Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.08.2018, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.08.2018, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.8. 2018 Íbúar Sjanghæ í Kína hafa undanfarið leitað skjóls frá hitanum í verslunargötunni Nanjing. Hún er jafnan eins tóm á kvöldin og hún er troðin á dag- inn en nú er undantekning þar á því íbúar úr ná- grenninu hafa sofið þarna úti í ágúst. Flestir eru karlmenn en inni á milli má sjá konur og börn. Hitinn í þessari 24 milljóna manna borg hefur margoft farið yfir 35°C í sumar. Fólkið sem sefur á götunni vegna hitans býr í lágreistum húsum í gömlum hverfum borgarinnar og er oft ekki með loftkælingu eða þarf að spara rafmagnið. Gustur frá Huangpu-ánni nær að kæla Nanjing-götuna. Íbúar borgarinnar eru þekktir fyrir að flykkjast á neðanjarðarlestarstöðvar, verslunarmiðstöðvar, bókasöfn og matvöruverslanir til að kæla sig í hita- bylgju. Útibú IKEA eru líka sérstaklega vinsæl hjá gestum sem þurfa kælingu. Það er líklegt að fleiri muni þurfa að sofa úti í framtíðinni því Sjanghæ er sífellt að hitna. Methiti, 40,9 °C, mældist í júlí í fyrra og hitamet maímán- aðar var slegið á þessu ári. Átta af tólf heitustu dögum í borginni á undanförnum hundrað árum hafa verið á síðustu fimm árum, samkvæmt frétt AFP. Hitabylgjan í Evrópu og víðarhefur vart farið framhjáneinum sem fylgist með fréttum eða ferðast. Á hverju sumri koma svona fréttir með myndum af börnum í stórborgum Evrópu að baða sig í gosbrunnum til að kæla sig. Núna er hitinn hins vegar meiri og varir í lengri tíma og þá kárnar gamanið, en buslugangurinn er bara skemmtilegur í takmakaðan tíma og hitinn verður á endanum vandamál. Það er staðreynd að í næstum öllum löndum eru fleiri lagðir inn á sjúkra- hús og fleiri látast þegar hitinn fer yfir 35 °C. Hitinn í sumum borgum nálgast 50 °C. Á þessu ári mældist methiti, 48,9 °C, í Chino, sem er 50 km frá Los Angeles, 47 °C mældust í Sydn- ey og hitinn í Madrid og Lissabon fór upp fyrir 40 °C. Samkvæmt nýjum rannsóknum gæti hitinn í Frakklandi farið yfir 50 °C í lok aldarinnar en það mun gerast fyrr í áströlskum borgun. Í Kúveit gæti hitinn farið upp í óbyggilegar 60 °C. Það er mikilvægt fyrir yfirvöld að bregðast við og leita leiða til að kæla borgirnar. Það þarf að spara vatn, skapa skugga og endurspegla hitann til að kæla ákveðin svæði. Borgir þar sem mikið er af grænum svæðum og skugga munu þrífast betur. Sterk tengsl eru á milli grænna svæða í hverfi og þess hversu ríkt það er. Skuggi frá trjákrónum getur lækkað yfirborðshitann um 11-25 °C. „Umhverfi og landslag spáir fyrir um hversu margir láta lífið í hita- bylgjum,“ segir Tarik Benmarhnia í samtali við Guardian. Hann rann- sakar lýðheilsumál við Háskólann í Kaliforníu í San Diego. Rannsókn sem hann vann nýlega að í samvinnu við aðra leiddi í ljós að þar sem gróð- urinn var minni var 5% líklegra að fólk léti lífið vegna hita. Loftkældir hundakofar Dýrin þjást líka í hitanum og geta lausnir á smærri skala gagnast þar. Frumkvöðullinn Chelsea Brownride í New York hefur búið til hundahús með loftkælingu. Eigendur borga 30 sent fyrir mínútuna, eða um 33 krónur. Tilgangurinn er að hægt sé að skilja hundinn eftir á öruggum stað á meðan eigandinn skreppur inn í verslun/bensínstöð á ferðalagi. Hundar eru yfirleitt bannaðir á slík- um stöðum en of heitt er fyrir hundana til að eigandinn geti skilið