Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.08.2018, Blaðsíða 29
19.8. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
una þurfi að láta starfsfólk vita hvað
ætlunin sé að stoppa lengi, því panta
þurfi sæti í rútunni til að komast til
baka. Hún mælir með því að fólk
geri ráð fyrir um þriggja tíma
stoppi, sé ætlunin að fá sér hress-
ingu í Arnarhreiðrinu.
„Röðin í lyftuna var óralöng. Við
biðum í fimmtíu mínútur bara eftir
því að komast í lyftuna. En biðin var
vel þess virði, því útsýnið var stór-
kostlegt. Og leiðin niður tók mun
styttri tíma,“ segir Alda.
Eftir heimsóknina í Arnarhreiðrið
hélt hópurinn til bæjarins Füssen
þar sem hann gisti eina nótt. „Füss-
en er æðislegur bær,“ segir Alda.
„Þar er meðal annars Neuschwan-
stein-kastalinn. Mér skilst að hann
sé fyrirmynd Disney-kastalans og
bara það að sjá hann var geggjuð
upplifun.“ Hún segir bæinn sjálfan
mjög skemmtilegan með litlum
þröngum götum og þar hafi verið
gaman að ganga um.
Frá Füssen keyrði hópurinn yfir
til Sviss en ákvað að koma við í bæn-
um Feldkirch, sem Alda segir til-
heyra Austurríki og vera afar fal-
legan. „Þarna eru hús alveg frá
miðöldum og byggingarnar eru ótrú-
lega fallegar. Áin Ill rennur þarna í
gegn og það er ótrúlega sérstakur
litur á henni; hún var eiginlega him-
inblá. Við tókum okkur smátíma
þarna áður en við héldum áfram. Við
komum svo aðeins við í Liechten-
stein áður en við fórum yfir til
Sviss,“ segir Alda.
Hópurinn kom til Sviss 1. ágúst,
en svo skemmtilega vill til að það er
afmælisdagur Öldu. „Við gistum í
bæ sem heitir Wilderswil. Þegar við
komum þangað var rosalega mikið
af fólki niðri í bæ og allir í þjóðbún-
ingum og þarna var mikil stemning.
Okkur var sagt að það væri að byrja
flugeldasýning svo við ákváðum
bara að elta fólksstrauminn. Og við
sáum ekki eftir því; þetta var
stærsta og lengsta flugeldasýning
sem ég hef séð. Hún tók nítján mín-
útur; ég tók tímann,“ segir Alda og
hlær.
Eins og víða í Evrópu hefur hitinn
á þessu svæði verið gríðarlega mikill
í sumar og miklir þurrkar. Alda seg-
ir að öryggisgæslan hafi verið
ströng; slökkviliðið hafi verið til taks
og gætt þess að almenningur færi
ekki inn á svæðið þar sem flugeld-
unum var skotið upp. Slökkviliðs-
mennirnir hefðu þar að auki gætt
þess að hvergi leyndust glæður í
gróðrinum eftir flugeldana. Alda
segir óhætt að segja að þetta hafi
verið eftirminnilegur afmælisdagur.
„Ég held að ég verði bara alltaf að
vera í Sviss á afmælisdaginn minn
héðan í frá,“ segir hún og skellir upp
úr.
Pöntuðu matinn í blindni
Næsta dag fór hópurinn upp á fjallið
Schilthorn en þangað er farið með
kláfum, sem Alda segir að hafi verið
einstök reynsla. „Sérstaklega fyrir
tvær okkar sem erum frekar loft-
hræddar,“ segir Alda hlæjandi. „Það
þarf að taka fjóra kláfa upp á topp-
inn, sem er í tæplega þrjú þúsund
metra hæð, svo það verður að skipta
um kláf á nokkrum stöðum. Og þótt
hver ferð taki ekki langan tíma þarf
fólk að gera ráð fyrir því að bíða dá-
góða stund eftir að komast um
borð.“
Á toppi Schilthorns var tekið upp
atriði í James Bond-myndinni On
Her Majesty’s Secret Service, sem
kom út árið 1969, og segir Alda að
staðurinn beri þess merki. Meðal
annars hafi lög úr Bond-myndum
verið spiluð í kláfunum.
Frá Sviss fóru Alda og ferðafélag-
arnir yfir til Frakklands og gistu
eina nótt í Annecy. „Það var nokkuð
löng keyrsla þangað en alveg þess
virði,“ segir Alda. „Þetta er fallegur
staður, þarna eru gömul hús og mik-
ið mannlíf. Götulistamenn á hverju
götuhorni. En ekki gera ráð fyrir því
að neinn tali ensku. Við fórum á veit-
ingastað um kvöldið sem leit vel út.
Matseðillinn var bara á frönsku, sem
við skildum ekki, og þjónninn talaði
með svo sterkum hreim að við skild-
um hann eiginlega ekki heldur.
Þannig að við bentum bara á ein-
hverja rétti sem myndir voru af og
okkur leist ágætlega á. En réttirnir
voru sem sagt bara kartöflur og ost-
ar.“ Hún hlær og bætir við að ekkert
þeirra hafi langað í kartöflur og ost
eftir þetta.
Frá Annecy keyrði hópurinn yfir
til Zürich þar sem tónleikarnir með
Ed Sheeran voru haldnir. „Þar gist-
um við á hóteli sem var hinum megin
við götuna frá tónlistarstaðnum og
það var algjör snilld að geta bara
rölt á milli.“ Næsta dag keyrði hóp-
urinn aftur til München og gisti þar
áður en haldið var heim til Íslands
með flugi næsta dag.
Áin Ill rennur í gegnum bæinn
Feldkirch í Austurríki. Alda segir
litinn á ánni ótrúlega sérstakan,
eiginlega himinbláan.
Röðin að lyftunni í Arnarhreiðrinu var löng og biðu Alda og ferðafélagarnir í
fimmtíu mínútur eftir að komast í lyftuna.
Kláfurinn sem flutti hópinn frá Birg upp á tindinn Schilthorn, sem er í tæplega
þrjú þúsund metra hæð yfir sjávarmáli.
’Ég held að ég verðibara alltaf að vera íSviss á afmælisdaginnminn héðan í frá.
Meðfram Schilthorn-tindinum liggur 200 metra göngubrú sem kallast The
Thrill Walk og er það réttnefni. Göngubrúin er úr stáli og gleri og má telja lík-
legt að það fari aðeins um lofthrædda sem ganga eftir brúnni. Þeir hörðustu
geta að auki gengið eftir línu úr stáli, en það er þó öryggisnet undir.
Íslensk hönnun - Íslenskt handverk
Arndís Jóhannsdóttir ásta créative clothes
Sunna Sigfríðardóttir
Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990
www.kirs.is,
Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun
Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17
SÍGILDIR SUNNUDAGAR
Fyrsta flokks
kammertónlist
Sígildir sunnudagar eru klassísk
tónleikaröð þar sem boðið er upp
á fjölbreytt úrval kammertónleika.
Sunnudaga
kl. 16:00 í Hörpu