Fréttablaðið - 23.11.2018, Blaðsíða 4
Veður
Austlæg eða breytileg átt 3-8 m/s,
og léttir smám saman til í dag, en
skýjað og stöku skúrir með S- og SV-
ströndinni. sjá síðu 48
Átak fyrir eldvarnir
Eldvarnaátak Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) hófst í Lækjarskóla í Hafnarfirði í gærmorgun í samvinnu við Slökkvi-
liðið á höfuðborgarsvæðinu. Nemendur fylgdust spenntir með slökkviliðsmanni slökkva þennan ógnvænlega eld sem á myndinni sést. Samkvæmt
könnun sem Gallup gerði fyrr í mánuðinum býr fólk á aldrinum 25 til 34 ára við mun lakari eldvarnir en aðrir aldurshópar. Fréttablaðið/Eyþór
GRILL OG GARÐHÚSGÖGN SEM ENDAST
Opið virka daga 11-18
Laugardag 11-16
Sunnudag 13-16 Grillbúðin
Smiðjuvegi 2, Kópavogi - (við hliðina á Bónus) - Sími 554 0400
grillbudin.is
af öllum vörum
www.grillbudin.is
föstudag, laugardag og sunnudag
Grill, jólaljós, svalahitarar
útiljós, aukahlutir, reykofnar,
yfirbreiðslur, garðhúsgögn,
kjöthitamælar, ljós á grill,
reykbox, varahlutir o.fl. o.fl.
30%
afsláttur
dómsmál Hjón á níræðisaldri hafa
stefnt Kópavogsbæ og krefjast þess
að bærinn kaupi af þeim svokall-
aðan Oddfellowblett í landi Gunn-
arshólma.
Fram kemur í stefnu Sigurðar G.
Guðjónssonar lögmanns fyrir hönd
hjónanna Eddu Gunnarsdóttur og
Konráðs Adolphssonar í Reykjavík
að þau hafi eignast Oddfellowblett-
inn með afsali frá Miklabæ ehf. í
september 2016. Landið afmarkist
að norðanverðu af Suðurlandsvegi,
að austan af Heiðmerkurvegi, að
sunnan af lækjarfarvegi sem gangi
út í Hólmsá og að vestan af Hólmsá.
Félagið Miklibær – sem reyndar
er í eigu Konráðs sjálfs – þáverandi
eigandi Oddfellowblettsins, krafðist
þess fyrir úrskurðarnefnd umhverf-
is- og auðlindamála í maí 2016 að
ákvörðun bæjarstjórnar Kópavogs-
bæjar frá því í apríl sama ár um
að synja um heimild til að vinna
deiliskipulag fyrir landið yrði ógilt.
Óskað hafði verið eftir leyfi fyrir 400
fermetra íbúðarhúsi og 200 fermetra
hesthúsi. Í október 2017 hafnaði
úrskurðarnefndin því að ógilda
synjun Kópavogsbæjar.
Í byrjun apríl á þessu ári sendu
hjónin Kópavogsbæ bréf og kröfð-
ust þess með vísan í niðurstöðu
úrskurðarnefndarinnar að bærinn
keypti af þeim Oddfellowblettinn
gegn greiðslu fulls verðs. Um er að
ræða 4,6 hektara lands. Bréfinu var
ekki svarað að því er segir í stefnu
lögmanns hjónanna og ítrekuðu
þau þá erindi sitt með bréfi 7. októ-
ber síðastliðinn.
„Forsvarsmenn stefnda [Kópa-
vogsbæjar] hafa ekki sýnt stefn-
endum [hjónunum] þá sjálfsögðu
kurteisi að svara bréfi þessu,“ segir í
stefnunni. Hjónunum sé því nauð-
ugur sá kostur að höfða mál til að fá
skorið úr um réttindi sín til að nýta
land sitt með sama hætti og aðrir
landeigendur.
Í stefnunni segir að Kópavogsbær
hafi brotið 72. grein stjórnarskrár-
innar sem fjallar um friðhelgi eign-
arréttar. „Við slíkar aðstæður verður
skerðing eignarréttar að byggja á
lögum og greiða þarf fyrir hana fullu
verði,“ segir lögmaðurinn.
