Fréttablaðið - 03.11.2018, Blaðsíða 18
Fótbolti Heimir Guðjónsson er
búinn að koma sér vel fyrir í Fær-
eyjum þar sem hann stýrði liði
HB Tórshavn til sigurs í deildinni
á fyrsta tímabili sínu í Færeyjum.
Heimir söðlaði um og hélt til Fær-
eyja eftir að FH sagði upp samningi
hans. Í dag er nákvæmlega eitt ár
liðið frá því að hann skrifaði undir
og gekk fyrsta tímabilið betur en
hann hefði þorað að vona. Undir
stjórn Heimis setti HB nýtt stigamet
í deildinni með 73 stig úr 27 leikjum.
„Ég held að það sé alveg hægt að
segja að þessi árangur hafi verið
vonum framar. Síðustu tvö árin
hefur liðið lent í fimmta sæti og það
var kominn þorsti í að ná árangri.
Markmið liðsins var að komast í
Evrópukeppni en það var frábært
að ná titlinum strax í fyrstu tilraun,
það er alltaf jafn góð tilfinning að
vinna titla,“ segir Heimir og heldur
áfram:
„Auðvitað stefnir maður alltaf á
að vinna alla leiki og vinna alla titla
en við ræddum um að þetta gæti
tekið smá tíma. Leikmannahópur-
inn var tiltölulega ungur og það gæti
tekið 2-3 ár að búa til lið sem gerði
atlögu að titlinum en þetta small hjá
okkur þó að ekki hafi margir búist
við því að HB yrði meistari í ár.“
Tap strax í fyrsta leik
HB fékk skell í fyrsta leik tímabils-
ins, 0-3 tap gegn Klaksvík á heima-
velli sínum, en í næstu 26 leikjum
unnust 24 sigrar og fékk HB 73 stig
af 78 mögulegum.
„Það voru miklar væntingar fyrir
fyrsta leikinn, heimaleikur gegn
KÍ sem er með sterkan hóp og öfl-
ugan þjálfara. Við fengum á okkur
þrjú mörk úr föstum leikatriðum,
spennustigið var ef til vill of hátt en
fall reyndist fararheill. Það sem tók
við var magnað, ég man ekki eftir
því að hafa átt svona gott tímabil
áður.“
HB var í dauðafæri að vinna tvö-
falt heima fyrir en tapaði í víta-
spyrnukeppni gegn B36 í úrslitum
bikarsins í eftirminnilegum leik.
B36 jafnaði metin með síðustu
spyrnu leiksins og náði að knýja
fram framlengingu þrátt fyrir að
vera aðeins með níu leikmenn inná.
„Við getum ekki kennt neinum
öðrum en okkur sjálfum um þann
leik, við misstum alveg hausinn
þarna undir lokin þegar þeir vildu
leysa leikinn upp og koma þessu í
einhvern bardaga. Út frá því misst-
um við hausinn og fengum á okkur
mark á lokasekúndum venjulegs
leiktíma. Við fengum svo framleng-
ingu þar sem við sköpuðum einhver
færi en ekki nóg. Þá þurfti að grípa
til vítaspyrnukeppni og þar getur
allt gerst,“
Talsvert var um stimpingar í
leiknum.
„Færeyingar eru ekkert að æsa sig
yfir því að menn lendi í minniháttar
stimpingum úti á vellinum sem er
jákvætt að mínu mati. Það er ekki
verið að henda rauðu á menn þó að
það sé aðeins verið að ýta eins og oft
er annars staðar.“
Mikil ástríða í Færeyjum
Ástríðan fyrir knattspyrnu er mikil
í Færeyjum sem var eitthvað sem
heillaði Heimi þegar honum bauðst
starfið hjá HB.
„Þeir hafa mikla ástríðu fyrir fót-
bolta í Færeyjum og áhuginn er
mikill. Það er mikill uppgangur í
fótboltanum hérna og landsliðin
hafa verið að ná fínum úrslitum að
undanförnu og það heillaði mig,“
segir Heimir og bætir við:
„Færeyingar eru klókir við að
setja leiki á sama tíma og bæjar-
hátíðir fara fram og þá fjölmennir
fólk á leikinn og það myndast góð
stemming á föstudagskvöldum, eitt-
hvað sem var ekki hægt á Íslandi.“
Færeyska deildin er enn á eftir
þeirri íslensku í gæðum að mati
Heimis.
