Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.08.2018, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.08.2018, Blaðsíða 17
19.8. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17 sem er að gerast í umhverfinu og ekki bara hugsa að af því að maður sjálfur hafi það fínt, þá skipti ekkert og enginn annar máli.“ Þarf ekki að gæta þess hvert viðfangsefni spunans er? Sigga kinkar kolli og segir að ákveðnar regl- ur gildi um það hvað sé tekið fyrir. „Við gerum ekki grín að hlutum sem eru alvöru- harmleikur, þótt það sé hægt að finna húmor í skrýtnum aðstæðum sem eru sorglegar. Við gerum til dæmis ekki grín að sjálfsmorði. Við gerum ekki grín að ungbarnadauða.“ Hann var til og skipti máli Dóttir Siggu úr fyrra sambandi er Lára Björk sem var rúmlega fimm ára þegar Nói Hrafn dó. Sigga segir að hún hafi strax ákveðið að tala opinskátt við Láru um það sem gerðist. „Ég held að það hafi hjálpað mikið að sam- skipti mín og pabba hennar eru svo góð og fjöl- skyldan hans er alveg frábær. Hann sótti hana í leikskólann þegar ég gat það ekki, alveg sama þótt hún ætti ekki að vera hjá honum á þeim tíma. Og það var líka tekið svo vel á þessu í leikskólanum hennar, þar sem vinnur stór- kostlegt fólk. Og leikskólakennarar eru svo sannarlega ekki bara að passa börn,“ segir Sigga með áherslu. „Lára lærði bara strax að tala um þetta. Ég vil ekki gera dóttur minni það að sitja uppi með áfallið. Ég vil að hún geti haldið áfram sínu lífi án þess að sitja uppi með eitthvað sem ég gat ekki talað um. Nógu mikið er það nú samt sem ekki má ræða. Þetta er auðvitað eitt það hræðilegasta sem fólk getur hugsað sér en við verðum að tala um þetta. Við verðum að opna þessi sár til að þau fái að gróa.“ Sem fyrr segir vinnur Sigga mikið við tal- setningu barnaefnis. Hún hafði nýlega lokið við að talsetja í teiknimyndinni Inside Out þegar Nói Hrafn lést. Myndin fjallar um Dag- nýju og hvernig tilfinningar hennar, sem eru persónugerðar, vinna saman eða stangast á. Gleðin, sem Sigga talar fyrir, hefur að mestu leyti ráðið ríkjum hjá Dagnýju en tilfinning- arnar reiði, sorg, ótti og óbeit koma einnig mikið við sögu í lífi hennar þegar hún eldist og þroskast. Myndin var frumsýnd á Íslandi sum- arið eftir að Nói Hrafn dó og Sigga segir að þær mæðgur hafi farið saman á frumsýn- inguna, en Lára var þá alveg að verða sex ára. „Tilfinningarnar í myndinni eiga sína liti; gleðin var til dæmis gul, reiðin var rauð og sorgin blá. Það var svo gott að ég hafði talað fyrir gleði í myndinni og fékk að vera gul því heima var ég alltaf blá … Lára sagði að ég væri alltaf grátandi, alltaf blá. Eðlilega … Ég er frekar glaðvær manneskja en þarna var Lára svolítið búin að missa mömmu sína eins og hún þekkti hana. Rétt eins og ég hafði gert. Ég man eftir því að hafa fundist ég missa svo- lítið mömmu mína. Og ég var sár og skildi þetta aldrei þá. En ég skil þetta betur í dag.“ Sigga þagnar stutta stund. „Það var alltaf tal- að mikið um Bjarka á heimilinu eftir að hann dó. Kannski líka svolítið af því að vinir hans voru svo mikið hjá okkur.“ Sigga segist hafa heyrt ótalmargar sögur um eldri konur sem hafa legið banaleguna og ósk- að eftir að fá að tala um barnið sem þær misstu og fengu aldrei að tala um. Þær hafi jafnvel far- ið í gegnum lífið reiðar og sárar vegna þess að þær fengu aldrei að vinna úr ólýsanlegum sárs- auka. Sigga leggur þó áherslu á að fólk verði auðvitað að hafa í huga að það sé staður og stund fyrir allt og ekki viðeigandi að ræða þessi mál hvar og hvenær sem er. „En maður gleymir aldrei þessu barni sem fæddist og dó. Og maður vill ekki að heimurinn gleymi því. Fólki má heldur aldrei finnast vont að hafa minnt mig á Nóa Hrafn, eins og hefur gerst þegar ég hef hitt einhvern sem vissi að við Kalli ættum von á barni en ekki að það væri dáið. Það er aldrei vont að vera minntur á barnið sem maður átti. Ég hugsa um hann á hverjum degi. Ég gleymi honum aldrei. Ég dýrka þegar einhver segir nafnið hans. Ég vil alltaf segja Nói Hrafn. Og það er stór hluti ástæðunnar fyrir minningartónleikunum um bróður minn. Þetta er svolítið gert fyrir mömmu og pabba og bræður mína. Bjarki bróðir minn má ekki gleymast. Hann var til. Og hann skipti máli.“ Morgunblaðið/Valli ’Og það er stór hluti ástæð-unnar fyrir minningartón-leikunum um bróður minn. Þettaer svolítið gert fyrir mömmu og pabba og bræður mína. Bjarki bróðir minn má ekki gleymast. Sigga einbeitir sér að mestu að tónlistinni í dag og síðustu ár hefur hún unnið mikið við talsetningar á teiknimyndum og barnaefni. Hún undirbýr nú stórtónleika í Hörpu til að heiðra minningu bróð- ur síns, sem lést úr heilahimnubólgu árið 1993. hennar hafi auðvitað líka misst barnabarnið sitt, líkt og foreldrar Kalla. En hún segir þau hafa staðið þétt við bakið á sér og Kalla. „Mamma og pabbi gerðu allt svo rétt á þess- um tíma. Og reyndar bara allir í kringum okk- ur, við erum auðvitað einstaklega heppin með fjölskyldu og vini. En það var bara eins og mamma og pabbi hefðu fengið handbókina.