Fréttablaðið - 03.11.2018, Side 10

Fréttablaðið - 03.11.2018, Side 10
Við látum framtíðina rætast. HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum www.volkswagen.is Touareg Offroad. 3.0 TDI V6. Verð 9.290.000 kr. T- Roc. Fjórhjóladrifinn og sjálfskiptur. Verð 4.590.00 kr. Fjórhjóladrifna fjölskyldan. Tiguan Offroad. Fjórhjóladrifinn og sjálfskiptur. Verð 5.790.000 kr. Tilboðsverð 4.990.000 kr. Tiguan Allspace. 7 manna og rúmgóður. Verð 7.635.000 kr. Tilboðsverð 6.990.000 kr. Í f lokki stærri jeppa Í f lokki jepplinga Í f lokki minni jeppa Í f lokki jepplinga Sádi-ArAbíA Lík sádiarabíska blaða- mannsins Jamals Khashoggi var leyst upp í sýru eftir að hann var kyrktur og svo sundurlimaður á ræðisskrifstofu Sádi-Arabíu í tyrk- nesku borginni Istanbúl í upphafi síðasta mánaðar. Þetta höfðu tyrkneskir fjölmiðlar eftir Yasin Aktay, ráðgjafa tyrkneska forsetans Receps Tayyip Erdogan, í gær. Aktay sagði að þetta væri það eina hugsanlega í stöðunni þar sem lík Khashoggis hefur ekki enn fund- ist. „Ástæðan fyrir því að lík Khas- hoggis var sundurlimað var sú að það auðveldaði þeim að leysa líkið upp. Nú höfum við sem sagt komist að því að þeir sundurlimuðu hann ekki bara heldur leystu líkið upp,“ sagði Aktay. Tyrkneskir miðlar greindu sömu- leiðis frá því í gær að Mohammed bin Salman krónprins hafi sagt í símtali við bandaríska embættis- menn, áður en Sádi-Arabar játuðu að þeirra menn hefðu framið ódæðisverkið, að Khashoggi væri hættulegur íslamisti og meðlimur Bræðralags múslima, róttækra sam- taka íslamista. Símtalið var á milli prinsins og þeirra Johns Bolton þjóðaröryggisráðgjafa og Jareds Kushner, ráðgjafa og tengdasonar forseta. Það á að hafa átt sér stað þann 9. október, viku eftir hvarf Khashoggis. New York Times greindi frá því að vinir Khashoggis segðu að hann hefði gengið til liðs við Bræðralag múslima á sínum yngri árum. Hann hafi hins vegar ekki verið virkur meðlimur lengi. Þessu neitaði fjölskylda Khas- hoggis í orðsendingu til Washington Post og sagði reyndar að blaðamað- urinn hefði sjálfur ítrekað neitað þessum staðhæfingum á meðan hann lifði. Mohammed bin Salman hefur áður verið sakaður um að annað- hvort fyrirskipa morðið eða líta fram hjá því. Opinbera skýringin frá Sádi-Arabíu er sú að hópur manna hafi lagt á ráðin um að myrða Khas- hoggi og svo framið verknaðinn í óþökk stjórnvalda. Khashoggi var þekktur stjórnarandstæðingur og hafði ítrekað beint spjótum sínum að Mohammed prins. Í síðasta pistli sínum fyrir Washington Post, sem birtist eftir andlát Khashoggis, sagði hann að rík þörf væri á auknu tján- ingarfrelsi í Arabaheiminum, til að mynda í Sádi-Arabíu, og gagnrýndi harðar aðgerðir gegn stjórnarand- stæðingum.  Í viðtali við Fréttablaðið um síð- ustu helgi sögðu tveir sádiarabískir stjórnarandstæðingar í útlegð að þeir óttuðust að prinsinn myndi grípa til frekari aðgerða gegn stjórn- arandstæðingum og sögðu prinsinn jafnframt verri en einræðis herra á borð við Saddam Hussein og Muammar Gaddafi. Í blaðinu í dag er svo rætt við stofnanda sádiarabískrar hljóm- sveitar sem segir Mohammed með gullmedalíu í harðstjórn en dauða- refsing er við bæði tónlist og textum sveitarinnar. Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði frá því í fyrri- nótt að enn væru nokkrar vikur í að viðskiptaþvinganir gegn Sádi- Aröbum vegna máls Khashoggis myndu líta dagsins ljós. Morðið hefur komið illa niður á áratuga- gömlu vinasambandi ríkjanna og er þrýstingur á Trump forseta að grípa til aðgerða gegn þessum banda- mönnum sínum. Sagður hættulegur íslamisti og líkið leyst  upp í sýru Blaðamaðurinn Jamal Khashoggi var meðlim- ur Bræðralags múslima og hættulegur íslamisti að því er krónprins Sádi-Arabíu sagði við bandaríska embættis- menn. Ráðgjafi forseta Tyrklands sagði frá því að Khashoggi hefði verið leystur upp í sýru en lík hans hefur ekki fundist. Enn vikur í þvinganir af hálfu Bandaríkjanna gegn morðingjunum. 3 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r d A G U r10 f r é t t i r ∙ f r é t t A b L A ð i ð 0 3 -1 1 -2 0 1 8 0 4 :0 5 F B 1 1 2 s _ P 1 0 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 1 0 3 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 4 6 -4 E 6 0 2 1 4 6 -4 D 2 4 2 1 4 6 -4 B E 8 2 1 4 6 -4 A A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 1 1 2 s _ 2 _ 1 1 _ 2 0 1 8 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.