Jökull


Jökull - 01.12.2003, Page 70

Jökull - 01.12.2003, Page 70
Magnús T. Guðmundsson Samhliða kjarnaboruninni á Vatnajökli vann ann- ar hópur að borun gegnum íshelluna með hitavatnsbor Raunvísindastofnunar. Tilgangur borunarinnar var að ná sýnum af vatni undir hellunni og kanna hvort líf- verur þrífast þar. Borunin og sýnatakan tókst og merki um líf hefur fundist. Er því ljóst að Grímsvatnahrepp- ur er bæði lífvænlegur og á sinn hátt vafalaust gróður- sæll ef vel er að gáð. Forystu fyrir þessum rannsókn- um hefur Eric Gaidos við háskólann á Hawaii. Rannsóknir á fornum jökulhlaupum Rannsóknahópur á vegum háskólanna í Keele og Staffordshire í Englandi, í samstarfi við Óskar Knudsen jarðfræðing vann eins og síðustu ár að rann- sóknum á ummerkjum um forn jökulhlaup við Kverk- fjöll og annarstaðar við Jökulsá á Fjöllum. Jökulhlaup Nokkur jökulhlaup urðu á árinu. Í janúar kom óvænt smáhlaup í Jökulsá á Fjöllum. Ómar Ragnarsson fréttamaður fann upptök hlaupsins í Gengissiginu í Kverkfjöllum og því staðfest að þaðan koma öðru hvoru jökulhlaup. Lítið hlaup kom í Skeiðará úr Grímsvötnum í apríl. Einnig komu nokkur lítil hlaup úr Grænalóni á árinu. Skaftárkatlar hlupu báðir. Sá vestari í júlí og sá eystri í September. Hlaupin voru svipuð að stærð. Athygli vekur að nú hefur vest- ari ketillinn í fullu tré við þann eystri sem áður var mun öflugri. Lögun og dýpt Skaftárkatla er nú mæld í vorferðum JÖRFÍ. Eftirlit með Mýrdalsjökli Frá 1999 hefur verið í gangi sérstakt eftirlit með Mýr- dalsjökli vegna aukins óróa þar. Hluti þess verkefnis eru regluleg eftirlitsflug yfir jökulinn og sniðmælingar úr flugvél á stærð og dýpt sigkatla í jöklinum. Er þetta fyrsta reglubundna eftirlitið af þessu tagi með íslensk- um jöklum. Nýtist þar reynsla af atburðum í Vatna- jökli, einkum Gjálpargosinu 1996. Eftirlitið bendir til þess að nú hitni undir Kötlu, eldstöðin þenst út og jarðhiti undir jöklinum fer vaxandi samfara aukinni jarðskjálftavirkni. Líkur á gosi fara því vaxandi en engar spár er þó hægt að setja fram um tímasetningu slíks goss. FUNDIR Aðalfundurinn fór fram 26. febrúar í Norræna Húsinu og eftir venjuleg aðalfundarstörf flutti Árni Snorra- son forstöðumaður Vatnamælinga Orkustofnunar er- indi um samnorrænt verkefni sem ber heitið Veður- far, vatn og orka. Vorfundurinn var haldinn á sama stað 23. apríl. Þar flutti Magnús Tumi Guðmunds- son erindi um móberg á Suðurskautslandinu og Snæv- arr Guðmundsson sýndi myndir frá fjallaferðum vítt og breitt um landið. Haustfundurinn var 22. október. Þar voru teknar fyrir hugmyndir um virkjanir á Ís- landi. Sveinbjörn Björnsson, verkefnisstjóri ramma- áætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma og fyrr- verandi formaður JÖRFÍ kynnti áætlunina, aðferðir og frumniðurstöður. Að loknu erindi Sveinbjarnar hélt Oddur Sigurðsson myndasýningu sem hann nefndi „virkjanasvæði frá ýmsum hliðum.“ Aðsókn á fund- ina var ágæt, sérstaklega á haustfundinn en þar komu 80–90 manns. ÚTGÁFA JÖKULS Ekki náðist að koma út hefti af Jökli á árinu. Þó telst 51. hefti til ársins 2002 en hann kom úr prentsmiðju fyrir stuttu og eiga allir skilvísir félagar að hafa feng- ið hann í hendur. Í heftinu eru fimm ritrýndar vís- indagreinar, um landmótun í Ódáðahrauni, aldur jök- ulgarða við Fláajökul, kjarnaborun á Hofsjökli 2001, eftirlit með jarðhitasvæðum með skjálftamælingum og mælingar á þykkt Skeiðarársands. Þá eru í heftinu hefðbundnir kaflar um jöklabreytingar og félagsstarfið auk annars efnis. Fiona Tweed, lektor við Staffords- hire Háskóla í Bretlandi var gestaritstjóri nokkurra greina í 51. hefti Jökuls. Undirbúningur 52. heftis er að hefjast. FRÉTTABRÉF Umsjónarmaður fréttabréfsins er Sverrir Elefsen. Á árinu komu út fjögur fréttabréf. Fréttabréfin eru send í pósti til félagsmanna en einnig er hægt að finna þau á netsíðu félagsins www.jorfi.is. Blikur eru á lofti vegna afnáms sérstaks burðargjalds fyrir prentað efni. Nú þarf að greiða fullt póstburðargjald og lætur nærri að við það þrefaldist sendingarkostnaður. Það er ekki 68 JÖKULL No. 53, 2003

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.