“ Sigga þagnar augnablik. „Sem þau náttúrlega höfðu fengið. Þegar Bjarki bróðir dó.“ Aðspurð hvað hún eigi við með því að for- eldrar hennar hafi gert allt rétt segir hún að þau hafi til dæmis aldrei spurt þau Kalla óvið- eigandi eða asnalegra spurninga. „Mamma var rosa mikið að koma og taka til; gekk í það sem þurfti að gera á heimilinu. Við gátum ekki gert margt og ég var auðvitað að jafna mig eftir erf- iða fæðingu. En þau pabbi komu aldrei án þess að láta okkur vita áður. Og þau bara tékkuðu á stöðunni, hvort allt væri í lagi.“ Sigga segist hafa getað rætt hluti við móður sína sem hún gat ekki rætt við neinn annan. „Stundum upplifði ég einhverjar tilfinningar, einhver hafði kannski sagt eitthvað við mig og ég ræddi það við mömmu. Þá sagði mamma bara: Já, ég veit. Þetta á eftir að gerast. Það hjálpaði mér að geta rætt alls konar við hana sem enginn annar gat skilið. Ég myndi samt aldrei segja sjálf við mömmu mína að ég skilji hana. Því það geri ég ekki, en ég get tengt við þessa sorg. Ég hafði sjálf til dæmis gengið í gegnum fósturlát og það er ekki sambærileg reynsla við það sem ég svo seinna upplifði. En sorgin er samt til stað- ar. Og það er hægt að tengja við sorgina.“ Heldurðu að það sé hægt að vinna sig út úr svona mikilli sorg? Komast yfir hana að fullu? „Nei. Þú getur lært að funkera. Þú getur lært að treysta. Ég hugsa, í okkar tilfelli, að þegar við fáum einhvers konar niðurstöðu í málinu komumst við alla vega á næsta stig. Það er eitt að jafna sig eftir barnsmissi en svo annað að vera með svona stórt mál í gangi; sem ég held að skipti ekki bara okkur máli heldur allt sam- félagið. Að svona gerist ekki aftur. Þetta kom fyrir okkur og hefur komið fyrir miklu fleiri.“ Að hlusta er kjarninn Eitt af því sem Sigga segir hafa hjálpað sér mikið að takast á við áfallið er leiklistarspuni, en spuni er skilgreindur sem óundirbúið skap- andi atferli þar sem þátttakendur semja efnið á staðnum um leið og þeir flytja það. „Stuttu eftir að Nói Hrafn dó var ég barnlaus og í fæð- ingarorlofi, sem er hræðileg staða að vera í. Þá hringdi Bjarni Snæbjörns vinur minn í mig, en hann var þá byrjaður í Improv Ísland, og hvatti mig til að fara á námskeið hjá þeim sem var þá að byrja,“ segir Sigga. Dóra Jóhannsdóttir leikkona stofnaði leik- hópinn Improv Ísland snemma árs 2015 en hópurinn býður bæði upp á námskeið í spuna og sýningar. Sigga segist hafa ákveðið eftir smáumhugsun að skella sér á námskeiðið og eftir það hafi ekki verið aftur snúið. Hún hafi farið á fleiri námskeið og þegar hópurinn vildi prófa að spinna söngleiki hafi Kalli verið feng- inn til liðs við hann sem tónlistarstjóri. Sigga segir spunann eitt það besta sem fyrir sig hafi komið eftir áfallið. „Spuni á ekki að vera ein- hver þerapía en hann getur orðið það. Það er svo mikil núvitund í spunanum, þetta er svo mikil hugleiðsla. Maður fer bara í einhvern trans og allur fókusinn er á það sem maður er að gera einmitt þá stundina. Heimurinn fyrir utan skiptir ekki máli. Og allir sem taka þátt í spunanum, hvort sem þeir eru að taka þátt í því atriði sem er að gerast akkúrat þá stundina eða standa hjá á hliðarlínunni, verða að taka fullan þátt. Maður er alltaf að fylgjast með og alltaf tilbúinn að stökkva inn í og koma til hjálpar. Og hlusta. Hlustunin er kjarninn í spunanum. Alltaf. Ef þú ert ekki að hlusta á það sem er að gerast í kringum þig getur allt hrunið. Og í mínu áfalli var ég einmitt að kljást við afleiðingar þess að það var ekki hlustað á okkur Kalla.“ Sigga mælir með spuna fyrir alla, hvort sem þeir eru leiklistarmenntaðir eður ei. „Þetta er svo gott fyrir hjartað. Og hausinn á manni. En þetta hentar ekkert öllum; sumir leikarar til dæmis finna sig ekki í spuna,“ segir Sigga. „Áður en við förum á svið í spunanum segj- um við I got your back, það er svona lykilsetn- ing sem allir segja hver við annan. Og mér finnst hægt að heimfæra þessa setningu upp á allt í lífinu. Til dæmis ef þú ert úti að labba og dettur í götuna; þá á náunginn að koma til hjálpar. Við eigum að fylgjast með og hlusta á allt sem er að gerast í kringum okkur. Ég er samt ekki að segja að við eigum að vera með nefið ofan í öllu sem aðrir eru að gera,“ segir Sigga og brosir. „En maður á að hugsa um það

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.