Að auki er bærinn sagður hafa
brotið 65. grein stjórnarskrárinnar
með því að mismuna hjónunum og
landeigendum í Gunnarshólma og
Vatnsenda sem fengið hafi að bæta
við mannvirkjum. Ekkert í aðal-
skipulagi ætti að koma í veg fyrir að
veita hjónunum umbeðið leyfi og
ekki væri brotið gegn almannahags-
munum með byggingunum.
Stefna hjónanna var lögð fram til
kynningar í bæjarráði Kópavogs í
gær. Málið verður þingfest 28. nóv-
ember fyrir Héraðsdómi Reykja-
ness. gar@frettabladid.is
Krefjast þess að bærinn
kaupi Oddfellowblett
Hjón krefjast þess að Kópavogsbær kaupi af þeim svokallaðan Oddfellowblett
og greiði fyrir það „fullt verð“. Lögmaður hjónanna segir í stefnu að bærinn hafi
brotið tvær greinar stjórnarskrárinnar á þeim og beri því skylda til að kaupa.
Hestafólkið og hjónin Konráð adolphsson og Edda Gunnarsdóttir fengu ekki
að byggja íbúðarhús og hesthús á Oddfellowblettnum. Fréttablaðið/StEFán
Forsvarsmenn
stefnda [Kópavogs-
bæjar] hafa ekki sýnt stefn-
endum [hjónunum] þá
sjálfsögðu kurteisi að svara
bréfi þessu.
Úr stefnu eigenda
Oddfellowblettsins.
samfélagsmiðlar Margir kannast
við að vera fullmikið á netinu. Til
dæmis er hægt að verja óhemjutíma
á Facebook og týna sér þannig.
Ef maður opnar Facebook-appið
í snjallsíma, smellir á stillingar efst í
hægra horninu, flettir niður og velur
Settings & Privacy og svo Your Time
on Facebook má sjá hversu miklum
tíma maður ver í appinu.
Blaðamaður skoðaði sitt yfir-
lit fyrir síðustu sjö daga og komst
að því að hann var ekki nema um
þrjár mínútur á dag á Facebook í
símanum. Sú skoðun leiddi í ljós að
tölfræðin nær eingöngu til appsins
enda væri talan mun hærri ef tími á
Facebook í tölvu væri tekinn með.
Neðar í sömu valmynd má kveikja
á áminningum þegar maður hefur
verið lengur á Facebook en maður
ætlaði sér og breyta stillingum um
tilkynningar ef maður vill draga úr
notkun. – þea
Sjáðu hve mikið þú notar Facebook
Facebook sýnir þér nú notkun þína. nOrdicpHOtOS/GEtty
alÞiNgi Formenn Samfylkingar,
Pírata, Viðreisnar og Flokks fólksins
hafa lagt fram rökstudda dagskrártil-
lögu þar sem lagt er til að 2. umræða
um veiðigjöld verði tekin af dagskrá.
Í rökstuðningnum segir að ekk-
ert samráð hafi verið haft við þá
sem starfi í greininni eða stjórnar-
andstöðu. Þá ríki ógagnsæi um þær
forsendur sem tillögurnar byggi á.
Formennirnir leggja til að málinu
verði vísað frá og gengið út frá því að
gildandi lög verið framlengd.
Til vara leggja formenn Samfylk-
ingar, Pírata og Viðreisnar til eigin
breytingartillögur við frumvarpið.
Er þar meðal annars lagt til að afla-
heimildum handhafa verði skipt
upp í 20 jafna hluta sem verði tíma-
bundnir. Sá fyrsti gildi í eitt ár, sá
næsti í tvö og svo koll af kolli. Þeim
fimm prósentum sem losna á hverju
ári verði svo endurúthlutað til 20 ára
frá og með 1. janúar 2020. – sar
Vilja veiðigjöld
af dagskrá þings
2 3 . N ó v e m b e r 2 0 1 8 f Ö s T u d a g u r2 f r é T T i r ∙ f r é T T a b l a ð i ð
2
3
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:5
2
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
7
C
-E
C
2
4
2
1
7
C
-E
A
E
8
2
1
7
C
-E
9
A
C
2
1
7
C
-E
8
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
9
6
s
_
2
2
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K