Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.08.2018, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.08.2018, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.8. 2018 Þ að er heldur önugt að horfa upp á hversu stjórnarfarinu í höfuðborg landsins hefur hrakað. Og hefur hallað undan fæti um alllanga hríð. Þjónustulund er lykilorðið Sveitarfélag er svæðisbundið yfirvald sem er komið á til að veita ákveðna grundvallarþjónustu. Vilji borgar-/bæjarstjórnin það, getur hún svo sem ákveðið að fara nokkuð út fyrir það. En hún býr þó við valdmörk. Þannig getur hún ekki blandað sér í ákvarðanir sem að lögum eru faldar öðrum og er óheimilt að hlutast til um þær og síst til að draga úr áhrifum hins lögmæta aðila. Verkefni sveitarfélaga eru prýðilega skilgreind. Önnur sem segja má að lúti hinum óskráðu reglum, þeim sem Píratar vilja vita hvar eru skráðar, snúast einnig um að veita íbúum viðkomandi sveitarfélags þjónustu, þótt hún sé ekki endilega lögbundin. Þetta er ekki flókið Íbúarnir eru vel með á nótunum. Þeir vilja að sveit- arfélagið sitt sé sem þægilegast og snyrtilegast og að flæði um það sé lipurt, aðgengilegt og hættulítið. Þeir vilja að verk sem vinna þarf séu unnin hratt og skipulega og með sem minnstri truflun fyrir al- mennt gangverk sveitarfélagsins. Þau opinberu merkikerti sem eru föst í þeim mis- skilningi að tilvera sveitarfélaganna snúist um það hvort þau náist á mynd eða ekki, en ekki um hag íbúanna, ættu að fara í annað og byrja á því að kaupa sér stóran spegil og koma honum haganlega fyrir heima hjá sér. Svo var það fyrir átta.... Síðustu tvö kjörtímabilin hafa verið sérlega niður- lægjandi hvað borgina snertir í framangreindum efnum, en sumt var vissulega byrjað áður. Þjónustan hefur skroppið saman og sú sem er hefur þyngst og er jafnvel talin eftir og allar klær hafðar úti að krækja sér í aur úr vösum borgarbúa. Við þetta bætast svo næsta ótrúlegir hlutir. Eitt aðal- einkennið og það alvarlegasta er að það er lítið og jafn- vel ekkert að marka yfirlýsingar borgaryfirvalda um hvað hafi verið gert, hvað sé verið að gera eða hvers sé að vænta í næstu framtíð. Þegar teknar eru saman yf- irlýsingar Dags B. Eggertssonar um lóðamál borg- arinnar síðustu átta árin og hvers sé að vænta, mynd- skreyttar með glærum og kynntar á fjölmörgum fundum, er eins og nú sé horft á eyðimörk þar sem lofað var aldingarði. Óheilindi og blekkingar eru megineinkennin sem blasa við þeim sem rýna í það sem sagt var og leita efnda. Endaskipti á úrslitum Samfylkingin beið afhroð í kosningum til borgar- stjórnar vorið 2010. Í því fólst krafa kjósendanna um að hún héldi sig frá stjórn borgarinnar næsta kjörtímabil. En þeim var gefið langt nef. Látið var heita að Jón Gnarr, fyrir hönd Besta flokks, sem gufaði upp að kjörtímabilinu loknu, færi með emb- ætti borgarstjórans. Það var eingöngu illa heppnað grín eins og „skemmtiþættir“ með sama heiti reynd- ust líka og var hent fyrir vikið. Jón Gnarr mátti eiga það að hann lét aldrei eins og hann sinnti embætti æðsta manns borgarinnar. Hann tók ekki á móti borgarbúum sem vildu fá úr- lausn sinna mála og það þóttu sérstök tíðindi ef hann opnaði munninn á borgarráðsfundi þar sem allar þýðingarmestu ákvarðanir borgarinnar eru þó teknar. Hann sagðist í upphafi ætla að svíkja öll sín kosningaloforð nema eitt, sem hann sveik reyndar líka. Illa leikin loforð En það er þó fjarri því að nokkuð bendi til þess að Gnarr hafi verið slakari borgarstjóri heldur en Dag- ur Eggertsson, sem fór með völdin á bak við tjöldin í tíð Gnarrs og tók svo formlega við fjórum árum síð- ar. Dagur gaf miklu fleiri loforð en Gnarr og sveik þau flest. Þannig náði hann að svíkja fleiri loforð en Gnarr, sem þó sveik öll sín að eigin sögn. Það er að renna upp fyrir sífellt fleirum að Dagur er eingöngu yfirborð. Þruglkenndir illskiljanlegir langhundar sem hann fer með eru ekki sérstök tækni eins og einhverjir héldu um skeið. Hann er bara svona. Tveimur vikum fyrir síðustu kosningar og eftir átta ár við völd tók hann óvænt að lofa því að „setja Miklubraut í stokk“ og voru verktakar þá í óða önn að láta handraða grjóti í net beggja vegna við hana og áttu enn ófrágengið verkið Klambratúnsmegin! Þeir vissu ekki hvort þeir ættu að trúa á stokk eða steina. Altækt ábyrgðarleysi Þótt góðæri ríki í landinu og skatttekjur streymi inn í borgarsjóð þar sem skattpíning er eins mikil og lög frekast leyfa er fjárhagsstjórnin samt í uppnámi, og upplýsingar um fjárhagsstöðuna eru út og suður svo enginn skilur, og síst sá sem fær borguð forsætis- ráðherralaun fyrir það. Fjárhagsstjórnunin er þó þýðingarmesta verkefni hvers borgarstjóra. Fasteignagjöld, sem lögð eru á borgarbúa og eru öðrum þræði þjónustugjöld, hafa hækkað mjög óeðlilega vegna þess að fasteignaverð hefur rokið upp og ekki síst vegna heimatilbúins vanda í lang- stærsta sveitarfélagi landsins. Borgarstjórinn hefur nú árum saman verið með glærusýningar og slengt um sig loforðum um lóðaúthlutanir sem ekkert hef- ur orðið úr. Þegar tjaldið féll og veruleikinn varð ljós hrundu væntingarnar og fyrirsjáanlegur viðvarandi lóða- skortur ýtti fasteignaverðinu í hæstu hæðir. Borgarstjórnin eyðir sínum tíma helst í að tryggja að auðmenn geti keypt sér miðlægar eignir á 400 milljónir króna íbúðina og þykjast með því vera að greiða götu ungs fólks til að koma þaki yfir höfuðið! Því til viðbótar hafa nú verið lögð á viðbótarbygg- ingargjöld á hverja byggða íbúð og talsmenn borg- arbúa segja að þau gjöld hafi engin áhrif á verð íbúða í borginni. Hvern er verið að blekkja? Halda Ævintýri á afturför ’ Enginn býst við neinum viðbrögðum frá Degi Eggertssyni, sem myndi líklega byrja á því að fá vottorð frá undirsáta um að honum væri þetta mál jafn óviðkomandi og annað í borgarrekstrinum. En það kemur á óvart að æðstu stjórnendur, í næstu tröppu fyrir neðan ábyrgðarleysið al- gilda, séu orðnir svona samdauna hinni dug- lausu yfirstjórn. Reykjavíkurbréf17.08.18

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.