Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.08.2018, Blaðsíða 37
Aftur til Castle Rock
Hulu hefur gefið grænt ljós á aðra seríu sálfræði-
tryllisins og hrollvekjunnar Castle Rock. Fyrsta
sería er nú rúmlega hálfnuð í sýningu en þættirnir
hafa hlotið góðar viðtökur og. Þættirnir eiga sér
stað í samnefndum bæ úr hugarsmiðju Stephen
King þar sem tvinnast saman ýmis verk hans. Ekki
er ljóst hvernig önnur sería þáttanna muni tengjast
þeirri fyrri en þar sem þættirnir eru titlaðir sem
safnþáttaröð er líklegt að um sé að ræða sjálfstætt
framhald með nýjum hópi leikara. Vert er að benda
á að sænski leikarinn Bill Skarsgård fer með hlut-
verk ónefndrar persónu í þáttunum, en hann lék
trúðinn Pennywise í hryllingsmyndinni It sem bygg-
ist á bók King.
Smábærinn
Castle Rock er
óheillavænlegur.
Til sölu er fasteignin að Hafnarskeið 6, Þorlákshöfn. Eignin er staðsett á mjög góðum stað við
höfnina í Þorlákshöfn sem gerir hana mjög ákjósanlega fyrir hafsækna starfsemi sem og aðra
starfsemi. Fyrir liggur skipulag á stóru iðnaðar- og þjónustusvæði við höfnina og á upplandi
hafnarinnar sem stórskipahöfn er í farvegi, þ.m.t. hluti af henni er að byggja trébryggju við
hafnarbakkann sem lóð fasteignarinnar liggur að.
Um er að ræða atvinnuhúsnæði, byggt 1955 og 1975. Í eigninni var rekin fiskvinnsla um árabil.
Húsnæðið er pokapússað og málað að utan, hefur verið vel viðhaldið og snyrtilegt. Skipt hefur
verið um glugga í stórum hluta hennar. Góð lofthæð er á 1. og 2. hæð. Lóðin liggur að sjó og er
öll malbikuð eða steinsteypt. Á 1. og 2. hæð var fiskmóttaka og vinnslusalir. Á 3. hæð, sem er
inndregin, eru skrifstofur, snyrtingar, íbúðarherbergi og stór matsalur. Samkvæmt útreikningi
verkfræðistofu er stærð eignarinnar alls 3.599 fermetrar.
Til sölu atvinnuhúsnæði á góðum stað
við höfnina í Þorlákshöfn
Hægt er að óska eftir frekari upplýsingum með því að senda tölvupóst á netfangið oskar@lex.is.
Allar nánari upplýsingar veitir Óskar Sigurðsson lögmaður hjá LEX lögmannstofu í síma 590-2600.
19.8. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
FÓLK Julia Louis-Dreyfus, sem fór með hlutverk
Elaine í þáttunum Seinfeld, er snúin aftur í tökur
á sjöundu seríu þáttanna Veep. Í september síð-
astliðnum greindist Louis-Dreyfus með brjósta-
krabbamein, skömmu eftir að hún hlaut sjöttu
Emmy-verðlaunin í röð. Eftir fjölda aðgerða er
hún nú tilbúin aftur í slaginn og þakkar í twitter-
færslu þann stuðning sem hún hafi fengið á und-
anförnum mánuðum.
Sjöunda sería Veep verður sú síðasta, en þætt-
irnir hófu göngu sína árið 2012. Þessir marg-
verðlaunuðu gamanþættir segja frá pólitísku
amstri varaforseta Bandaríkjanna og fylgdarliði
hennar.
Julia Louis-
Dreyfus
KVIKMYNDIR Disney hefur birt fyrstu
myndina af leikkonunni Liu Yifey sem Mulan
í leikinni endurgerð teiknimyndarinnar sem
er væntanleg árið 2020. Meðal annarra leik-
ara verða bardagakempurnar Jet Li og
Donnie Yen.
Endurgerðin verður meðal dýrustu mynda
sem framleiddar hafa verið, en áætlaður
kostnaður er um 290 milljónir Bandaríkja-
dala. Myndin verður talsvert frábrugðin
teiknimyndinni, en til að mynda er ekki ljóst
hvort nokkur söngatriði verði í henni og því
miður snýr drekinn Múshjú ekki aftur á tjald-
ið.
Fyrsta mynd af Mulan
Liu Yifey í hlutverki Mulan.
Disney
True Detective fór í loftið árið
2014 og vakti fyrsta sería mikla
lukku og var hampað á nánast öll-
um sviðum, sérstaklega fyrir leik
og handrit. Þættirnir voru aðeins
átta talsins, en eftir þá hylli sem
þeir nutu skrifaði höfundur þeirra,
Nic Pizzolatto, undir samning um
tvær seríur í viðbót sem hvor um
sig segði sjálfstæða sögu.
Önnur sería fékk blendnari við-
tökur, en mörgum þóttu þættirnir
ruglandi og lausir við þá ískyggi-
legu dulúð sem hafði einkennt
fyrstu seríu. Tökum er nú lokið á
þriðju seríu True Detective, sem
er væntanleg á skjáinn á næsta ári,
og hefur Pizzolatto sagt að nýja
serían verði líkari þeirri fyrstu.
Sögusvið seríunnar verður Fay-
etteville í Arkansas og verður
meginstefið að vanda ráðgátur og
hryllilegir glæpir. Óskars-
verðlaunahafinn Mahershala Ali
fer með aðalhlutverkið.
True Detective urðu
að safnþáttaröð í kjöl-
far mikilla vinsælda.
Grimmur
krimmi
Maher-
shala Ali
Louis-Dreyfus mætt aftur