Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.08.2018, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.08.2018, Blaðsíða 12
Alvarlegasta tilfellið Bifhjól í utanvegaakstri unnu miklar skemmdir á gróðri á stóru svæði á Fjallabaki, við veginn að Hófsvaði og Ljóta- polli. Landvörður á svæðinu segir þetta alvarlegasta til- fellið í sumar. Dauð og ómerk ummæli Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens ætlar ekki að áfrýja meiðyrðadómi í máli Steinars Bergs gegn sér. Þetta segir í yfirlýsingu sem Steinar sendi frá sér. Ummæli Bubba, sem tiltekin eru í dómnum, eru því dæmd dauð og ómerk. Færri ný störf Vinnumálastofnun áætlar nú að 2.000 til 2.500 ný störf verði til í ár en sérfræðingar stofnunar- innar höfðu í ársbyrjun spáð 2.500 til 3.000 nýjum störfum. Það er því töluverð breyting á spám. Stofnunin spáir 3.250 nýjum störfum árin 2019 og 2020. Landsliðið féll Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu fellur um tíu sæti á nýjum styrkleikalista FIFA, úr 22. sæti í 32.-34. sæti. Þrjú ár eru síðan liðið var á svipuðum stað á listan- um, en árið 2015 var það í 36. sæti. Hvalirnir hurfu sjónum Hvalatorfan sem var innlyksa í Kolgrafafirði var rekin undir brúna og vel út á Breiðafjörð framhjá Oddbjarnarskeri, um 15 kílómetrum austur af Flatey. Þaðan tóku hvalirnir stefnuna norðvestur. Tóti fallinn frá Lundinn Tóti, sem bjó á Sæ- heimum, fiska- og náttúru- gripasafni Vestmannaeyja frá því hann var pysja, er fallinn frá. Tóti var hvers manns hugljúfi og átti aðdáendur um allan heim. VIKAN SEM LEIÐ VETTVANGUR 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.8. 2018 Það er alltaf verið að kenna okkur hversu miklu málitraust skiptir í viðskiptum og við stjórn fyrir-tækja og stofnana. Mikið atriði sé að allt sé í föst- um skorðum og fólk viti að hverju það gengur. Svo er náttúrlega mikið lagt upp úr góðum anda á vinnustað. Ástandið í borgarstjórn Reykjavíkur er eins fjarri þessu og mögulegt er og líkast því að verið sé að taka upp raun- veruleikaþátt í ráðhúsinu. Þetta gæti líka verið íslenska útgáfan af The Office. Á nánast hverjum degi koma fréttir um ósætti, óánægju, óreiðu og bara alls konar sem byrjar á ó. Það virðist ekki vera samstaða um neitt, ekkert traust og engin virðing. Svo nær þetta einhverjum furðulegum há- punkti með bókun um að fulltrúi meirihlutans hafi ullað á fulltrúa minnihlutans. Í alvöru krakkar! Sem sjö barna faðir gæti ég alveg búist við svona uppákomu. Þetta er ekki alveg óþekkt staða í uppeldi og við persónur og leikendur í þessu síðasta atriði myndi ég segja: Líf: Það er ókurteisi að ulla á annað fólk. Marta: Það hefur enginn gaman af klöguskjóðum. Sem útsvarsgreiðandi í Reykjavík verð ég að viður- kenna að ég sá þetta ekki fyrir. Þetta fólk virtist bara allt vera meira eða minna í lagi í kosningabaráttunni. Það talaði um að vinna að hagsmunum borgarinnar, gera Reykjavík betri og alls konar sem hljómar vel í kosn- ingabaráttu. Ég held líka að einhverjir hafi tala um að vinna með öðrum borgarfulltrúum. En ég er nokkuð viss um að það að ulla og klaga hafi ekki verið á þessum lista. Það er reyndar ekki eins og þetta sé fyrsta dæmið. Klögumálin hafa gengið á víxl um að leka lista yfir full- trúa, ærumeiðingar, boða of seint á fundi og ganga svo af sama fundi, svik, leiðindi og almennt óstuð. Við sem búum í Reykjavík viljum bara að hlutir séu í lagi. Við viljum að borgin sé hrein og fín, íbúar hafi það gott, við séum helst ekki á hausnum og að sem flestum líði vel í þessari fínu borg. Það ætti ekki að vera flókið. Hefði maður haldið. Endalausar deilur gera ekkert fyrir Reykjavík. Illindi og leiðindi skila sjaldnast árangri og gera það aðeins að verkum að það verður ekkert traust á milli borgarfull- trúa sem aftur leiðir til þess að kerfið vikar ekki. Borgin verður verri, lengur að bregðast við og við töpum gleðinni. Það viljum við alls ekki. Þeir einu sem græða á þessu eru vinnustaðasálfræðingar. Ég þekki nokkra sem sitja í borgarstjórn Reykjavíkur og veit að þetta er vænsta fólk sem í rauninni vill bara gera eins vel og það getur. Það er eins og andrúmsloftið sé hins vegar eitthvað undarlegt. Kannski fjölgunin í borgarstjórn hafi ekki verið frábær hugmynd og það séu bara of margir í partíinu. Það er nefnilega þannig að í borgarstjórn gilda svipuð lögmál og á heimili. Kannski vantar foreldri til að fara yf- ir helstu reglur svo það sé hægt að koma einhverju í verk í borginni. Búðu um rúmið þitt, ekki borða í stofunni, gakktu frá skónum þínum og hættu að lemja systur þína. Í alvöru krakkar! Logi Bergmann logi@mbl.is Á meðan ég man ’Það virðist ekki vera samstaða um neitt, ekkert traust og engin virðing.Svo nær þetta einhverjum furðulegum hápunkti með bókun um aðfulltrúi meirihlutans hafi ullað á fulltrúa minnihlutans. UMMÆLI VIKUNNAR ’Sumir kalla þetta túristavörtur.Árni Tryggvason, leið- sögumaður. Vörður sem eru ekki hlaðnar í þeim tilgangi að vera leiðarvísar eru umdeildar. U Fallegu púðarnir frá HHOLTZ komnir aftur Opið virka daga kl. 11-18, lokað laugardaga í sumarListhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050 Atvinna

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.