Fréttablaðið - 03.11.2018, Blaðsíða 10
Við látum framtíðina rætast.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum
www.volkswagen.is
Touareg Offroad.
3.0 TDI V6.
Verð 9.290.000 kr.
T- Roc.
Fjórhjóladrifinn og sjálfskiptur.
Verð 4.590.00 kr.
Fjórhjóladrifna fjölskyldan.
Tiguan Offroad.
Fjórhjóladrifinn og sjálfskiptur.
Verð 5.790.000 kr.
Tilboðsverð 4.990.000 kr.
Tiguan Allspace.
7 manna og rúmgóður.
Verð 7.635.000 kr.
Tilboðsverð 6.990.000 kr.
Í f lokki stærri jeppa Í f lokki jepplinga Í f lokki minni jeppa Í f lokki jepplinga
Sádi-ArAbíA Lík sádiarabíska blaða-
mannsins Jamals Khashoggi var
leyst upp í sýru eftir að hann var
kyrktur og svo sundurlimaður á
ræðisskrifstofu Sádi-Arabíu í tyrk-
nesku borginni Istanbúl í upphafi
síðasta mánaðar.
Þetta höfðu tyrkneskir fjölmiðlar
eftir Yasin Aktay, ráðgjafa tyrkneska
forsetans Receps Tayyip Erdogan, í
gær. Aktay sagði að þetta væri það
eina hugsanlega í stöðunni þar sem
lík Khashoggis hefur ekki enn fund-
ist.
„Ástæðan fyrir því að lík Khas-
hoggis var sundurlimað var sú að
það auðveldaði þeim að leysa líkið
upp. Nú höfum við sem sagt komist
að því að þeir sundurlimuðu hann
ekki bara heldur leystu líkið upp,“
sagði Aktay.
Tyrkneskir miðlar greindu sömu-
leiðis frá því í gær að Mohammed
bin Salman krónprins hafi sagt í
símtali við bandaríska embættis-
menn, áður en Sádi-Arabar játuðu
að þeirra menn hefðu framið
ódæðisverkið, að Khashoggi væri
hættulegur íslamisti og meðlimur
Bræðralags múslima, róttækra sam-
taka íslamista. Símtalið var á milli
prinsins og þeirra Johns Bolton
þjóðaröryggisráðgjafa og Jareds
Kushner, ráðgjafa og tengdasonar
forseta. Það á að hafa átt sér stað
þann 9. október, viku eftir hvarf
Khashoggis.
New York Times greindi frá því
að vinir Khashoggis segðu að hann
hefði gengið til liðs við Bræðralag
múslima á sínum yngri árum. Hann
hafi hins vegar ekki verið virkur
meðlimur lengi.
Þessu neitaði fjölskylda Khas-
hoggis í orðsendingu til Washington
Post og sagði reyndar að blaðamað-
urinn hefði sjálfur ítrekað neitað
þessum staðhæfingum á meðan
hann lifði.
Mohammed bin Salman hefur
áður verið sakaður um að annað-
hvort fyrirskipa morðið eða líta
fram hjá því. Opinbera skýringin frá
Sádi-Arabíu er sú að hópur manna
hafi lagt á ráðin um að myrða Khas-
hoggi og svo framið verknaðinn í
óþökk stjórnvalda. Khashoggi var
þekktur stjórnarandstæðingur og
hafði ítrekað beint spjótum sínum
að Mohammed prins. Í síðasta pistli
sínum fyrir Washington Post, sem
birtist eftir andlát Khashoggis, sagði
hann að rík þörf væri á auknu tján-
ingarfrelsi í Arabaheiminum, til að
mynda í Sádi-Arabíu, og gagnrýndi
harðar aðgerðir gegn stjórnarand-
stæðingum.
Í viðtali við Fréttablaðið um síð-
ustu helgi sögðu tveir sádiarabískir
stjórnarandstæðingar í útlegð að
þeir óttuðust að prinsinn myndi
grípa til frekari aðgerða gegn stjórn-
arandstæðingum og sögðu prinsinn
jafnframt verri en einræðis herra
á borð við Saddam Hussein og
Muammar Gaddafi.
Í blaðinu í dag er svo rætt við
stofnanda sádiarabískrar hljóm-
sveitar sem segir Mohammed með
gullmedalíu í harðstjórn en dauða-
refsing er við bæði tónlist og textum
sveitarinnar.
Mike Pompeo, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði frá því í fyrri-
nótt að enn væru nokkrar vikur í
að viðskiptaþvinganir gegn Sádi-
Aröbum vegna máls Khashoggis
myndu líta dagsins ljós. Morðið
hefur komið illa niður á áratuga-
gömlu vinasambandi ríkjanna og er
þrýstingur á Trump forseta að grípa
til aðgerða gegn þessum banda-
mönnum sínum.
Sagður hættulegur íslamisti og líkið leyst upp í sýru
Blaðamaðurinn Jamal
Khashoggi var meðlim-
ur Bræðralags múslima
og hættulegur íslamisti
að því er krónprins
Sádi-Arabíu sagði við
bandaríska embættis-
menn. Ráðgjafi forseta
Tyrklands sagði frá því
að Khashoggi hefði verið
leystur upp í sýru en lík
hans hefur ekki fundist.
Enn vikur í þvinganir
af hálfu Bandaríkjanna
gegn morðingjunum.
3 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r d A G U r10 f r é t t i r ∙ f r é t t A b L A ð i ð
0
3
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:0
5
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
4
6
-4
E
6
0
2
1
4
6
-4
D
2
4
2
1
4
6
-4
B
E
8
2
1
4
6
-4
A
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
1
2
s
_
2
_
1
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K