Fréttablaðið - 03.11.2018, Blaðsíða 53
lllH - Hjartam. lógo - Merking.indd 1 1/15/09 8:18:41 AM
Hjúkrunarfræðingur
Hjartamiðstöðin óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing í
50-60% hlutastarf.
Hjartamiðstöðin er sérfræðilæknisstöð sem sinnir
þverþvaglegri þjónustu við forvarnir, greiningu og meðferð
hjarta-og æðasjúkdóma og sykursýki.
Hjúkrunarfræðingar stöðvarinnar gegna lykilhlutverki í
þessarri þjónustu.
Í umsókn komi fram upplýsingar um menntun, aldur og
fyrri störf.
Reynsla af forvörnum, greiningu og meðferð hjarta-og
æðasjúkdóma er kostur.
Hæfniskröfur:
• Íslenskt hjúkrunarleyfi
• Góðir samskiptahæfileikar og jákvætt viðmót
• Samviskusemi og nákvæm vinnubrögð
• Sveigjanleiki og stundvísi
• Góð tök á íslensku og ensku
Áhugi á forvörnum, greiningu og meðferð hjarta-og æða-
sjúkdóma og sykursýki.
Umsóknir berist til rannveig@hjartamidstodin.is eða
Rannveig Ásgeirsdóttir ritari, Hjartamiðstöðin,
Holtasmára 1, 201 Kópavogur
Umsóknarfrestur er til 15.nóvember 2018.
Ertu góður stjórnandi og með brennandi
áhuga á menningu og fólki?
Við leitum að stjórnanda
í menningarhús okkar í Gerðubergi
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Borgarbókasafnið Gerðubergi er alhliða menningarmiðstöð í Breiðholti. Deildarstjóri þess ber ábyrgð á stjórnun og rekstri
menningarhússins svo sem bókasafni, sýningum, fræðslustarfi, dagskrá og viðburðum ásamt því að eiga gott samtal við
nærsamfélagið í hverfinu.
Deildarstjóri hefur jafnframt yfirumsjón með margvíslegri þjónustu við ytri og innri viðskiptavini Borgarbókasafnsins.
Næsti yfirmaður er borgarbókavörður.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Upplýsingar um starfið gefur Pálína Magnúsdóttir borgarbókavörður, palina.magnusdottir@reykjavik.is, s. 4116125.
Umsóknum skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjendur gera grein fyrir hæfni sinni í starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 19. nóvember n.k. Umsóknir skulu sendar á vef Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf.
Starfssvið:
• Umsjón og ábyrgð á daglegum rekstri
menningarhússins Gerðubergi.
• Stjórnun mannauðs.
• Gerð og eftirfylgni starfs- og fjárhagsáætlunar
fyrir menningarhúsið.
• Þátttaka í að innleiða breyttar áherslur í rekstri og
starfsemi Borgarbókasafnsins með það að markmiði að
efla fagmennsku, styrkja rekstur og auka sýnileika safnsins
gagnvart borgarbúum og gestum.
• Situr í safnráði Borgarbókasafns sem tekur stefnumarkandi
ákvarðanir um starfsemi, rekstur og stefnumótun safnsins.
Hæfniskröfur
• Háskólapróf sem nýtist í starfi. Háskólapróf á
framhaldsstigi er kostur.
• Viðamikil reynsla af starfi á verksviði safnsins.
• Haldbær þekking, reynsla og hæfni á sviði stjórnunar.
• Þekking og/eða reynsla af innleiðingu breytinga.
• Þekking á starfsumhverfi opinberrar stjórnsýslu er kostur.
• Metnaður, frumkvæði, hugmyndaauðgi og sjálfstæði
í starfi.
• Færni og geta til að vinna undir álagi og að sinna
mörgum viðfangsefnum.
• Færni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki.
• Gott vald á íslensku og ensku ásamt hæfni til að tjá sig í
ræðu og riti. Þekking á norðurlandamáli er kostur.
• Nákvæmni, vandvirkni, almenn þekking á tölvunotkun
ásamt áhuga og getu til að tileinka sér nýjungar.
