Fréttablaðið - 23.11.2018, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 23.11.2018, Blaðsíða 72
V ið Dóra Steinunn Ármannsdóttir hitt-umst í Hörpu, rétt fyrir óperuæfingu hjá henni. Ég heyri strax að hún hefur söngkonurödd og söngkonuhlátur. Hún gjörþekkir líka óperuna um Hans og Grétu sem hún er að fara að taka þátt í. „Ég söng hlutverk Hans í Sydney í Ástralíu og var áður búin að syngja það í Vínarborg þar sem ég var í námi í þrjú ár. En mér finnst norn- in skemmtilegri. Það er gaman að prófa að vera vonda kerlingin,“ segir hún og hlær. „Röddin mín þykknaði aðeins eftir að ég eignaðist dóttur mína fyrir tveimur árum, nú er ég dramatískur mezzosópran. Það er góð rödd fyrir norn.“ Búningarnir flottastir hér Fjórar sýningar eru fyrirhugaðar á Hans og Grétu, sú fyrsta á sunnu- daginn klukkan 15. Verkið er krefj- andi, að sögn Dóru Steinunnar. „Svolítið Wagner-skotið en þó enn melódískara á köflum, dúettinn þeirra Hans og Grétu er einstaklega fallegur. Flestir þekkja lagið Það búa litlir dvergar. Það er úr þessari óperu.“ Hún útilokar ekki að litlir krakkar geti orðið pínu smeykir við nornina „En ég held ég verði líka svolítið fyndin norn,“ segir hún og brosir breitt. Sýningin er í Norðurljósasalnum þar sem sætin eru upphækkuð þannig að gestir horfa niður á sviðið. „Hans og Gréta er falleg fjölskyldusýning, segir Dóra Stein- unn. „Ég hef sungið í henni á þýsku, ensku og nú íslensku. Uppsetningin er svipuð þeim sem ég hef tekið þátt í áður. Það hefur verið ævintýra- bragur á þeim öllum en mér finnst búningarnir flottastir hér.“ Öðlaðist nýja sýn á lífið Dóra Steinunn býr í Noregi, rétt fyrir utan Ósló í bæ sem heitir Ski. „Ég og maðurinn minn, Eiríkur Jóhann Gunnarsson, fluttum til Sydney í Ástralíu rétt eftir hrunið hér, þar bjuggum við í fjögur ár og það var ágætt en svo vildum við færa okkur aðeins nær ættingjunum og Noregur varð fyrir valinu. Þar höfum við búið í fimm ár. Ég er sjálf- stætt starfandi söngkona og stunda líka nám í geislafræði, er á þriðja ári. Tók þvílíka U-beygju. Það er gaman að læra eitthvað nýtt en söngurinn er miklu skemmtilegri.“ Það er söngurinn sem hefur fylgt Dóru Steinunni frá barnsaldri því áður en hún hóf nám í Söngskól- ann í Reykjavík var hún eitt af Jóns- börnum Stefánssonar í Langholts- kirkju. „Ég var í forskóla hjá Jóni og meðal stofnenda Graduale Nobili kórsins. Síðar fór ég til Vínarborgar í óperudeildina, svo hingað heim og þá kynntist ég manninum mínum. Hann er yndislegur og við eigum dótturina Victoríu Írisi saman.“ Hún kveðst hafa fengið endur- nýjaðan kraft í sönginn eftir að hún eignaðist dótturina. „Ég var dálítið búin að missa trúna á sjálfa mig en svo fékk ég hana aftur. Ég var næstum dáin í fæðingunni, missti fjóra lítra af blóði og það tók einn og hálfan tíma að stoppa blæðinguna, á meðan var dóttir mín öll blá og full af vökva. Eiríkur var viðstaddur og þetta var erfitt fyrir hann. Við erum mjög þakklát fyrir lífið í dag og ég fór að syngja meira aftur af innlifun. Dóttirin gaf mér nýtt líf.“ Dóra Steinunn er Reykvíkingur og hefur notið þess að vera á „hótel mömmu“ undanfarið. „Ég brá mér líka til Vestmannaeyja því systir mín býr þar og bróðir minn sem býr í Glasgow er staddur hér núna, svo ég hef upplifað endurfundi. En ég er búin að vera án manns og dóttur í fimm vikur og sakna þeirra. Þau fljúga hingað heim á sunnudaginn, Eiríkur mætir á frumsýninguna og foreldrar hans sem hafa verið að hjálpa honum með dóttur okkar í fjarveru minni. Hún er hins vegar aðeins of ung til að halda út sýn- inguna og verður í pössun hjá vin- konu.“ Held ég verði líka svolítið fyndin norn Hér takast systkinin í skóginum, Hans og Gréta, á um kústinn. Arnheiður Eiríksdóttir er í hlutverki Hans og Jóna Kolbrúnardóttir í hlutverki Grétu. FréttABlAðið/SiGtryGGur Ari Dóra Steinunn hlakkar til glímunnar við nornina. FréttABlAðið/Anton BrinK Aðstandendur sýningarinnar Þýðing: Þorsteinn Gylfason og Reynir Axelsson Hljómsveitarstjóri: Bjarni Frímann Bjarnason leikstjóri: Þórunn Sigþórsdóttir leikmyndarhönnður: Eva Signý Berger Búningahönnuður: María Th. Ólafsdóttir ljósahönnuður: Jóhann Friðrik Ágústsson Flytjendur Hans: Arnheiður Eiríksdóttir Gréta: Jóna Kolbrúnardóttir Móðirin: Hildigunnur Einars- dóttir Faðirinn: Oddur A. Jónsson nornin: Dóra Steinunn Ármanns- dóttir Óli lokbrá: Kristín Einarsdóttir Mäntylä Gradualekór langholtskirkju Hljómsveit Íslensku óperunnar Ævintýraóperan Hans og Gréta eftir tónskáldið Engel- bert Humperdinck (1854-1921) verður flutt í íslenskri þýðingu í Norður- ljósasal Hörpu á sunnudaginn. Dóra Steinunn Ármanns- dóttir kom frá Noregi til að leika nornina. Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is 2 3 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 F Ö S T U D A G U r54 m e n n i n G ∙ F r É T T A b L A ð i ð 2 3 -1 1 -2 0 1 8 0 4 :5 2 F B 0 9 6 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 7 D -0 4 D 4 2 1 7 D -0 3 9 8 2 1 7 D -0 2 5 C 2 1 7 D -0 1 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 9 6 s _ 2 2 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.