Fréttablaðið - 03.11.2018, Page 53

Fréttablaðið - 03.11.2018, Page 53
lllH - Hjartam. lógo - Merking.indd 1 1/15/09 8:18:41 AM Hjúkrunarfræðingur Hjartamiðstöðin óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing í 50-60% hlutastarf. Hjartamiðstöðin er sérfræðilæknisstöð sem sinnir þverþvaglegri þjónustu við forvarnir, greiningu og meðferð hjarta-og æðasjúkdóma og sykursýki. Hjúkrunarfræðingar stöðvarinnar gegna lykilhlutverki í þessarri þjónustu. Í umsókn komi fram upplýsingar um menntun, aldur og fyrri störf. Reynsla af forvörnum, greiningu og meðferð hjarta-og æðasjúkdóma er kostur. Hæfniskröfur: • Íslenskt hjúkrunarleyfi • Góðir samskiptahæfileikar og jákvætt viðmót • Samviskusemi og nákvæm vinnubrögð • Sveigjanleiki og stundvísi • Góð tök á íslensku og ensku Áhugi á forvörnum, greiningu og meðferð hjarta-og æða- sjúkdóma og sykursýki. Umsóknir berist til rannveig@hjartamidstodin.is eða Rannveig Ásgeirsdóttir ritari, Hjartamiðstöðin, Holtasmára 1, 201 Kópavogur Umsóknarfrestur er til 15.nóvember 2018. Ertu góður stjórnandi og með brennandi áhuga á menningu og fólki? Við leitum að stjórnanda í menningarhús okkar í Gerðubergi Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Borgarbókasafnið Gerðubergi er alhliða menningarmiðstöð í Breiðholti. Deildarstjóri þess ber ábyrgð á stjórnun og rekstri menningarhússins svo sem bókasafni, sýningum, fræðslustarfi, dagskrá og viðburðum ásamt því að eiga gott samtal við nærsamfélagið í hverfinu. Deildarstjóri hefur jafnframt yfirumsjón með margvíslegri þjónustu við ytri og innri viðskiptavini Borgarbókasafnsins. Næsti yfirmaður er borgarbókavörður. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Upplýsingar um starfið gefur Pálína Magnúsdóttir borgarbókavörður, palina.magnusdottir@reykjavik.is, s. 4116125. Umsóknum skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjendur gera grein fyrir hæfni sinni í starfið. Umsóknarfrestur er til og með 19. nóvember n.k. Umsóknir skulu sendar á vef Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf. Starfssvið: • Umsjón og ábyrgð á daglegum rekstri menningarhússins Gerðubergi. • Stjórnun mannauðs. • Gerð og eftirfylgni starfs- og fjárhagsáætlunar fyrir menningarhúsið. • Þátttaka í að innleiða breyttar áherslur í rekstri og starfsemi Borgarbókasafnsins með það að markmiði að efla fagmennsku, styrkja rekstur og auka sýnileika safnsins gagnvart borgarbúum og gestum. • Situr í safnráði Borgarbókasafns sem tekur stefnumarkandi ákvarðanir um starfsemi, rekstur og stefnumótun safnsins. Hæfniskröfur • Háskólapróf sem nýtist í starfi. Háskólapróf á framhaldsstigi er kostur. • Viðamikil reynsla af starfi á verksviði safnsins. • Haldbær þekking, reynsla og hæfni á sviði stjórnunar. • Þekking og/eða reynsla af innleiðingu breytinga. • Þekking á starfsumhverfi opinberrar stjórnsýslu er kostur. • Metnaður, frumkvæði, hugmyndaauðgi og sjálfstæði í starfi. • Færni og geta til að vinna undir álagi og að sinna mörgum viðfangsefnum. • Færni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki. • Gott vald á íslensku og ensku ásamt hæfni til að tjá sig í ræðu og riti. Þekking á norðurlandamáli er kostur. • Nákvæmni, vandvirkni, almenn þekking á tölvunotkun ásamt áhuga og getu