„Það er á hreinu að Pepsi-deildin
er sterkari en sú færeyska. Ef ég tek
HB sem dæmi sem ég þekki hvað
best þá tel ég að HB geti spilað í
Pepsi-deildinni en með núverandi
leikmannahóp mundum við ekki
berjast um titilinn heldur um miðja
deild. Ungir færeyskir leikmenn eru
ekkert langt á eftir þeim íslensku í
tækni en það vantar aðeins upp á
líkamlegan styrk.“
Mun skoða íslenska leikmenn
Heimir fékk tvo íslenska leikmenn
til liðs við sig, Brynjar Hlöðversson
og Grétar Snæ Gunnarsson. Brynjar
var tilnefndur sem leikmaður ársins
á fyrsta ári og er Heimir honum afar
þakklátur.
„Ég talaði við þjálfara sem hafa
unnið með Binna og aðra og það töl-
uðu allir vel um hann. Hann stóð sig
feikilega vel á þessu tímabili, sterkur
varnarlega og mikill leiðtogi í hópn-
um. Grétar kom aðeins seinna inn,
ég þekkti hann vel og hann stóð sig
vel þótt það hafi vantað örlítið upp
á stöðugleika. Það er eðlilegt hjá
ungum mönnum og ég er viss um
að hann verður góður knattspyrnu-
maður.“
Heimir gerir ráð fyrir að kanna
íslenska leikmannamarkaðinn fyrir
næsta tímabil.
„Ég mun örugglega reyna að
skoða íslenska markaðinn vel fyrir
næsta tímabil. Það er alltaf erfiðara
að verja titilinn og ég mun eflaust
reyna að fá einhverja leikmenn yfir
frá Íslandi,“ segir Heimir sem vonar
að íslenskir leikmenn séu tilbúnir
að taka skrefið yfir til Færeyja þar
sem liðið keppir í undankeppni
Meistaradeildar Evrópu.
„Það var ein af ástæðum þess að
ég vildi vera áfram, ég vildi leiða
liðið inn í undankeppni Meistara-
deildarinnar. Það eru ýmsir mögu-
leikar til staðar ef rétt er haldið á
spilunum.“
Hann segist ekki vera kominn
með færeyskuna á hreint en stefnir
á að ná betri tökum á henni.
„Ég er að skána hægt og bítandi.
Ég skil margt en það er erfiðara að
tala. Flestir fundir fara fram á ensku
en ég stefni að því að halda einn
fund á næsta ári á færeysku,“ sagði
hann léttur að lokum.
kristinnpall@frettabladid.is
Titill á fyrsta ári vonum framar
Fyrsta ár Heimis Guðjónssonar í Færeyjum gekk eins og í sögu. Lið hans bætti stigametið í deildinni og komst
í úrslit bikarsins. Heimir hreifst af ástríðu Færeyinga fyrir knattspyrnu og vonast til að fá fleiri Íslendinga yfir.
Heimir fylgist vandlega með á hliðarlínunni í leik með HB Tórshavn í haust. Mynd/HB TórsHavn
Fótbolti Arsenal tekur á móti Liver-
pool í stórleik helgarinnar í ensku
úrvalsdeildinni. Leikurinn hefst
klukkan 17.30 í dag. Liverpool er
í 2. sæti deildarinnar með 26 stig,
fjórum stigum á undan Arsenal sem
er í 4. sætinu. Rauði herinn getur því
skotist á toppinn í dag, allavega um
stundarsakir. Topplið Manchester
City mætir Southampton á morgun.
Bæði lið eru á góðum skriði.
Arsenal hefur unnið tólf af síðustu
13 leikjum sínum í öllum keppnum
eftir að hafa tapað fyrstu tveimur
leikjum sínum á tímabilinu. Töpin
komu gegn City og Chelsea en
Arsenal hefur ekki mætt liðum af
svipuðum styrkleika fyrr en nú.
Það reynir því á strákana hans Unai
Emery í dag.
Liverpool hefur unnið átta af
fyrstu tíu leikjum sínum í ensku
úrvalsdeildinni og gert tvö jafntefli.
Á sama tíma í fyrra var Liverpool
með átta stigum minna en nú. Aðal-
breytingin á milli ára felst í bættum
varnarleik. Liverpool hefur aðeins
fengið á sig fjögur mörk í fyrstu
tíu umferðunum en á sama tíma á
síðasta tímabili hafði liðið fengið á
sig 16 mörk.
Liverpool hefur ekki tapað fyrir
Arsenal frá því Jürgen Klopp tók
við liðinu haustið 2015. Síðan þá
hafa liðin mæst sex sinnum. Liver-
pool hefur unnið fjóra leiki og
tvisvar sinnum hefur orðið jafn-
tefli. Mörkin hafa flætt inn í þessum
sex leikjum en 4,5 mörk hafa verið
skoruð að meðaltali í þeim.
