Breiðfirðingur - 01.04.1983, Blaðsíða 101
BREIÐFIRÐINGUR
99
einn gluggi, með sex rúðum, af svipaðri stærð og glugg-
inn uppi á stafninum. Stofan var máluð ljósblá. Utidyr
voru á vesturhlið stofunnar í horninu við milliþilið, með
þili að utan, rauðmáluðu. Þær dyr voru opnaðar aðeins
þá, er embættismenn heimsóttu prófast. Þessar dyr voru
strax teknar af, eftir að prófastur ljet af umsjá
Hvamms. Fram-af gestastofunni var svefnherbergi í
tveim stafgólfum af líkri stærð og stofan; var það með
tveimur gestarúmum. A vesturhlið þess var einn gluggi
með átta rúðum á norðara stafgólfinu. Var því fremur
skuggsýnt í því stafgólfinu, sem nær var stofunni, en í
því voru bæði rúmin. Aður er þess getið, að inngangur
í bæinn hafi verið gegnum vesturhliðvegginn. Voru
bæjardyrnar því víðáttumiklar, allt plássið undir dyra-
loftinu, og náðu frá svefnherberginu að skálanum, eða
voru nálægt sex álnir að lengd. Af þessum bæjardyrum
ljet sjera Steinn Steinsen, sem var prestur í Hvammi frá
1870 til 1881, þilja herbergi, sem kallað var kontor.
Beint inn-af bæjardyrunum var gangur, sem genginn
var inn til búrs og eldhúss. Bæði þau hús stóðu að
austan-verðu (hlíðar-megin) við baðstofuhúsin, og snjeru
frá norðri til suðurs. Búrið var í norðurenda bakbygg-
ingarinnar, en eldhúsið í suðurenda. Gólfflötur þessara
húsa var talsvert hærri en baðstofubyggingarinnar. Þess
vegna voru nokkrar tröppur frá bæjardyrunum upp
ganginn til búrs og eldhúss. Utbygging var í gegnum
hliðarvegginn, gegnt ganginum, til búrs og eldhúss, og
þar hafði prófastsfrúin matargeymslu sína. Eftir að hún
flutti frá Hvammi, var þessi kofi notaður fyrir eldivið-
argeymslu og annað, eftir því, sem á stóð eða með
þurfti. Gluggar voru á þökum húsa, og báru þeir óljósa
birtu. Malkvörn stóð við búrdyrnar í ganginum.
Mjótt sund var í millum norðurgafls bæjarins (skál-
ans) og skemmanna, sem allar (þrjár) stóðu hver við
annarar hlið og snjeru stöfnum til vesturs. Þær voru
kallaðar heimaskemma, mið- eða mó-skemma og frúar-