Fréttablaðið - 03.11.2018, Blaðsíða 11
Við látum framtíðina rætast.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum
www.volkswagen.is
Touareg Offroad.
3.0 TDI V6.
Verð 9.290.000 kr.
T- Roc.
Fjórhjóladrifinn og sjálfskiptur.
Verð 4.590.00 kr.
Fjórhjóladrifna fjölskyldan.
Tiguan Offroad.
Fjórhjóladrifinn og sjálfskiptur.
Verð 5.790.000 kr.
Tilboðsverð 4.990.000 kr.
Tiguan Allspace.
7 manna og rúmgóður.
Verð 7.635.000 kr.
Tilboðsverð 6.990.000 kr.
Í f lokki stærri jeppa Í f lokki jepplinga Í f lokki minni jeppa Í f lokki jepplinga
Bandaríkin Alls voru 250.000 ný
störf sköpuð í Bandaríkjunum í
síðasta mánuði, atvinnuleysi mæld-
ist 3,7 prósent og er það lægsta í
hálfa öld og laun hækkuðu um 3,1
prósent á milli mánaða, hafa ekki
hækkað meira í tæpan áratug. Þetta
kom fram í skýrslu sem vinnumála-
stofnun Bandaríkjanna birti í gær.
Skýrslan kemur á besta tíma
fyrir Repúblikana enda eru nú ekki
nema þrír dagar þangað til Banda-
ríkjamenn kjósa til beggja deilda
þingsins, til ríkisþinga, ríkisstjóra
og ýmislegs annars. Á fjölmörgum
stöðum er mjótt á munum á milli
frambjóðenda Repúblikana og
Demókrata og geta Repúblikanar
því stært sig af efnahagsmálunum
enda í meirihluta í báðum deildum
og með Hvíta húsið sömuleiðis.
Samkvæmt könnun sem Pew
Research birti fyrir um mánuði eru
efnahagsmálin ofarlega í huga kjós-
enda. Alls sögðu 74 prósent kjós-
enda að þau skiptu þá afar miklu
máli. Einungis tvö mál skoruðu
hærra, heilbrigðismál með 75 pró-
sent og skipan dómara í hæstarétt
með 76 prósent. Vert er að taka fram
að tilnefning Bretts Kavanaugh var
fyrir þinginu þegar könnunin var
gerð og gæti það skýrt þann mikla
fjölda sem nefndi skipan dómara.
En þótt staða efnahagsmála hafi
verið með ágætum að undanförnu
virðist það ekki enn hafa skilað sér
í auknum stuðningi við Donald
Trump forseta.
Samkvæmt vegnu meðaltali skoð-
anakannana sem FiveThirtyEight
birti mælist Trump með stuðning
42,1 prósents en 52,9 prósent segj-
ast ekki styðja forsetann.
Til samanburðar studdu 44,7 pró-
sent Barack Obama á sama tíma
forsetatíðar hans og ekki nema
42 prósent Ronald Reagan sem þó
vann öll ríki nema eitt þegar hann
sóttist eftir endurkjöri fyrir rúmlega
þrjátíu árum. – þea
Góðar fréttir fyrir Repúblikana
Sagður hættulegur íslamisti og líkið leyst upp í sýru
Unnustan krefst réttlætis fyrir Khashoggi
„Ég hef varla tilfinningu fyrir því
hvort það sé mánuður eða heil
lífstíð liðin frá því ég missti Jamal.
Biðin eftir því að hann kæmi út
af ræðisskrifstofunni leið eins
og hún hafi verið heilt ár. Ég var
full angistar. Það var sama hversu
lengi ég beið, hinn glaðlegi Jamal
sneri ekki aftur. Allt sem beið mín
voru fregnir af andláti hans,“ sagði
Hatice Cengiz, unnusta Khas-
hoggis, í grein sem hún skrifaði í
Washington Post í gær.
Í greininni sagði hún ekkert
geta útskýrt það hatur sem mætti
Khashoggi þegar hann gekk inn á
ræðisskrifstofuna. Mikilvægt sé
að minnast þess að Khashoggi
var blíður og kærleiksríkur maður
sem vildi sjá umbætur í heima-
landi sínu. Cengiz sagði að það
væri nú undir alþjóðasamfélag-
inu komið að draga hina seku til
ábyrgðar. Bandaríkin ættu að leiða
það verkefni en gætu það tæpast
þar sem stjórn Trumps forseta
væri rúin öllu siðferði, að sögn
Cengiz.
„Sumir í Washington virðast
vona að málið gleymist ef þeir
bara tefja nóg. En við munum
halda áfram að þrýsta á stjórn
Trumps að knýja fram réttlæti
fyrir Jamal. Það má ekki hylma yfir
þennan glæp,“ skrifaði Cengiz.
Þá sagði hún að tyrkneska
stjórnin væri að standa sig eins
vel og hægt er í málinu og bauð
leiðtogum ríkja Evrópu og Banda-
ríkjanna að standa saman gegn
Sádi-Aröbum. „Þeir sem fyrir-
skipuðu þetta morð, jafnvel þótt
viðkomandi séu háttsettir í sádi-
arabísku stjórnsýslunni, ættu að
vera dregnir fyrir dóm. Ég krefst
réttlætis fyrir minn heittelskaða
Jamal. Við verðum að senda skýr
skilaboð til alræðisstjórna um að
morð á blaðamönnum séu ekki
liðin.“
„Við erum að skoða að innleiða
þvinganir gegn þeim einstakling-
um sem við höfum nú þegar borið
kennsl á og teljum að hafi verið
viðriðnir morðið. Það mun trúlega
taka okkur nokkrar vikur til við-
bótar að safna nægjanlegum sönn-
unargögnum svo við getum komið
þvingununum á en ég held að við
munum gera það að lokum,“ sagði
Pompeo og bætti því við að Trump
hefði svarið að draga morðingja
Khashoggis til ábyrgðar.
thorgnyr@frettabladid.is
Hatice Cengiz,
unnusta Jamals
Khashoggi
f r é t t i r ∙ f r é t t A B L A ð i ða a 11L a U G a r d a G U r 3 . n ó v e m B e r 2 0 1 8
0
3
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:0
5
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
4
6
-3
F
9
0
2
1
4
6
-3
E
5
4
2
1
4
6
-3
D
1
8
2
1
4
6
-3
B
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
1
2
s
_
2
_
1
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K