þá eftir í bílnum. Fyrirtækið heitir DogSpots og vill Brownride sjá hús- in sem víðast en sem stendur leyfa lög borgarinnar það ekki, þannig að hún hefur einbeitt sér að öðrum borgum og hraðbrautum út úr New York-borg. Eykur bilið á milli ríkra og fátækra Þetta er kannski lúxusvandamál en hækkandi hiti mun dýpka gjána á milli ríkra og fátækra. Það kom rækilega í ljós í hitabylgjunni í Que- bec í Kanada í júlí, en þar létust yfir 90 manns á rúmlega viku. Vel stæðir geta auðveldlega kælt sig á loftkæld- um vinnustöðum og heimilum og heimsótt verslunarmiðstöðvar. Heimilislausa fólkið er óvelkomið á slíkum stöðum og er í mestri hættu. Borgir hitna meira en þar sem færra fólk býr, vegna þess að mal- bik, múrsteinar, steypa og dökk þök draga í sig hita á daginn og gefa hann frá sér á nóttunni. Í slíkum að- stæðum er loftkæling mikil lífsbjörg fyrir þá sem hafa efni á því en göt- urnar verða enn heitari fyrir þá sem hafa ekki efni á loftkælingu. Ljóst er að þetta verður mikilvægt viðfangs- efni á næstu árum, en samkvæmt WHO, Alþjóðaheilbrigðismálastofn- un SÞ, munu 60% mannkyns búa í borgum árið 2030. Sjóðheitar stórborgir Hækkandi hiti í heiminum hefur heilmikil áhrif í stórborgum, sem þurfa að laga sig að breyttum veruleika. Það er hættulegt að vera fátækur í hitabylgju. Sofa úti í Sjanghæ AFP Einn af mörgum sem hafa sofið úti í versl- unargötunni Nanjing. Í Tókýó var m.a. brugðist við hitabylgj- unni með athöfninni Uchimizu, sem snýst um að dreifa vatni á götur og gangstéttir til að kæla borgina niður. AFP ’ Það að deyja í hitabylgju er eins og að vera eldaður hægt. Það er algjör pynting. Ungir og gamalt fólk er í sérstakri hættu en við komumst að því að mikill hiti getur drepið hermenn, íþróttafólk, alla. Camilo Mora, prófessor sem hefur rannsakað loftslagsbreytingar. ERLENT INGA RÚN SIGURÐARDÓTTIR ingarun@mbl.is AFGANISTAN KABÚL 48 eru látn- ir og 67 slasaðir eftir sjálfsmorðssprengju- árás í menntamiðstöð í borginni á miðviku- dag. Flestir hinna látnu voru ungmenni sem voru að sitja aukanámskeið til undirbúnings inntökuprófa í háskóla. Árásum hefur fjölgað í Afganistan að undanförnu. BANDARÍKIN VERMONT Christine Hallquist verður frambjóðandi Demókrata- fl okksins til ríkisstjóra í Vermont eftir að hafa borið sigurorð af þremur öðrum. Hún gæti því orðið fyrsta transmanneskjan sem verður ríkisstjóri í Bandaríkjun- um en hún tekst á við repúblik- anann Phil Scott í kosn- ingunum í nóvember. ÍTALÍA GENÚA 39 eru látnir eftir að brú á hraðbraut hrundi og ríkir mikil sorg og reiði í landinu. Ekki er búist við því að fl eiri fi nnist á lífi undir Morandi- brúnni en þar hröpuðu nærri 40 ökutæki 45 metra á þriðjudaginn. Ekki er enn vitað hvað olli hruninu. Að minnsta kosti þrjú börn eru á meðal hinna látnu. 16 manns eru á sjúkrahúsi en 12 þeirra eru alvarlega slasaðir. NÝJA-SJÁLAND Búið er að banna stórum hluta útlendinga að kaupa fasteignir á Nýja-Sjálandi en þetta er gert í þeirri von að gera húsakaup auðveldari fyrir íbúa. Fasteignaverð er hátt í landinu en lágir vextir, tak- markað framboð og fólksfl utningar til landsins hafa valdið hækkuninni. Bannið nær ekki til þeirra sem hafa dvalarleyfi í landinu. Ástralir og fólk frá Singapúr mega kaupa fasteignir í landinu vegna fríverslunarsamninga. Hingað til hafa Kínverjar verið stór- tækir í fasteignaviðskiptum í landinu.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.