Breiðfirðingur - 01.04.1942, Blaðsíða 43
brijiðfirðingur
33
þjóÖbraut þvera og' laðaði inn gesti, en matur stóð jafnan
á börðum.
Franxtakssemi bænda á Breiðafirði liefir jafnan verið
mikil, en ráðríkir voru þeir og vildu ógjarnan láta blut
sinn. Hefir svo verið fram að síðustu tímum. Á siðastlið-
inni öld báru þeir þó af í þessu, Eybreppingar og þeir, sem
bjuggu í vesturliluta Dalasýslu.
Nú er svo komið, að allt er jafnara. Þeir horfnir, sem
gnæfðu yfir fjöldann. Minna verður þess vart, að einn
beri af öðrum um allan höfðingsskap, hispursleysi og
þann þjóðlega brag, sem fylgdi áður einstaka mönnum.
Sá, er síðast bar af um, þessa hluti i béraði voru, er nú fall-
inn. Var það bændahöfðinginn Bjarni i Ásgarði.
II.
Bjarni í Ásgarði var fæddur 14. maí 1865, að Pálsseli í
Laxárdal. Foreldrar bans voru þau hjónin Jens Jónsson,
bóndi þar og kona bans Jóhanna Jónasdóttir. Fluttist lianu
á fvrsta ári með foreldrum sínum að Hóli í Hvamms-
sveit. Faðir Bjarna, Jens á Hóli, eins og hann ávallt var
kallaður, hafði bið mesta traust sinna samhéraðsmanna,
fvrir ráðdeild og beiðarlegleika i öllum viðskiptum, og
var liann forystumaður þeirra um kaupfélagsmál og flest
önnur framfaramál liéraðsins. Hann var sæmdur merki
dannebrogsmanna. Faðir Jens á IIóli var Jón bóndi i Sæl-
ingsdalstungu og síðar i Ásgarði, sonur Magnúsar rímna-
skálds á Laugum, en liann var af ýmsum talinn sonur
Magnúsar á Efra-Núpi Pálssonar lögmanns Vídalíns. Ann-
ars hét sá Jón og var Þorsteinsson, er opinberlega gekkst
við faðerni Lauga-Magnúsar. Móðir Jens á IIóli var Ingi-
hjörg Bjarnadóttir frá Ásgarði, Bæringssonar. I móður-
ætt var Bjarni heitinn kominn af góðu bændafólki.
Bjarni var þá ungur, er móðir hans andaðist. Kvæntist
faðir hans bráðlega aftur. Áttu þau stjúpmæðginin litt
skap saman, hún stórlynd, en hann rnikill fyrir sér, en
Jens bóndi fálátur og afskiptalítill um viðskipti konu
3