Fréttablaðið - 03.11.2018, Blaðsíða 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti
kl. 5.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista Frétta-
blaðsins á www.frettabladid.is/
nyskraning. Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
Tölur vikunnar 28.10.2018 - 03.11.2018
23 milljónir, eða hálfa milljón á dag, hefur
Landsbankinn þurft að greiða
Fjármálaeftirlitinu í sekt frá því í
september. Sektin er til að knýja
á um að bankinn selji
hlut sinn í Eyri
Invest, stærsta
einstaka
hluthafa
Marels.
61%
Íslendinga er
hlynnt banni á
einnota plast-
pokum í verslunum
samkvæmt könnun
MMR. 21 prósent er á
móti banni.
600
umsækjendur
eru nú á biðlista
eftir leiguíbúð-
um hjá Hússjóði
Öryrkjabanda-
lags Íslands.
Lokað hefur
verið fyrir nýjar
umsóknir.
80 þúsund lítrar
af dísilolíu áætlar Strætó bs. að sparist í ár með
notkun þeirra 9 rafmagnsstrætisvagna sem
byrjað var að aka á árinu. Áætlað er að 14 raf-
vagnar verði komnir í fulla notkun í ársbyrjun
2019 og að þeir
spari Strætó allt
að 500 þúsund
dísilolíulítra á ári.
610
eru prentaðir
titlar í Bókatíð-
indum ársins.
11 bækur að meðaltali las hver Íslendingur á síðasta ári. 59
prósent Íslendinga 18 ára og eldri
fengu að minnsta kosti eina bók í
jólagjöf í fyrra.
MÁN ÞRI MIÐ FIM FÖS LAU SUN
JEEP COMPASS LIMITED®
jeep.is
UMBOÐSAÐILI JEEP Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
®
EINI JEPPINN Í ÞESSUM STÆRÐARFLOKKI SEM BÝÐUR UPP Á LÁGT DRIF.
Jeep
®
Compass er útbúinn með alvöru fjórhjóladrifi: Jeep
®
Active Drive, sem gerir ökumanni kleift að velja um fjórar drifstillingar sem taka mið af
akstursundirlagi hverju sinni, Auto, Snow, Sand og Mud ásamt því að læsa milli fram- og afturdrifs í Limited og til viðbótar í Trailhawk er fimmta
stillingin Rock ásamt lágu drifi. 2.0 lítra dísel 140 hö. eða 170 hö. og 170 hö. bensínvél. 9 gíra sjálfskipting.
Litli bróðir Jeep® Grand Cherokee.
JEEP® 7 DAGA VIKUNNAR. ALVÖRU JEPPI - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF.
ÖRFÁIR BÍLAR EFTIR Á GAMLA GENGINU
Inga Sæland
formaður Flokks
fólksins
kvaðst hissa á
fyrirhuguðu
frumvarpi um að
leyfa þungunar-
rof fram að 22. viku
meðgöngu þótt um heilbrigða
móður og heilbrigt barn væri að
ræða.
Vilhelm Gunnarsson
fréttaljósmyndari
sagði ljósmyndara
bara vera að
reyna að skrásetja
söguna. Lands-
réttur meinaði
ljósmyndurum
aðgang að öðrum
stöðum í dómhúsinu en and-
dyrinu þegar aðalmeðferð í máli
Thomasar Møller Olsen fór fram.
Vilhelm kveðst aldrei hafa upp-
lifað viðlíka aðstæður.
Heiðveigu Maríu
Einarsdóttur
frambjóðanda
til formanns
stjórnar Sjó-
mannafélags
Íslands
var vikið úr
félaginu í vikunni.
Verkalýðsforingjar hafa mótmælt
aðförinni að henni.
Þrjú í fréttum
Rof, bann og
brottvikning
Dómsmál „Það er ójafnræði í með-
höndlun ábyrgðarmanna námslána,
segir Daníel Isebarn Ágústsson lög-
maður og vísar til dómafordæma
Hæstaréttar. „Ef ekki var gert
greiðslumat hjá aðalskuldara er
ósanngjarnt af LÍN að halda ábyrgð
upp á ábyrgðarmann, hafi hún verið
veitt eftir 4. apríl 2009. Ef ábyrgðin
var aftur á móti veitt fyrir 4. apríl
2009 er sama vinnulag talið sann-
gjarnt af Hæstarétti,“ segir Daníel
Isebarn.
Hann segir að ekki eigi að skipta
máli þótt lög um ábyrgðarmenn
hafi tekið gildi 4. apríl 2009 enda
sé jafn ósanngjarnt fyrir og eftir þá
dagsetningu að halda ábyrgðinni
uppi. „Hæstiréttur hefur staðfest
þetta í fjölda dómsmála,“ segir
Daníel. Hæstiréttur hafi oft fjallað
um ábyrgðir sem veittar voru áður
en lög um ábyrgðarmenn tóku gildi.
