Fréttablaðið - 03.11.2018, Blaðsíða 74
Um leið er hátíðin
nokkurs konar
þverskurður af íslensku
tónlistarlífi hverju sinni
og hálfgerð uppskeru-
hátíð um leið.
Mikil fjölbreytni og skemmtileg stemning einkennir alltaf andrúms-
loftið á Iceland Airwaves-hátíðinni,
segir Anna Ásthildur, kynningar-
stjóri hjá Senu Live, rekstraraðila
Iceland Airwaves. „Hér er nær
öll tónlistarflóran, frá rólegri
píanótónlist, yfir í dauðarokk og
rapp. Margir erlendir gestir sækja
hátíðina sem setur sinn svip á hana
og miðborgina um leið. Stór partur
af hátíðinni er ekki síst að upp-
lifa eitthvað nýtt, verða hissa og
vera fyrir vikið með opinn hug og
hjarta þegar maður sækir tónleika.
Um leið er hátíðin nokkurs konar
þverskurður af íslensku tónlistarlífi
hverju sinni og hálfgerð uppskeru-
hátíð um leið. Enda leggja flytj-
endur mikið á sig til að skila sem
bestum tónleikum.“
Nýr tónleikastaður
Það er alltaf eitthvað um nýjungar
á Airwaves og hátíðin í ár er engin
undantekning, segir Anna. „Þetta er
tónlistarhátíð sem byggir á ólíkum
tónleikastöðum milli ára. Harpa
hefur til dæmis verið áberandi
undanfarin ár en verður það ekki
í ár. Fyrir vikið erum við svolítið
dottin í sama gamla fílinginn þar
sem gestir rölta milli staða í 101 og
detta inn á hitt og þetta skemmti-
legt.“
Meðal nýjunga í ár er nýr tón-
leikastaður í Airwaves-fjölskyld-
unni. Um er að ræða Skúla Craft
Bar í Aðalstræti og gegnir hann
hlutverki klúbbhúss hátíðarinnar.
„Staðurinn verður einungis opinn
gestum hátíðarinnar og þar verður
meðal annars boðið upp á sértilboð
á mat og drykk og tónleika í sam-
starfi við The Current, útvarpsstöð
frá Minneapolis.“
Sundlaugarpartí og jógatími
Sundlaugarpartí verður haldið í
Sundhöll Reykjavíkur á laugardag-
inn kl. 15-19. „Sundlaugarpartíið
á vafalaust eftir að slá í gegn enda
nýlega búið að endurbæta og
stækka þessa fornfrægu sundlaug.
Þau sem koma fram þar og halda
uppi fjörinu eru DJ Snorri Ástráðs,
Daði Freyr og Bríet.“
Í ár verður í fyrsta sinn boðið upp
á jógatíma sem haldinn er í Iðnó,
á föstudagsmorguninn kl. 6. „Við
ætlum að breyta húsinu í fallega
jógastöð og bjóða upp á góða nánd
Dottin í sama gamla fílinginn
Stór partur af Iceland Airwaves-hátíðinni er að upplifa eitthvað nýtt, verða hissa og vera með op-
inn hug og hjarta þegar tónleikar eru sóttir. Í ár verður boðið upp á ýmsar skemmtilegar nýjungar.
Mikil fjölbreytni og skemmtileg stemning einkennir alltaf andrúmsloftið á
Iceland Airwaves-hátíðinni, segir Anna Ásthildur kynningarstjóri. MYND/EYÞÓR
Skúli Craft Bar er nýr tónleikastaður í Airwaves-fjölskyldunni.
Nokkrar breytingar í ár:
l Allir tónleikar og viðburðir í miðbæ Reykjavíkur.
l Óþarfi að vera á bíl.
l Allt er innifalið í armbandinu.
l Ekki þarf að kaupa sér inn á stóra viðburði.
l Nokkrir vinsælir tónlistarmenn halda tvenna tónleika, t.d. Ólafur
Arnalds, Högni og Eivør.
l Frábær dagskrá sem er hverrar krónu virði.
l Ýmsir afslættir, t.d. hjá Cintamani og völdum veitingastöðum o.fl.
l Aldrei fleiri bönd, tónleikastaðir og pláss fyrir gesti
l Ýmsir sér viðburðir, t.d. sundlaugarpartí, jóga og vínylupptaka með
Ásgeiri Trausta.