til að tileinka sér nýjungar. Við leitum að metnaðarfullum og framsæknum stjórnanda til að leiða þjónustusvið Þjóðskrár Íslands. Þjónustusvið er nýtt svið innan stofnunarinnar sem ber ábyrgð á þjónustuferlum hennar. Undir sviðið heyrir þjónustuver, afgreiðsla, tölvurekstrarþjónusta, miðlun og aðgengi skráningargagna, tölfræðivinnsla, vöruþróun, almannatengsl fyrir stofnunina ásamt fleiru. Á sviðinu starfa um 25 starfsmenn, í Reykjavík og á Akureyri. Sviðsstjóri ber ábyrgð á rekstri og stýringu sviðsins ásamt yfirumsjón með samningum við ytri aðila og þróun þjónustu. Um er að ræða spennandi starf þar sem viðkomandi gefst tækifæri á að þróa og innleiða nýja ferla og bæta vinnulag við innri og ytri þjónustu Þjóðskrár Íslands. Sviðsstjóri þjónustusviðs Hæfniskröfur: • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun kostur • Haldgóð reynsla í þjónustustýringu • Haldgóð þekking á tölvu- og upplýsingatækni kostur • Að minnsta kosti 3-5 ára haldgóð reynsla af stjórnun með mannaforráði er skilyrði • Þekking á ISO 27001 er kostur • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum og góð félagsleg færni • Góðir skipulagshæfileikar, leiðtogahæfni og drifkraftur í starfi • Rík þjónustulund, áhugi og metnaður til framúrskarandi þjónustuveitingar Helstu verkefni: • Stefnumótun í þjónustuveitingu stofnunarinnar • Samstarf við önnur svið stofnunarinnar • Samskipti við önnur opinber stjórnvöld, hagsmunaaðila og viðskiptavini • Mótun nýs sviðs • Daglegur rekstur, skipulagning og umsjón með starfsemi þjónustusviðs Þjóðskrá Íslands hefur tvær starfsstöðvar, á Akureyri og í Reykjavík. Starfið getur verið staðsett á báðum stöðum. www.skra.is www.island.is Hlutverk Þjóðskrár Íslands er að greiða götu fólks og fyrirtækja í samfélaginu og gæta upplýsinga um réttindi þeirra og eignir. Við sinnum því með því að safna, varðveita og miðla upplýsingum um fólk, mannvirki og landeignir. Innan starfsviðs Þjóðskrár Íslands er rekstur fasteignaskrár og þjóðskrár, útgefið fasteignamat og brunabótamat, rekstur island.is og umsjón með útgáfu vegabréfa. Við leggjum ríka áherslu á jákvæð samskipti og góða samvinnu sem er undirstaða góðrar þjónustu. Við teljum eftirsóknarvert að fá til liðs við okkur þá sem vilja starfa í anda gilda okkar um virðingu, sköpunargleði og áreiðanleika. ÁREIÐANLEIKIVIRÐING SKÖPUNARGLEÐI Um er að ræða fullt starf og laun samkvæmt gildandi kjarasamningi. Umsóknarfrestur er til og með 19. nóvember 2018. Umsóknum skulu fylgja starfsferilskrár og kynningarbréf. Umsóknir óskast sendar á netfangið starfsumsoknir@skra.is. Athygli er vakin á því, að umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar veitir Aðalheiður Sigursveinsdóttir, mannauðsstjóri, netfang as@skra.is Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um starfið. Við kunnum vel að meta frumkvæði, nákvæmni og hraða í vinnubrögðum. Við nýtum aðferðir straumlínustjórnunar til að verða betri í dag en í gær. 0 3 -1 1 -2 0 1 8 0 4 :0 5 F B 1 1 2 s _ P 0 6 5 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 4 6 -8 4 B 0 2 1 4 6 -8 3 7 4 2 1 4 6 -8 2 3 8 2 1 4 6 -8 0 F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 1 1 2 s _ 2 _ 1 1 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.