á leiðinni aft-
ur í sjónvarp, en sjónvarpsstöðin MGM vinnur nú að
því að endurlífga þá í samstarfi við höfund upp-
runalegu þáttanna. Leikarinn Seth Rogen hefur
einnig verið tengdur við verkefnið en hann verður
líklega einn af framleiðendum.
Þættirnir nutu mikilla vinsælda á göngu sinni frá
1989-1997 og komu stuttlega aftur árið 2008. Í þátt-
unum kepptu konur og karlar sín í hvoru lagi í ýms-
um þrautabrautum, keppnisgreinum og öðrum
þrekraunum. Ef sigurvíman var ekki næg hvatning
þá var að sjálfsögðu fúlga fjár að verðlaunum.
Seth
Rogen.
AFP
FÓLK Poppstjörnunni Ariönu Grande tókst að
meiða sig á hendi þegar hún var í tökum fyrir
Carpool Karaoke með James Corden. Ekki er
ljóst hvað olli áverkunum sem virðast ekki alvar-
legir en Grande deildi mynd af grisjaðri hend-
inni á Instagram þar sem hún kallaði sjálfa sig
kjána. Hún tísti síðar þar sem hún þakkaði Cor-
den fyrir fjörið og sagði að hún hefði aldrei
skemmt sér betur.
Carpool Karaoke er gríðarlega vinsæll dag-
skrárliður í þættinum The Late Late Show sem
Corden stýrir, en meðal gesta sem hann hefur
fengið með sér eru Paul McCartney, Michelle
Obama og Ed Sheeran.
Krambúleruð í karókí
Ariana
Grande.
Skútuvogi 1c 104 Reykjavík Sími 550 8500 Fax 550 8510 www.vv.is
Traka 21 lyklaskápurinn skráir hver hefur lykla fyrirtækisins undir
höndum hverju sinni. Skápurinn opnast og afhendir lykil aðeins
þeim sem hefur leyfi til þess. Þetta sparar utanumhald og eykur
öryggi. Lyklar tapast miklu síður og kostnaður vegna þess lækkar.
HVER ER MEÐ
LYKILINN?
Verð: 179.000 kr.
Skylmingaþrælar Rogens