Í yfirgnæfandi fjölda þeirra mála
hafi ábyrgðir sem veittar voru fyrir
ýmiss konar lánum án greiðslumats
á aðalskuldara talist ósanngjarnar
og þær ógiltar. Þetta var þó ekki
talið eiga við um ábyrgðarmenn
námslána hjá LÍN.
„Sú einkennilega staða kom upp
að LÍN var eini stóri lánveitandinn
sem mátti haga sér með hætti sem
Hæstiréttur var trekk í trekk búinn
að lýsa yfir að væri ósanngjarn í til-
vikum allra annarra lánastofnana,“
segir Daníel. Dómarnir hafi vísað til
samkomulags allra helstu lánastofn-
ana landsins árið 1988 um notkun
sjálfskuldarábyrgða. Daníel furðar
sig á því að samkomulag sem átti að
auka réttarvernd ábyrgðarmanna
og var undirritað af bæði viðskipta-
ráðherra og félagsmálaráðherra hafi
átt við um allar lánastofnanir nema
LÍN sem sé þó opinber stofnun með
félagslegt hlutverk.
Daníel vísar sem dæmi til dóms
Hæstaréttar frá 2015 sem varðaði
námslán sem gengist var í ábyrgð
fyrir áður en lög um ábyrgðarmenn
tóku gildi. Ekki var framkvæmt
greiðslumat á aðalskuldara áður en
ábyrgðin var veitt. Ábyrgðarmaður-
inn í því máli, verkakona á miðjum
aldri sem gengist hafði í ábyrgð fyrir
son sinn, tapaði málinu því þetta
taldist ekki ósanngjarnt að mati
dómstóla. Sams konar ábyrgðir sem
ábyrgðarmenn gengust undir á sama
tíma höfðu aftur á móti talist ósann-
gjarnar og ógildar í tilvikum flestra
annarra lánastofnana landsins.
Í síðasta mánuði féll svo dómur
í Hæstarétti þar sem því var slegið
föstu að ósanngjarnt væri af LÍN
að ganga að ábyrgð fyrir námsláni
eftir að framangreind skilyrði voru
lögfest árið 2009. Í þessu felst ójafn-
ræðið segir Daníel. Það sem töldust
ósanngjarnir viðskiptahættir hjá
öllum lánastofnunum væru að
sjálfsögðu einnig ósanngjarnir við-
skiptahættir hjá LÍN fyrir apríl 2009.
Daníel segir þó aðalatriðið að dóm-
urinn sé mikið gleðiefni enda sé
nú loks ljóst að LÍN beri að stunda
sanngjarna viðskiptahætti eins og
aðrar lánastofnanir. Hann telur að
LÍN hljóti að skoða stöðu ábyrgðar-
manna sem gengust í sambærilegar
ábyrgðir fyrir 4. apríl 2009 og íhuga
að fella niður ábyrgðir þeirra.
Lánasjóðurinn er nú að meta for-
dæmisgildi dómsins sem féll í síð-
asta mánuði. adalheidur@frettabladid.is
Segir Lánasjóðinn komast upp
með ósanngirni umfram aðra
Lánasjóður er nú að meta fordæmisgildi dómsins sem féll í Hæstarétti í síðasta mánuði. FréttabLaðið/GVa
Lögmaður segir
ábyrgðar menn náms-
lána ekki njóta jafn-
ræðis. Þeir hafi þurft að
þola skilmála sem talist
hafi ósanngjarnir hjá
öllum helstu lánastofn-
unum landsins. Þeir
sem gengust í ábyrgð
lána fyrir 2009 njóti nú
lakari réttar en þeir sem
á eftir komu.
Helmingur lánasafns-
ins með ábyrgðum
Með lagabreytingum 2009
var almennt hætt að krefjast
ábyrgðarmanna á námslánum.
Lánasjóðurinn krefst nú ein-
göngu ábyrgðarmanns ef lán-
takandi telst ekki lánshæfur, til
dæmis vegna vanskila.
Í nýjustu ársskýrslu sjóðsins fyrir
árið 2016 kemur fram að í lok
þess árs voru 40.492 lán tryggð
með ábyrgðum og eru þau 53,2
prósent af lánasafni sjóðsins.
3 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 l a u G a r D a G u r4 f r é T T i r ∙ f r é T T a b l a ð i ð
0
3
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:0
5
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
4
6
-2
B
D
0
2
1
4
6
-2
A
9
4
2
1
4
6
-2
9
5
8
2
1
4
6
-2
8
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
1
2
s
_
2
_
1
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K