Fréttablaðið - 23.11.2018, Síða 72
V ið Dóra Steinunn Ármannsdóttir hitt-umst í Hörpu, rétt fyrir óperuæfingu hjá henni. Ég heyri strax að hún hefur
söngkonurödd og söngkonuhlátur.
Hún gjörþekkir líka óperuna um
Hans og Grétu sem hún er að fara
að taka þátt í.
„Ég söng hlutverk Hans í Sydney í
Ástralíu og var áður búin að syngja
það í Vínarborg þar sem ég var í
námi í þrjú ár. En mér finnst norn-
in skemmtilegri. Það er gaman að
prófa að vera vonda kerlingin,“ segir
hún og hlær. „Röddin mín þykknaði
aðeins eftir að ég eignaðist dóttur
mína fyrir tveimur árum, nú er ég
dramatískur mezzosópran. Það er
góð rödd fyrir norn.“
Búningarnir flottastir hér
Fjórar sýningar eru fyrirhugaðar á
Hans og Grétu, sú fyrsta á sunnu-
daginn klukkan 15. Verkið er krefj-
andi, að sögn Dóru Steinunnar.
„Svolítið Wagner-skotið en þó enn
melódískara á köflum, dúettinn
þeirra Hans og Grétu er einstaklega
fallegur. Flestir þekkja lagið Það
búa litlir dvergar. Það er úr þessari
óperu.“ Hún útilokar ekki að litlir
krakkar geti orðið pínu smeykir við
nornina „En ég held ég verði líka
svolítið fyndin norn,“ segir hún og
brosir breitt.
Sýningin er í Norðurljósasalnum
þar sem sætin eru upphækkuð
þannig að gestir horfa niður á
sviðið. „Hans og Gréta er falleg
fjölskyldusýning, segir Dóra Stein-
unn. „Ég hef sungið í henni á þýsku,
ensku og nú íslensku. Uppsetningin
er svipuð þeim sem ég hef tekið þátt
í áður. Það hefur verið ævintýra-
bragur á þeim öllum en mér finnst
búningarnir flottastir hér.“
Öðlaðist nýja sýn á lífið
Dóra Steinunn býr í Noregi, rétt
fyrir utan Ósló í bæ sem heitir Ski.
„Ég og maðurinn minn, Eiríkur
Jóhann Gunnarsson, fluttum til
Sydney í Ástralíu rétt eftir hrunið
hér, þar bjuggum við í fjögur ár og
það var ágætt en svo vildum við
færa okkur aðeins nær ættingjunum
og Noregur varð fyrir valinu. Þar
höfum við búið í fimm ár. Ég er sjálf-
stætt starfandi söngkona og stunda
líka nám í geislafræði, er á þriðja ári.
Tók þvílíka U-beygju. Það er gaman
að læra eitthvað nýtt en söngurinn
er miklu skemmtilegri.“
Það er söngurinn sem hefur fylgt
Dóru Steinunni frá barnsaldri því
áður en hún hóf nám í Söngskól-
ann í Reykjavík var hún eitt af Jóns-
börnum Stefánssonar í Langholts-
kirkju. „Ég var í forskóla hjá Jóni og
meðal stofnenda Graduale Nobili
kórsins. Síðar fór ég til Vínarborgar
í óperudeildina, svo hingað heim og
þá kynntist ég manninum mínum.
Hann er yndislegur og við eigum
dótturina Victoríu Írisi saman.“
Hún kveðst hafa fengið endur-
nýjaðan kraft í sönginn eftir að hún
eignaðist dótturina. „Ég var dálítið
búin að missa trúna á sjálfa mig
en svo fékk ég hana aftur. Ég var
næstum dáin í fæðingunni, missti
fjóra lítra af blóði og það tók einn og
hálfan tíma að stoppa blæðinguna,
á meðan var dóttir mín öll blá og
full af vökva. Eiríkur var viðstaddur
og þetta var erfitt fyrir hann. Við
erum mjög þakklát fyrir lífið í dag
og ég fór að syngja meira aftur af
innlifun. Dóttirin gaf mér nýtt líf.“
Dóra Steinunn er Reykvíkingur
og hefur notið þess að vera á „hótel
mömmu“ undanfarið. „Ég brá mér
líka til Vestmannaeyja því systir mín
býr þar og bróðir minn sem býr í
Glasgow er staddur hér núna, svo
ég hef upplifað endurfundi. En ég
er búin að vera án manns og dóttur
í fimm vikur og sakna þeirra. Þau
fljúga hingað heim á sunnudaginn,
Eiríkur mætir á frumsýninguna og
foreldrar hans sem hafa verið að
hjálpa honum með dóttur okkar í
fjarveru minni. Hún er hins vegar
aðeins of ung til að halda út sýn-
inguna og verður í pössun hjá vin-
konu.“
Held ég verði líka svolítið fyndin norn
Hér takast systkinin í skóginum, Hans og Gréta, á um kústinn. Arnheiður Eiríksdóttir er í hlutverki Hans og Jóna Kolbrúnardóttir í hlutverki Grétu. FréttABlAðið/SiGtryGGur Ari
Dóra Steinunn hlakkar til glímunnar við nornina. FréttABlAðið/Anton BrinK
Aðstandendur
sýningarinnar
Þýðing: Þorsteinn Gylfason og
Reynir Axelsson
Hljómsveitarstjóri: Bjarni
Frímann Bjarnason
leikstjóri: Þórunn Sigþórsdóttir
leikmyndarhönnður: Eva Signý
Berger
Búningahönnuður: María Th.
Ólafsdóttir
ljósahönnuður: Jóhann Friðrik
Ágústsson
Flytjendur
Hans: Arnheiður Eiríksdóttir
Gréta: Jóna Kolbrúnardóttir
Móðirin: Hildigunnur Einars-
dóttir
Faðirinn: Oddur A. Jónsson
nornin: Dóra Steinunn Ármanns-
dóttir
Óli lokbrá: Kristín Einarsdóttir
Mäntylä
Gradualekór langholtskirkju
Hljómsveit Íslensku óperunnar
Ævintýraóperan
Hans og Gréta eftir
tónskáldið Engel-
bert Humperdinck
(1854-1921) verður
flutt í íslenskri
þýðingu í Norður-
ljósasal Hörpu á
sunnudaginn. Dóra
Steinunn Ármanns-
dóttir kom frá
Noregi til að leika
nornina.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
2 3 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 F Ö S T U D A G U r54 m e n n i n G ∙ F r É T T A b L A ð i ð
2
3
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:5
2
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
7
D
-0
4
D
4
2
1
7
D
-0
3
9
8
2
1
7
D
-0
2
5
C
2
1
7
D
-0
1
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
9
6
s
_
2
2
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K