Arsenal hefur verið lengi í gang
í vetur og ef allir leikirnir hefðu
verið flautaðir af í hálfleik væru
Skytturnar í 17. sæti ensku úrvals-
deildarinnar. Liverpool væri hins
vegar á toppnum en liðið hefur leitt
í hálfleik í átta af tíu leikjum sínum.
Arsenal hefur aldrei leitt í hálfleik
í deildinni og aðeins skorað sex af
24 mörkum sínum fyrir hlé. Skytt-
urnar hafa varla efni á að byrja jafn
rólega gegn Rauða hernum og þær
hafa gert í flestum leikjum tíma-
bilsins. – iþs
Stórt próf fyrir Skytturnar
Það er mikill
uppgangur í fótbolt-
anum í Færeyjum, landsliðin
að ná góðum úrslitum og
það heillaði mig.
Heimir Guðjónsson
6
Liverpool er ósigrað í síðustu
sex leikjum gegn Arsenal.
Fótbolti Viktor Jónsson, marka-
kóngur Inkasso-deildar karla á síð-
asta tímabili, er genginn í raðir ÍA
frá Þrótti R. Framherjinn skrifaði
undir tveggja ára samning við ÍA
sem verða nýliðar í Pepsi-deildinni
á næsta tímabili.
Viktor er þriðji leikmaðurinn sem
gengur í raðir ÍA eftir að tímabilinu
lauk. Áður voru varnarmaðurinn
Óttar Bjarni Guðmundsson og fram-
herjinn Gonzalo Zamorano komnir
til Skagamanna.
Viktor, sem er 24 ára, er uppalinn
hjá Víkingi R. en hefur átt sín bestu
ár hjá Þrótti. Hann skoraði 54 mörk
í 61 leik með Laugardalsliðinu í
Inkasso-deildinni. Viktor hefur hins
vegar aðeins skorað fimm mörk í 43
leikjum í Pepsi-deildinni. – iþs
Viktor samdi
við Skagamenn
KörFubolti Miðherjinn Isabella
Ósk Sigurðardóttir verður ekki
meira með Breiðabliki á tímabilinu.
Hún er með slitið krossband. Í til-
kynningu frá Breiðabliki kemur
fram að Isabella fari í aðgerð eins
fljótt og auðið er.
Í fyrstu fimm leikjum Blika í
Domino's deildinni var Isabella
með 9,6 stig og 10,8 fráköst að með-
altali. Breiðablik situr í áttunda og
neðsta sæti deildarinnar án stiga.
Isabella, sem er 21 árs, hefur
leikið fjóra A-landsleiki. – iþs
Isabella Ósk frá
út tímabilið
Isabelle ósk sigurðardóttir er með
slitið krossband. FréTTaBlaðIð/Eyþór
Fótbolti Ég fann fyrir Þessum
meiðslum á æfingu tveimur dögum
fyrir leikinn gegn QPR um síðustu
helgi, en ég taldi þau ekki myndu
hamla mér frá því að taka þátt í
leiknum. Þau tóku sig hins vegar upp
í leiknum og ég gat ekki klárað leik-
inn,“ segir Birkir Bjarnason, lands-
liðsmaður í knattspyrnu, um meiðsl-
in sem hann varð fyrir í deildarleik
með Aston Villa í síðustu viku.
Þetta eru álagsmeiðsli en ekki
tognun þannig að ég ætti ekki að
verða lengi frá. Ég býst við því að geta
farið að æfa af fullum krafti um miðja
næstu viku og vonast til þess að geta
verið með um næstu helgi,“ segir
hann enn fremur um stöðu mála hjá
líkamlegu ástandi hjá sér.
Hann ætti því að vera klár í tæka
tíð fyrir leik Íslands gegn Belgíu í
Þjóðadeild UEFA sem fram fer um
miðja nóvember.
Aston Villa hefur farið hæ¦gt af
stað í stigasöfnun sinni í ensku B-
deildinni á yfirstandandi leiktíð
og nýverið var skipt um mann í
brúnni hjá liðinu. Birki líst vel á Dean
Smith, nýráðinn knattspyrnustjóra
liðsins, og segir hugmyndir hans um
hvernig eigi að spila fótbolta rí ma vel
við leikmannahópinn. – hó
Birkir býst
við að spila um
næstu helgi
3 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 l A u G A r D A G u r18 S p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð
sport
0
3
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:0
5
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
4
6
-2
1
F
0
2
1
4
6
-2
0
B
4
2
1
4
6
-1
F
7
8
2
1
4
6
-1
E
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
1
2
s
_
2
_
1
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K