Fréttablaðið - 03.11.2018, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 03.11.2018, Blaðsíða 8
Bæjarlistamaður Seltjarnarness 2019 Menningarnefnd Seltjarnarness auglýsir eftir umsóknum frá listamönnum búsettum á Seltjarnarnesi eða rökstuddum ábendingum um hver hljóta skuli nafnbótina Bæjarlistamaður Seltjarnarness 2019. Nafnbótinni fylgir starfsstyrkur að upphæð einni milljón króna. Bæjarlistamaður Seltjarnarness skal vera reiðubúinn að vinna með menningarsviði bæjarins að því að efla áhuga á list og listsköpun á Seltjarnarnesi og taka þátt í viðburðum bæjarins með það að leiðarljósi. Umsækjendur og þeir sem senda inn ábendingar eru beðnir um að haga umsóknum í samræmi við reglur um Bæjarlistamann sem finna má á heimasíðu bæjarins www.seltjarnarnes.is. Umsóknir og tilnefningar þurfa að vera rökstuddar. Listamenn láti ítarlegar upplýsingar um náms- og starfsferil sinn fylgja sem og hugmyndir um á hvern hátt nýta eigi styrkinn við listsköpun. Umsóknum og/eða ábendingum skal skilað fyrir 25. nóvember n.k. í gegnum heimasíðu bæjarins (umsóknir/eyðublöð), með tölvupósti á netfangið maria.b.oskarsdottir@seltjarnarnes.is eða bréfleiðis á Bæjarskrifstofur Seltjarnarness, Austurströnd 2, 170 Seltjarnarnesi merkt: „Bæjarlistamaður 2019“. Menningarnefnd Seltjarnarness www.seltjarnarnes.is GRÆNLAND Iðnaðar- og orkumála- ráðherra Grænlands, Aqqalu Jerimi- assen, er um þessar mundir í Kína til að kenna Kínverjum að drekka bráðið jökulvatn. Vegna mikillar mengunar í Kína þamba Kínverjar drykkjarvatn sem tappað hefur verið á flöskur. Grænlenska jökulvatnið er sagt laust við bakteríur þar sem það hefur verið frosið í innlandsísnum í allt að 50 þúsund ár. Það er þess vegna sterílt frá náttúrunnar hendi. Grænlendingar vonast til að stór markaður geti verið fyrir vatnið í Kína. – ibs Kenna Kínverjum að drekka bráðið vatn úr jöklinum Ilulissat-fjörður á Grænlandi. NORDICPHOTOS/AFP FÉLAGSMÁL „Ég hef fundið fyrir gríðar- legum stuðningi úr öllum áttum. Meðal annars frá félögum mínum, öðrum félögum og almenningi,“ segir Heiðveig María Einarsdóttir sem var nýlega rekin úr Sjómannafé- lagi Íslands. Ástæðan fyrir brottvísun Heið- veigar er sú að trúnaðarmannaráð félagsins telur að hún hafi unnið gegn hagsmunum þess. Framferði hennar og árásir á forystuna hafi leitt til þess að sameiningarviðræður Sjó- mannafélags Reykjavíkur við önnur sjómannafélög hafi farið út um þúfur. „Það þarf að kæfa þetta í fæðingu svo þetta verði ekki fordæmisgef- andi. Nú er ég að undirbúa mál fyrir Félagsdómi en ég vona að menn taki sönsum. Miðað við það sem á undan er gengið er ég samt ekki bjartsýn. Það er klárlega kominn tími til að hreinsa til í félaginu og ég er enn vissari um það en áður,“ segir Heiðveig. Hópur félagsmanna í Sjómanna- félagi Reykjavíkur hefur krafist þess að félagsfundur verði haldinn hið fyrsta þar sem þessi mál verði rædd. Má ekki verða fordæmisgefandi Heiðveig María segir tíma til kominn að hreinsa til í Sjómannafélagi Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Heiðveig segist alls ekki af baki dottin. „Ég er sannfærð um að snemma næsta vor munu sjómenn standa sameinað- ir allir sem einn tilbúnari en nokkru sinni fyrr í samningaviðræður. Ég ætla að beita mér áfram af öllu afli til að það verði að veruleika.“ Í gær sendu fjórir verkalýðsleið- togar frá sér yfirlýsingu þar sem þeir fordæma vinnubrögð Sjómannafé- lags Íslands. Aðalsteinn Baldursson, formaður Framsýnar á Húsavík, sem skrifar undir yfirlýsinguna ásamt Sól- veigu Önnu Jónsdóttur, formanni Efl- ingar, Vilhjálmi Birgissyni, formanni Verkalýðsfélags Akraness, og Ragnari Þór Ingólfssyni, formanni VR, segir málið fordæmalaust. „Ég er búinn að vera lengi í þessu og kannast ekki við að þetta hafi gerst áður í íslenskri verkalýðshreyf- ingu. Þarna er verið að reka hana úr félaginu vegna skoðana sem tengjast rekstri félagsins og bókhaldi,“ segir Aðalsteinn. Þá bendir Aðalsteinn á að þar sem Sjómannafélag Íslands hafi klofið sig út úr ASÍ geti Heiðveig ekkert snúið sér með málið. „Ef einhver hinna tæplega fjögur þúsund félagsmanna Framsýnar er ósáttur við okkur, þá getur hann leitað til ASÍ með sín mál. Svo skynja ég að konur séu ekki vinsælar í karla- heimi sjómanna. Þetta er annað dæmið sem ég verð vitni að nýlega um það.