Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.08.2018, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.08.2018, Blaðsíða 15
þá hafa verið að gráta undan vinkonu sem hafði sært hana endurtekið og Bjarki sagði að málið væri einfalt. Hún ætti bara að hætta að vera vinkona hennar og láta ekki bjóða sér þessa framkomu. Sigga fór að ráðum stóra bróður síns og segist enn þann dag í dag hugsa um þessi orð Bjarka. „Stundum ber maður ekki ábyrgð á mistökum annarra. Fólk gerir alls konar hluti í vanlíðan og undir áhrifum og svoleiðis. En þegar allt kemur til alls ber það ábyrgð á sjálfu sér.“ Dagurinn sem allt breyttist Nokkrum mánuðum áður en Bjarki lést var hann farinn að spila á Hammond-orgel í hljóm- sveit sem kallaði sig Ðí Kommitments. Sveitin var sett saman fyrir nemendasýningu Fjöl- brautaskólans í Breiðholti. Settur var upp söngleikur sem byggður var á kvikmyndinni The Commitments og sýndur á sviðinu á Hótel Íslandi við góðar undirtektir. Hljómsveitin hélt áfram að spila á böllum og skemmtistöð- um eftir að sýningum á Hótel Íslandi lauk og Sigga segir að Bjarki hafi greinilega notið sín í botn og það hafi gefið honum mjög mikið að vera í hljómsveitinni. „Ég skynjaði að hann var að eignast nýja vini í þessum krökkum sem höfðu áhuga á því sama og hann og hann var að upplifa svo margt nýtt. Það bara opnaðist fyrir honum ný vídd. Vinahópurinn úr Seljahverfinu var auðvitað stór en það er hollt að eignast nýja vini á þessum aldri,“ segir Sigga. Fimmtudaginn 13. maí 1993 átti hljóm- sveitin að spila á balli um kvöldið og hljóm- sveitarfélagarnir bjuggu sig undir að mæta í hljóðprufu. En Bjarki mætti ekki. Og hann átti ekki eftir að mæta á fleiri æfingar eða böll. Um kvöldið var hann allur. „Á miðvikudagskvöldinu var hann að kasta upp og leið eitthvað illa,“ segir Sigga. „Heila- himnubólga lýsir sér svolítið eins og slæm gubbupest eða flensa. Á þessum tíma var auð- vitað ekki hægt að gúgla neitt og heilahimnu- bólga var ekkert í umræðunni. Það fyrsta sem á að tékka á þegar grunur leikur á að um heila- himnubólgu sé að ræða er að athuga hvort við- komandi sé með stífleika í hnakka. Það er auð- vitað athugað hjá börnum en það datt engum í hug þarna, enda var Bjarki orðinn hálffullorð- inn; nítján, að verða tvítugur. Við bjuggum í þriggja hæða húsi og herbergið hans var á efstu hæð en allir hinir sváfu niðri. Þannig að mamma bað mig að sofa á dýnu inni hjá hon- um, sem ég gerði. Ef mömmu hefði grunað að hann væri með heilahimnubólgu hefði hún auð- vitað aldrei beðið mig um það.“ Foreldrar Siggu fóru til vinnu næsta morg- un og Sigga, sem var þá í sumarvinnu á út- kallsvakt í bakaríi, var kölluð út vegna veik- inda starfsmanns. Hún segist hafa spurt Bjarka hvort honum liði betur og hvort hann treysti sér til að vera einn. „Hann sagði bara jájá, hann ætlaði að leggja sig aftur og svo væri hann að fara að spila með hljómsveitinni um kvöldið. Þannig að ég fór í vinnuna. Ein- hverju seinna heyrði Viðar, yngri bróðir okk- ar, dynk af efri hæðinni og kom að Bjarka liggjandi á gólfinu. Hann hringdi í nágranna- konuna, sem var ljósmóðir og kunni fyrstu hjálp. Hún og dóttir hennar komu yfir og hringdu á sjúkrabíl og í mömmu og pabba.“ Sigga var ein að vinna í bakaríinu, sem var í Glæsibæ, þegar hún fékk símtal þar sem henni var sagt að Bjarki væri kominn upp á spítala og væri mikið veikur. „Ég brotnaði bara sam- an þarna á staðnum. Það var ekkert afdrep fyrir starfsfólkið þannig að ég sat þarna há- grátandi þegar einhver kona, sem var nú bara að fara að kaupa brauð, beið hjá mér þar til einhver kom til að leysa mig af.“ Það tekur greinilega á Siggu að rifja þetta upp þótt liðin séu tuttugu og fimm ár og hún tekur sér smáhlé áður en hún heldur áfram. „Ég kom upp á Borgarspítala (sem heitir nú Landspítali Fossvogi, innsk. blm.) og hitti þar mömmu og pabba. Svo sá ég lækninn og prestinn koma. Þá gat ég ekki verið þarna; þetta var bara of mikið. Þannig að ég fór heim til Auðar, vin- konu minnar. Svo hringir heimasíminn hjá þeim og ég bara vissi hvað hafði gerst. For- eldrar Auðar sögðu við okkur systkinin að mamma og pabbi væru komin heim svo við ættum að fara þangað. Ég man síðan bara eftir því að hafa komið heim og pabbi sagði mér Sigga ásamt Láru, dóttur sinni. „Ég vil að hún geti haldið áfram sínu lífi án þess að sitja upp með eitthvað sem ég gat ekki talað um. Nógu mikið er það nú samt sem ekki má ræða.“ Morgunblaðið/Valli 19.8. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.