Jökull - 01.12.2003, Page 60
Oddur Sigurðsson
Múlajökull suður – Mæling fyrra árs benti til fram-
gangs nú en Leifur segir ekkert benda til þess enda
var mælingin í fyrra talin ótrygg og því felld niður.
Mæling þessa árs gildir því fyrir tvö ár.
Sátujökull á Lambahrauni – Bragi Skúlason segir að
komið hafi ný kvísl alveg í mælilínu og rennur með-
fram jaðrinum til vesturs.
Sátujökull sunnan Eyfirðingahóla – Lítilsháttar
brennisteinsfýla var við úthlaup kvíslarinnar sem hef-
ur greinilega verið mikil oft í sumar.
Kvíslajökull – Bergur Einarsson og Björn Oddsson
háskólanemar tóku Kvíslajökul, sem gengur vestur úr
Hofsjökli, í fóstur og hyggjast vitja hans á komandi
árum.
MÝRDALSJÖKULL
Sólheimajökull – Í skýrslu feðganna Einars og Gunn-
laugs, sem er gerð af vanalegri vandvirkni, segir að
stutt sé orðið í að opnist fyrir jökulsporðinn inn í Jök-
ulsárgil. Þar er og sagt frá að jökullinn hafi brotn-
að mikið í sporðinn og jakaburður var niður að brú
þann 25. október. Með þessu fylgja myndir teknar
27. október til sannindamerkis. Það eru án vafa afleið-
ingar einhverskonar hlaups eða vatnavaxta. Á mælum
Vatnamælinga Orkustofnunar urðu talsverðir vatna-
vextir vegna úrkomu í Jökulsá á Sólheimasandi 10. og
11. október en ekki síðar í þeim mánuðinum. Sam-
bandið milli jakadreifar og hlaups er því óskýrt enn.
Sléttjökull – Jarðfræðingarnir Ingibjörg Kaldal og
Skúli Víkingsson fóru nú í aðra vitjun sína að jökl-
inum innan við Smáfjöll innst á Emstrum. Með grein-
argerð þeirra fylgir jarðfræðikort sem vonandi verður
unnt að birta með tíð og tíma.
VATNAJÖKULL
Síðujökull – Hannes Jónsson segir jökulinn hækka
allört upp en væri þó greiðfær á jeppa og göngufæri
á jökli ágætt.
Skeiðarárjökull vestur – Í skýrslu Hannesar segir að
Súla hafi náð sér í nýjan farveg og styttist í að hún
fari austur í Gígjukvísl. Næsta sumar gæti smááll náð
sér austur í gegn um tjarnirnar niður á sand. Hop jök-
ulsins muni ganga ört áfram en Súluparturinn er að
mestu dauður. Fyrir miðjum jökli er lækkunin síðustu
ár alveg með ólíkindum.
Skeiðarárjökull austur – Ragnar þjóðgarðsvörður í
Skaftafelli segir hins vegar allt aðra sögu um jökuljað-
arinn austanverðan. Á honum hafa orðið litlar breyt-
ingar þótt hann virðist lækka nokkuð.
Við austurjaðar Morsárjökuls er enn nokkuð stórt
lón en aðeins einn ísjaki á því. Jökullinn dregst enn
mest saman við vesturjaðarinn og þar hafa stórir klett-
ar komið í ljós.
Svínafellsjökull – Guðlaugur Gunnarsson frá Svína-
felli segir jökla þar rýrna mjög og nýja kletta koma
fram þar sem þeir skríða niður fjöllin.
Kvíárjökull – Helgi Björnsson á Kvískerjum telur
mælinguna ekki segja nógu mikið um ástand jöklanna
og sendi því eftirfarandi lýsingu: „Þar sem hægt er að
greina sjálfan jaðar jökulsins sýnist hann hafa gengið
til baka og lækkað. Þá hefur syðsti hluti hans hald-
ið áfram að sökkva í lón, en framan við jaðar hans er
töluverð spilda þakin þykku aurlagi. Hún virðist vera
kyrrstæð og er skilin frá aðaljökulsporðinum með all-
myndarlegum lónpolli. Þetta veldur því að nokkuð
erfitt er að mæla hann (sjá 2. mynd).“
Hrútárjökull – „Þó að jaðarinn, sem þakinn er þykku
aurlagi eins og áður, mælist vera kyrrstæður hefur jök-
ullinn í heild sýnilega gengið saman. Til dæmis næst
Múlanum alllangt vestur af mælingarstaðnum kom nú
í sumar í ljós myndarlegur klettahamar. Spölkorn fyr-
ir ofan útfall Hrútár, sem er nálægt Ærfjallsrönd, hef-
ur hún brætt af sér jökulinn og fer eftir opnum far-
vegi nokkra tugi metra, en síðan fer hún eftir lokuðum
göngum fremsta hlutann. Svo er áberandi breyting við
Ærfjall. Þar hefur lækkað til muna og botnurðin kom-
ið í ljós. Þá hefur einnig jökulbrúnin á klettinum milli
Múla og Ærfjalls minnkað.“
Fjallsjökull – „Stór hluti Fjallsjökuls endar í lónum.
Töluverð spilda milli þessara lóna nær þó enn að föstu
landi upp af Hrútárbrú þar sem mælingastaður er nú.
Frá austanverðri Ærfjallsrönd hefur komið talsverður
lækur undanfarin ár, sem runnið hefur í allstórt lón of-
an við Gamlasel en þaðan vestur í Hrútá þar til nú í
sumar að grunnur Fjallsjökuls hefur lækkað svo mjög
þarna, að þetta lón fær afrennsli austur með jöklin-
um og rennur nú austur í Fjallsárlón. Frá þessu lóni
er verulegur halli austur, enda hefur lækurinn grafið
sér djúpan farveg niður í þennan halla. Farvegurinn
er með lóðréttum veggjum. Efnið er gróf jökulurð
58 JÖKULL No. 53, 2003