“ Í gær barst einnig yfirlýsing frá Sjó- mannafélaginu Jötni í Vestmanna- eyjum en félagið dró sig út úr sam- einingarviðræðum við Sjómannafélag Íslands um miðjan október. Þar segir að það geti ekki talist brottrekstrar- sök að gagnrýna stjórnunarhætti yfirstjórnar stéttarfélags. Þá segir að ásakanir einar og sér hafi ekki leitt til frestunar sameiningarviðræðna heldur hafi fleiri ástæður komið til. Deilur innan Sjómannafélags Íslands séu eingöngu milli aðila þar. sighvatur@frettabladid.is Heiðveig María Einars- dóttir, sem nýlega var rekin úr Sjómannafélagi Íslands, segist enn vissari en áður um að það þurfi að hreinsa til í félaginu. Yfir 100 félagsmenn hafa farið fram á fund til að fara yfir málið. Aðalsteinn Baldursson, formaður Framsýnar á Húsavík, segir málið for- dæmalaust. Nú er ég að undir- búa mál fyrir Félagsdómi en ég vona að menn taki sönsum Heiðveig María Einarsdóttir STJÓRNSÝSLA Samtök iðnaðarins (SI) mótmæla harðlega tillögum um breytta skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands. SI telja að með breytingunni verði málefni íbúða- markaðar áfram munaðarlaus mála- flokkur. Fyrirhuguð breyting felur meðal annars í sér að ráðherra félagsmála verður einnig barnamálaráðherra og þá munu jafnréttismálin fær- ast inn í forsætisráðuneytið. Það sem SI leggst gegn er hins vegar sú fyrirætlan að flytja málefni er varða mannvirki úr umhverfis- og auð- lindaráðuneytinu til félagsmála- ráðuneytisins. Er það gert með þeim rökum að undir það ráðuneyti heyri málefni er varða húsnæðislán, húsa- leigu, fjöleignarhús o.s.frv. „Samtökin hafa bent á að málefni íbúðamarkaðar, þ.m.t. uppbygging íbúðarhúsnæðis og skipulagsmál, séu munaðarlaus málaflokkur í stjórnarráðinu í ljósi þess að hús- næðismál eru á verksviði vel- ferðarráðuneytisins, skipulagsmál og málefni mannvirkja eru á for- ræði umhverfis- og auðlindaráðu- neytisins og málefni sveitarfélaga eru á forræði samgöngu- og sveitar- stjórnar ráðuneytisins,“ segir í umsögn SI. Þá segja samtökin að brýn þörf sé á að auka skilvirkni og einfalda framkvæmd innan málaflokksins en fyrirhuguð breyting sé ekki til þess fallin. Þvert á móti muni hún flækja kerfið. Málefni mannvirkja muni í raun fara úr því að vera jaðarmála- flokkur í einu ráðuneyti yfir í að vera jaðarmálaflokkur í öðru. „Að mati samtakanna ætti að færa húsnæðismál úr velferðarráðuneyti og bygginga- og skipulagsmál úr umhverfis- og auðlindaráðuneyti yfir í samgöngu- og sveitarstjórnar- ráðuneyti þannig að úr verði öflugt innviðaráðuneyti þar sem þessi mikilvægi málaflokkur yrði í heild sinni,“ segir í umsögninni. – jóe Málefni mannvirkja verði áfram munaðarlaus Málefni mannvirkja eru dreifð um stjórnarráðið. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR KÓPAVOGUR Öldungaráð Kópavogs- bæjar samþykkti á fundi sínum í gær tillögu þess efnis að skora eldri borgara sveitarfélagsins á hólm í bocciaknattleik. Bæjarfulltrúi segir að það muni verða á brattann að sækja. „Við búum við eitt blómlegasta íþrótta- og félagsstarf eldri borgara hér í Kópavogi. Í upphafi síðasta kjörtímabils öttum við kappi við bæjarfulltrúa og eldri borgara Garðabæjar í boccia og burstuðum þau. Því vildu þau ekki keppa við okkur aftur,“ segir Birkir Jón Jóns- son, bæjarfulltrúi Framsóknar- flokksins. Því hafi verið ákveðið að koma á nokkurs konar Kópavogsleikum í boccia. Birkir segir að gott sam- starf hafi verið milli bæjarfulltrúa og eldri borgara og markmiðið sé að efla tengsl og jákvæð samskipti. Birkir er sjálfur lunkinn bridsspil- ari en ekki kom til greina að bæta bridsi á dagskrána. „Það er ljóst að það verður við ramman reip að draga í boccia enda hafa eldri borgarar sveitarfélagsins unnið þar frækna sigra. Trúlega þarf bæjarstjórnin að fara í einhverjar æfingabúðir. Þau eru einnig gríðar- lega öflug í brids og við lögðum ekki í þá keppni,“ segir Birkir. Ekki liggur fyrir hvenær kapp- leikurinn fer fram. – jóe Bæjarfulltrúar skelkaðir fyrir bocciaviðureign Frá viðureign Garðabæjar og Kópa- vogs árið 2014. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Vonast er til að stór markaður myndist fyrir jökulvatnið í Kína 3 . N Ó V e M b e R 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R8 F R É T T i R ∙ F R É T T A b L A ð i ð 0 3 -1 1 -2 0 1 8 0 4 :0 5 F B 1 1 2 s _ P 1 0 5 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 1 0 4 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 4 6 -5 3 5 0 2 1 4 6 -5 2 1 4 2 1 4 6 -5 0 D 8 2 1 4 6 -4 F 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 1 1 2 s _ 2 _ 1 1 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.