Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.08.2018, Blaðsíða 24
Banani fyrir jóga
Gott er að borða banana áður en haldið er í jógatíma. Bananar
eru afar magnesíum-rík fæða sem getur unnið gegn krömpum
og bólgum, en þeir eru einnig stútfullir af pótassíum.
HEILSA
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.8. 2018
Jógakennararnir María Dalberg ogInga Hrönn Kristjánsdóttir
munu opna jógastúdíóið Iceland
Power Yoga í lok ágúst, en stúdíóið
er staðsett í Hlíðarsmára og þar
mun verða hægt að sækja námskeið
í margskonar mismunandi teg-
undum af jóga.
„Við erum báðar búnar að vera að
kenna í um það bil fimm ár og þegar
við kynntumst síðastliðið haust þá
small eitthvað og það var augljóst að
við þurftum að gera eitthvað sam-
an,“ segir María. „Við fundum að við
höfðum þessa sömu ástríðu fyrir því
að deila jóga með fólki þar sem við
höfum báðar upplifað hvernig jóga
hefur umbreytt okkar lífi,“ bætir
hún við en í stöð þeirra verður lögð
áhersla á hina svokölluðu Baptiste
Power Yoga aðferðafræði, sem er
orku- og kraftmikill jógastíll sem
leggur mikla áherslu á styrk og lið-
leika. „Þessi aðferðafræði er svo
skýr og aðgengileg fyrir alla,“ segir
Inga. „Þetta er jóga á nútímamáli,
við viljum að fólk geti komið til okk-
ar og fundið að það er hluti af hvetj-
andi samfélagi, sem er hlýtt, opið og
tekur á móti þér eins og þú ert.“
Samtvinnuð aðferðafræði
Á heimasíðu Iceland Power Yoga er
Baptiste Power Yoga aðferðafræð-
inni lýst sem „áhrifamikilli nálgun
sem leiðir til stórkostlegra umbreyt-
inga í viðhorfi og lífi nemenda,“ og
leggja María og Inga mikla trú á
fræðina.
„Aðferðafræðin samanstendur af
kraftjógaflæði í heitum sal, hug-
leiðslu og sjálfsvinnu, en upphafs-
maður hennar er jógakennarinn og
metsöluhöfundurinn Baron Bapt-
iste. Hann er einn merkilegasti nú-
lifandi jógakennari okkar samtíma.
Foreldrar hans opnuðu eitt af fyrstu
jógasetrum Bandaríkjanna í kring-
um 1950 svo hann ólst upp í kringum
mörg þekktustu nöfn jógaheimsins,
nöfn líkt og B.K.S. Iyengar og Indra
Devi. Þegar hann var rúmlega tví-
tugur byrjaði hann að þróa að-
ferðafræði sem gerði jóga aðgengi-
legt og auðskiljanlegt fyrir alla, með
því að sameina mismunandi hluta af
mismunandi jógaaðferðum. Hann
sameinaði heitt jóga frá Bikram
jóga, flæðið frá Ashtanga jóga, lík-
amsstöðu frá Iyengar og hugleiðslu-
og sjálfsvinnuaðferðum,“ segir
María.
„Það kom óvænt upp að Baptiste
var í heimsókn á Íslandi í vikunni og
frétti af okkur og langaði endilega að
koma og kenna fyrsta tímann í stúd-
íóinu okkar,“ segir Inga, en Baptiste
kenndi tíma fyrir fullu húsi á
fimmtudaginn síðasta, þann 16.
ágúst en stúdíóið opnar síðan form-
lega síðar í mánuðinum. „Tíminn var
til styrktar Africa Yoga Project, sem
er verkefni sem þjálfar jógakennara
sem koma frá fátækrahverfum í Nai-
robi í Kenía eftir Baptiste aðferða-
fræðinni, en hundruð kennara hafa
útskrifast í samstarfi við verkefnið,“
bætir Inga við. „Það er mikill heiður
fyrir okkur að fá hann í heimsókn til
okkar og leggja blessun sína yfir
nýja stúdíóið okkar. En við verðum
„Baptiste affiliate“-stúdíó og verð-
um í beinu samstarfi við Baptiste
Institute í Bandaríkjunum og
vinnum eftir þeirra stöðlum um gæði
og kennslu,“ segir María.
Líkamleg og andleg
þjálfun
Vinsældir jóga hafa aukist gríð-
arlega á Íslandi, en stúdíó Maríu og
Ingu er eitt fjölmargra jógastúdíóa
sem sprottið hafa upp víða um land
síðustu ár. „Þessar miklu vinsældir
jóga, bæði hér á landi og um allan
heim, sýna að viljinn til að kúpla sig
frá öllu áreitinu, hraðanum og
stressinu er mikill. Við heyrum allt
of mikið um að fólk sé að brenna út
en margir keyra bara áfram án þess
að vera endilega að lifa því lífi sem
þá langar til að lifa. Jóga hvetur okk-
ur til að staldra við og hlusta og sjá
hvað er í gangi, ekki bara í kringum
okkur heldur hjá okkur sjálfum, “
segir María.
„Ef við æðum í gegnum lífið ómeð-
vitað þá erum við aldrei í núinu held-
ur bara fortíðinni eða framtíðinni,“
bætir hún við.
Þetta ástand skapar gríðarlega
streitu sem sest í alla vefi líkamans
og hefur mjög neikvæðar afleið-
ingar,“ segir Inga og heldur áfram:
„Jóga vinnur beint á þetta og í jóga
æfum við okkur í að temja hugann til
að vera í núinu. Jóga styrkir þig ekki
bara líkamlega heldur andlega líka.
Það kennir okkur aga og gefur
manni það sem maður þarf til að lifa
lífinu til fulls. Við munum bjóða upp
á nógu mikið af tímum á stundatöfl-
unni svo að fólk geti séð sér fært að
koma með reglulegum hætti og gert
þetta að lífstíl sem heldur andlegri
og líkamlegri heilsu í skefjum. Með
þessum hætti getur fólk t.d. haldið
áfram að hlaupa, hjóla, eða stunda
áhugamál og njóta lífsins án þess að
heilsan standi í vegi.“
„Ef við æðum í gegnum lífið
ómeðvitað þá erum við aldrei í
núinu heldur bara fortíðinni
eða framtíðinni, segir María, en
hún er til hægri á myndinni.
Ljósmynd/María Kjartansdóttir
Kraftmikið jóga á nútímamáli
Leikkonuna Maríu Dal-
berg og viðskiptafræð-
inginn Ingu Hrönn
Kristjánsdóttur hafði
lengi dreymt um að
opna sitt eigið jóga-
stúdíó, og draumurinn
mun rætast þegar þær
opna Iceland Power
Yoga í lok mánaðar.
Pétur Magnússon petur@mbl.is
Jóga hefur notið mikilla vinælda á síðustu árum.
’
Jóga styrkir þig
ekki bara lík-
amlega heldur andlega
líka. Það kennir okkur
aga og gefur manni
það sem maður þarf til
að lifa lífinu til fulls.
GettyImages/iStockphoto