Spennandi leikur – vinningar í boði
Tíu heppnir gestir vinna til verðlauna:
l Ef þú átt armband getur þú mætt með það og þetta blað í Ráðhúsið og
þá hefur þú möguleika á vinningum.
l Fyrstu tíu sem mæta á mánudag detta í lukkupottinn!
l Til að eiga möguleika verður þú að kaupa armband um helgina!
l Gjafapakki frá Cintamani.
l Uppfærsla í VIP aðgang!
l Drykkjarpeningur svo hægt sé að njóta.
l Möguleiki á að taka þátt á samfélagsmiðlum ef óskað er.
og öndun, fallega tónlist, dans,
gleði og íhugun. Eftir það breytist
andrúmsloftið heldur betur og fjör
færist í leikinn þar sem stemningin
breytist meira í rave-partí. DJ Mar-
geir og Tómas Oddur sjá um fjörið
hér.“
Sagan rakin í heimildarmynd
„Heimildarmyndin Iceland Air-
waves: Full circle verður frumsýnd á
hátíðinni en þar er saga hátíðarinn-
ar rakin frá því hún var stofnuð sem
lítil hátíð fyrir tveimur áratugum og
til dagsins í dag. Rætt er við marga
aðila sem hafa komið að henni
síðustu 20 árin en myndin verður
sýnd á Marina Hóteli og kostar ekk-
ert inn. Einnig má nefna að í tilefni
20 ára afmælisins verða tónleikar
á Gauknum þar sem nokkur bönd
koma fram sem spiluðu á fyrstu
hátíðinni, til dæmis Toy Machine
og Dead Sea Apple.“
Hátíðargestir geta einnig leigt
jakka frá Cintamani, hlustað á
ótal lagalista á Spotify í tengslum
við hátíðina meðan þeir kynna
sér dagskrána, kort og fleira í nýja
Airwaves-appinu þar sem allt upp-
færist í rauntíma.
„Fyrir einungis 21.900 kr. geta
gestir séð yfir 230 listamenn frá 26
löndum í miðbæ Reykjavíkur og
eru allir tónleikar innifaldir í arm-
bandinu sem auk þess gefur afslátt
á ýmsum veitingastöðum og hjá
Cintamani. Verðið hækkar mánu-
daginn 5. nóvember þannig að ég
vil hvetja sem flesta til að kaupa
armband sem fyrst.“
Reykjavíkurdæturnar
Reykjavíkurdætur
Hvað hlakkið þið mest til að sjá?
Það eru Cyber, Sura, Ragga Holm,
Blood Orange, Special-K, Jimothy
Lacoste og Indridi. Af því að við
elskum þau öll því þau eru annað-
hvort í bandinu okkar eða elsk-
endur þess.
Af hverju elskið þið Airwaves?
Við höfum svo oft spilað á hátíð-
inni og Iceland Airwaves gaf okkur
einstakt og ómetanlegt tækifæri til
að koma okkur á framfæri erlendis.
Við eigum velgengni okkar meðal
annars henni að þakka.
Hvernig er best að njóta hátíðar-
innar í botn?
Fara á sem flesta tónleika og hafa
gaman af. Við hlökkum ekkert smá
til að sjá ykkur öll á Listasafninu
á miðvikudeginum þegar Reykja-
víkurdætur koma fram!
Katla Vigdís
hljómborðsleikari og söngkona
Between Mountains
Hvað hlakkar þú mest til að sjá?
Ég er mest spennt fyrir Eivør
Pálsdóttur en hún er í miklu uppá-
haldi. Síðan er það Aurora og svo
er ég auðvitað mjög spennt að
sjá Rythmatik, þeir eru frábærir
og voru að gefa út geggjaða plötu
nýlega.
Af hverju elskar þú Airwaves?
Ég dýrka Airwaves í tætlur og
stemninguna þar. Hátíðin er líka
svo ótrúlega góður stökkpallur til
þess að kynna músíkina sína.
Hvernig er best að njóta hátíðar-
innar í botn?
Bara að sökkva sér í þetta og vera
með fullt af „mönsi“ sem heldur
manni gangandi yfir daginn.
Drekka sem minnst af vökva til
þess að lágmarka salernisferðir.
Það er ekkert verra en að vera
komin fremst við sviðið og þurfa
síðan að fara á klóið.
Franz Gunnarsson
gítarleikari Dr. Spock
Hvað hlakkar þú mest til að sjá?
Ef ég ætti að nefna nokkur bönd
og tónlistarmenn koma helst upp
í huga minn Vök, Kul, Une Misére,
Soccer Mommy, Warmland, Lisa
Morgernstern, GDRN, Aurora og
Charles Watson. Allt gott stöff.
Af hverju elskar þú Airwaves?
Af því að ég hef verið partur af
hátíðinni frá upphafi og hún hefur
gefið mér svo margar æðisgengnar
upplifanir.
Hvernig er best að njóta hátíðar-
innar í botn?
Ódrukkin/n.
Hverju mæla tónlistarmenn með?
Ragga Hólm. MYND/SIGtRYGGuR ARI Soccer Mommy.
8 ICElAND AIRwAVES 3 . N ÓV E M B E R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
0
3
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:0
5
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
4
6
-8
E
9
0
2
1
4
6
-8
D
5
4
2
1
4
6
-8
C
1
8
2
1
4
6
-8
A
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
1
2
s
_
2
_
1
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K