Breiðfirðingur - 01.04.1942, Side 83
KREIÐFIRÐINGUR
73
og liggja oft dauðir i hrönnum í fjörunum. Ekki er ennþá
kunnugt, hvaða sjúkdómur þetta er, en það mun vera undir
rannsókn, og fjölyrði ég ekki frekar um það að sinni.
Dúnninn er vara, sem tiltölulega lítið er framleitt af
í heiminum og er því ein af þeim fáu markaðsvörum,
er við framleiðum, sem tæplega er hætt við, að geti orðið
verðlaus á lieimsmarkaðinum sökum offramleiðslu.
Hinsvegar mun á flestum tímum hægt að fá allgott
verð fyrir dún, ef nógu vel er til hreinsunarinnar vandað.
Það er því auðsætt mál, að við þurfum að leggja mildu
meiri áherzlu á að auka dúnframleiðsluna, samfara vöru-
vöndun, heldur en verið hefir til þessa tíma.
En hvernig getum við aukið æðarvarpið?
Eyðing svartbaksins virðist ekki einhlít, eins og bent
er á hér að framan.
Ég ætla hér að henda á nýja leið, sem ennþá er að vísu
lítið reynd, en þó það mikið, að sannað er, að hún er vel
fær, og hún mun einnig reynast miklu fljótvirkari en
þær, er áður eru reyndar og ræddar. Ég á hér við útungun
æðarfugls með vélum.
Frá þvi er ég fyrst heyrði talað um, að liægt væri að
unga út egg'jum í vélum, hefi ég oft brotið heilann um,
hvort þetta mætti ekki takast með æðaregg.
Þegar ég svo síðar lærði meðferð og liirðingu útung-
unarvéla og notkun þeirra, þá varð ég þegar sannfærður
um, að þetta mætti einfiig takast með útungun æðarfugls.
Eftir að eg kom lieim til íslands aftur, liafa aðstæður
mínar verið þannig, að ég liefi ekki getað reynt þetta, þó
að ég hefði á því fullan hug. En nú vill svo vel til, að
áhugamaður vestur við fsafjörð liefst handa um að reyna
þetta. Þessi maður heitir Einar Kristjánsson og er bú-
settur á ísafirði.
Af þeim tilraunum, sem hann hefir gert með þetta 2
undanfarin ár, er það fullreynt, að hægt er að unga út
æðareggjum í vél með fullt svo góðum árangri eins og
hænueggjum, og auk þess virðast ungarnir lifseigir og