Þróttur - 01.12.1921, Qupperneq 23
f> R Ó T T U R
99
Eins og minst var á í Kprótticc í fyrra
sumar hefir verið stofnað hér í bæ fé-
lag til þess að iðka Lawn-Tennis. Hér
skal minst á þetta nokkrn nánar, ekki
þó til þess að fá menn til að ganga í
félagið, því að það þjáist af »húsnæðis-
leysi« eins og svo margir aðrir á þess-
um síðustu og verstu tímum, heldur til
þess, ef verða mætti, að vekja athygli
manna á þessum leik, sem án efa er
einn hinna allra fremstu knattleika, svo
ekki sé meira sagt.
Lawn-Tennis hefir þegar um langan
aldur verið iðkaður í »öllum siðuðum
löndum, að íslandi undanteknu«. Að
uppruna er leikurinn franskur, en Eng-
lendingar, sem eru (eða hafa að minsta
kosti verið) fremsta knattleikaþjóð
faeimsins, hafa þó gert hann að því
sem hann er nú. Eins og fyrri hluti
uafnsins ber með sér er eiginlega ætlast
til að hann sé leikinn á grasi, enda er
það gert víðast hvar í Englandi og ann-
arsstaðar þar sem tök eru á. En ekki
er þó svo að skilja að mikið gras megi
vera á vellinum, heldur aðeins grasrót,
°g hún svo snögg sem unt er, auk þess
verður völlurinn að vera rennisléttur
°g vel harður.
Að búa til slíkan völl þar sem hann
er ekki til frá náttúrunnar hendi tekur
afar langan tíma, og hér á landi yrði
óvist um ábatann þótt það yrði gert,
þvi að hann verður ekki notaður ef
lóann er rakur, hversu lítið sem að því
kveður, og því yrði sjaldan hægt að
nota hann að morgni dags. Þá er að
finna önnur úrræði, og eru þau fleiri en
eitt, en það einasta sem verulega gæti
komið til mála hér á landi eru mal-
bornir vellir, því að bæði malbikaðir
og múraðir vellir liafa svo marga ókosti,
sem óþarfi er að fara nánar út í hér.
Malbornir vellir eru fyrst og fremst ekki
mjög dýrir, og viðgerðir á þeim eru
ekki dýrar heldur, en þær þarf að gera
í tíma, þótt óþjóðlegt sé.
Um ganginn í sjálfum leiknum skal
hér ekki talað — þar sem von er á
leikreglum á íslenzku innan skams.
Um nytsemi leiksins geta allir orðið
sammála sem nokkuð þekkja til hans.
Fyrst er að benda á það að hann er
við allra — nokkurn vegin heilbrigðra
— hæfi, jafnt barna sem fullorðinna,
kvenna sem karla. I því tilliti er hann
mörgum íþróttagreinum framar. í öðru
lagi, ef borin er saman við vinsælustu
íþrótt hérlendis, knattspyrnuna, þá hefir,
hann fram yfir hana meiri handleggja-
æfingu, og auk þess það, að leikendur
fá frekar allir að hreyfa sig, og það
nokkurn veginn stöðugt, ennfremur
heimtast í L-T. ennþá meiri nákvæmni
og snarræði en í knattspyrnu, þótt ef
til vill þyki mikið sagt. í þriðja lagi
má og telja það kost, hversu fáir leika
saman (2, 3 eða 4), svo að ekki þarf
að eiga það undir heilum mannsöfnuði
(4neð áhuganum góðkunna) hvort nokk-
uð verður aðhafs í það skiftið. Fleiri
kosti mætti upp telja, en það sem hér
hefir verið sagt getur dugað í bráðina,
því að ókostina verður líka að telja,
svo að ekki verði litið of einhliða á
málið. Þá er hinn fyrsti sá, að Ieikur-
inn er mjög veðurvandur, og það meir
en góðu hófi gegnir, ef sumrin verða