Jökull - 01.12.2003, Qupperneq 68
Magnús T. Guðmundsson
Skráðir félagar 1. febrúar voru 446. Þar af voru
heiðursfélagar 14, almennir félagar 381, fjölskyldu-
félagar 8, fyrirtæki og stofnanir 43 og námsmenn 4.
Einnig eru um 50 bréfafélagar auk þess sem Jökull er
sendur 7 fjölmiðlum og erlendir áskrifendur eru rúm-
lega 60. Samanlagt eru þetta um 560 aðilar.
FJÁRMÁL
Fjárhagur félagsins er traustur. Helstu tekjuliðir eru
árgjöld og erlendar áskriftir Jökuls, gistigjöld í jökla-
húsum og styrkir vegna útgáfu Jökuls. Aðrir liðir
eru smærri en skipta þó máli eins og leigutekjur af
bíl vegna mælingaverkefna. Helstu gjöld eru útgáfa
Jökuls, rekstur jöklahúsa og bíls auk annars rekstrar.
Rekstur húsanna kemur óvenjuvel út þetta árið eins
og reikningar gjaldkera sýna. Árið er þó langt því frá
að teljast dæmigert því að nánast engar framkvæmdir
voru við önnur hús en nýja Esjufjallahúsið en kostn-
aður við það kemur ekki fram í rekstrarreikningi. Að
eiga og reka jöklabíl er mjög dýrt. Stjórnin hefur þó
talið þann kostnað nauðsynlegan til að geta sinnt af
trúmennsku markmiðum félagsins að stuðla að jökla-
rannsóknum og auðvelda ferðir um jökla. Nokkur
vinna fer á ári hverju í það að sækja styrki til útgáfu
Jökuls. Sem betur fer brást Menntamálaráðuneytið vel
við beiðni okkar og hækkaði útgáfustyrk sinn um 50
þús, í 250 þús. kr. Erfiðar gengur með Umhverfisráðu-
neytið en styrkur þess hefur farið lækkandi og nam
aðeins 50 þús. kr. þetta árið. Vegagerðin hefur jafn-
an sýnt skilning á starfi félagsins enda á hún töluvert
undir því að glöggar upplýsingar liggi jafnan fyrir um
stöðu jökullóna og eldvirkra svæða. Hefur Vegagerð-
in brugðist vel við beiðnum um styrki til afmarkaðra
verkefna, s.s. eins og flutnings Esjufjallaskála.
RANNSÓKNIR
Engin leið er að rekja allar jöklarannsóknir sem fram
fóru hér á landi á árinu í skýrslunni. Til þess eru þær
orðnar of umfangsmiklar en hingað kemur á hverju
ári fjöldi erlendra vísindamanna til margvíslegra rann-
sókna. Hér eru því eingöngu nefndar rannsóknir sem
félagið hefur átt aðkomu að auk nokkurra verkefna
sem vitað er um og ástæða þykir að nefna.
Vorferð
Ferðin stóð dagana 31. maí til 8. júní og var með hefð-
bundnu sniði. Farið var í Grímsvötn um Jökulheima
og Tungnaárjökul. Þátttakendur allan tímann voru 19.
Til viðbótar voru tveir fyrri hluta ferðar og fjórir slóg-
ust í hópinn síðustu dagana. Helstu verkefni ferðar-
innar voru eftirtalin:
1. Afkomumæling var gerð í Grímsvötnum, á Bárðar-
bungu og Háubungu. Í Grímsvötnum var árlagið 4.3
m á þykkt og vatnsgildi 2300 mm. Er það nærri með-
allagi.
2. Vatnshæð Grímsvatna var mæld og reyndist 1345 m
y.s. Stóðu vötnin því óvenjulágt enda kom smáhlaup í
apríl, það fyrsta frá því á árinu 2000.
3. Grímsvatnasvæðið var kortlagt með DGPS eins og
undanfarin ár til að fylgjast með breytingum á jarð-
hita.
4. Gjálparsvæðið var kortlagt með DGPS til að fylgj-
ast með hvernig dældin grynnist og breytist með tíma.
Hefur þetta verið gert árlega frá 1997.
5. Mælingar voru gerðar á ísskriði í Grímsvötnum,
Gjálp og Skaftárkötlum með uppsetningu og mælingu
á um 70 stikum.
6. Athuganir fóru fram á gosstöðvum í Grímsvötn-
um. Gígsvæðið var mælt upp og hitamælingar gerðar
í gjósku þar sem hita varð vart. Hitamælt var í vatni
vestast á gosstöðvunum. Nú sjást fyrstu merki þess að
gjóskan sé farin að límast saman, þremur og hálfu ári
eftir gosið.
7. Vitjað var um veðurstöðvar LV og RH á Tungnaár-
jökli og Brúarjökli.
8. Gerðar voru segulmælingar í Gjálp. Tilgangur
þeirra er að kanna hvort breyting hafi orðið á segul-
mögnun bergs í fjallinu sem myndaðist í gosinu 1996
sem gæfi vísbendingar um hvort umtalsvert magn
bólstrabergs sé að finna í fjallinu. Áður var mælt þarna
úr þyrlu í maí 1997.
9. Farin var tveggja daga ferð austur á Fláajökul og
Goðahnúka og unnið að íssjármælingum á því svæði.
Eru þessar mælingar liður í að ljúka kortlagningu
botns Vatnajökuls.
10. Kannaðar voru aðstæður í Kverkfjöllum. Meðal
annars var vatnshæð Gengissigs mæld. Vatnshæð var
30–40 m lægri en í fyrra en þá höfðum við skoðað
aðstæður á sama tíma. Vatnshæð í júní í fyrra var all-
66 JÖKULL No. 53, 2003