Við leitum að metnaðarfullum og framsæknum stjórnanda til að leiða þjónustusvið Þjóðskrár Íslands. Þjónustusvið er nýtt svið innan
stofnunarinnar sem ber ábyrgð á þjónustuferlum hennar. Undir sviðið heyrir þjónustuver, afgreiðsla, tölvurekstrarþjónusta, miðlun og
aðgengi skráningargagna, tölfræðivinnsla, vöruþróun, almannatengsl fyrir stofnunina ásamt fleiru. Á sviðinu starfa um 25 starfsmenn,
í Reykjavík og á Akureyri. Sviðsstjóri ber ábyrgð á rekstri og stýringu sviðsins ásamt yfirumsjón með samningum við ytri aðila og þróun
þjónustu. Um er að ræða spennandi starf þar sem viðkomandi gefst tækifæri á að þróa og innleiða nýja ferla og bæta vinnulag við
innri og ytri þjónustu Þjóðskrár Íslands.
Sviðsstjóri þjónustusviðs
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun kostur
• Haldgóð reynsla í þjónustustýringu
• Haldgóð þekking á tölvu- og upplýsingatækni kostur
• Að minnsta kosti 3-5 ára haldgóð reynsla af stjórnun með
mannaforráði er skilyrði
• Þekking á ISO 27001 er kostur
• Mikil hæfni í mannlegum samskiptum og góð félagsleg færni
• Góðir skipulagshæfileikar, leiðtogahæfni og drifkraftur í starfi
• Rík þjónustulund, áhugi og metnaður til framúrskarandi
þjónustuveitingar
Helstu verkefni:
• Stefnumótun í þjónustuveitingu stofnunarinnar
• Samstarf við önnur svið stofnunarinnar
• Samskipti við önnur opinber stjórnvöld,
hagsmunaaðila og viðskiptavini
• Mótun nýs sviðs
• Daglegur rekstur, skipulagning og umsjón með
starfsemi þjónustusviðs
Þjóðskrá Íslands hefur tvær starfsstöðvar, á Akureyri og í Reykjavík. Starfið getur verið staðsett á báðum stöðum.
www.skra.is
www.island.is
Hlutverk Þjóðskrár Íslands er að greiða götu fólks og
fyrirtækja í samfélaginu og gæta upplýsinga um réttindi
þeirra og eignir. Við sinnum því með því að safna, varðveita
og miðla upplýsingum um fólk, mannvirki og landeignir.
Innan starfsviðs Þjóðskrár Íslands er rekstur fasteignaskrár og
þjóðskrár, útgefið fasteignamat og brunabótamat, rekstur
island.is og umsjón með útgáfu vegabréfa.
Við leggjum ríka áherslu á jákvæð samskipti og góða
samvinnu sem er undirstaða góðrar þjónustu. Við teljum
eftirsóknarvert að fá til liðs við okkur þá sem vilja starfa í
anda gilda okkar um virðingu, sköpunargleði og áreiðanleika.
ÁREIÐANLEIKIVIRÐING
SKÖPUNARGLEÐI
Um er að ræða fullt starf og laun samkvæmt gildandi kjarasamningi. Umsóknarfrestur er til og með 19. nóvember 2018.
Umsóknum skulu fylgja starfsferilskrár og kynningarbréf. Umsóknir óskast sendar á netfangið starfsumsoknir@skra.is.
Athygli er vakin á því, að umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður
svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar veitir Aðalheiður Sigursveinsdóttir, mannauðsstjóri, netfang as@skra.is
Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um starfið.
Við kunnum vel að meta frumkvæði, nákvæmni og hraða í vinnubrögðum.
Við nýtum aðferðir straumlínustjórnunar til að verða betri í dag en í gær.
0
3
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:0
5
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
4
6
-8
4
B
0
2
1
4
6
-8
3
7
4
2
1
4
6
-8
2
3
8
2
1
4
6
-8
0
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
1
2
s
_
2
_
1
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K