Fréttablaðið - 23.11.2018, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 23.11.2018, Blaðsíða 12
Svartur föstuda gur 25% afsláttur af sn yrti-, húðvörum og jólagjafakössum35% afsláttur apotekid.isGarðatorg Hólagarður Skeifan Akureyri SetbergSpöngin 35% afsláttur af So laray bætiefnum Gildir aðeins 23. nóvember í verslunum Apóteksins. ✿ Landvinningar Ratcliffes og Jóhannesar Ratcliffe sólarsalir ehf. f2171124 100% f2171128 100% f2172603 100% f2171169 100% f2167465 91,6% f2167483 100% f2167486 100% f2171452 100% f2171469 100% f2167671 100% GrænaþinG f2171180 20% f2171701 42,8% f2171114 50% hámundar- staðir ehf. f2171134 00% Grenisalir ehf. f2166947 100% f2166965 33,3% f2166973 100% Veiðiklúbbur- inn strenGur f2170930 66,7% f2170943 50% f2171076 50% f2171132 100% f2171256 100% f2171355 100% Dylan Holding selárdalur ehf. f2171315 50% f2171524 100% f2171546 87,5% heGraþinG f2170936 100% f2170991 100% f2171014 100% f2171123 88,1% f2168023 100% f2171241 48,7% f2167620 100% aðaldalur ehf. f2163801 100% f2164654 20% f2164667 100% f2320610 100% laxárdalur ehf. f2163749 100% lómaþinG ehf. f2171262 100% f2171278 100% GóuþinG ehf. f2170696 26,2% f2170742 17,5% Akureyri Mývatn Húsavík Raufarhöfn Bakkafjörður JaRðakaup Íbúar skiptast í fylkingar á Vopnafirði um hvort þeir vilji að útlendingar safni til sín jörðum í sveitarfélagi sem búi yfir veiði- hlunnindum. Nú er svo komið að á fimmta tug jarða eru í eigu tveggja félaga. Annars vegar Halcilla Ltd. í eigu James Ratcliffe, og Dylan Hold- ing, sem ekki er að fullu vitað hver á en Jóhannes Kristinsson hefur farið fyrir langflestum eignum félagsins. Sveitarstjórinn, Þór Steinarsson, segir það auðvitað skrýtið að heilu dalirnir séu í eigu sama aðilans. „Mönnum þykir auðvitað skrýtið að hafa getað veitt í sömu ánni næstum allt sitt líf en nú sé það bara þannig að aðeins vinir Ratcliffes fái að veiða í ánni og ekki einu sinni hægt að kaupa leyfi. Þetta hefur auðvitað heyrst og menn gagnrýna þetta þannig,“ segir Þór. „En það eru einnig aðrir sem eru jákvæðir og sjá að það sé þá hægt að fá eitthvað fyrir jarðir sem áður voru verðlitlar.“ Oddviti Vopnafjarðarhrepps, Sig- ríður Bragadóttir, hefur sjálf selt jörð sína, Síreksstaði, til James Ratcliffe. „Í sjálfu sér er það bæði gott og vont að útlendingar eignist jarðir hér á landi,“ segir Sigríður „Það er ekki ný bóla að útlendingar kaupi hér jarðir og hótel og annað slíkt. Það hefur gerst í áratugi. Hér í Vopnafirði hafa þeir til að mynda keypt eyðijarðir og jarðir sem enn er búið á. Síðan á eftir að koma í ljós hvaða áhrif þetta kann að hafa á samfélagið.“ Íbúar vilja að Ratcliffe byggi sundlaug Oddviti sveitarstjórnar Vopnafjarðarhrepps seldi jörð sína til breska auðkýfingsins James Ratcliffe. Bæjarbúar vilja að auðkýfingurinn geri eitthvað fyrir sveitarfélagið. Oddvitinn sér ekkert að því. Íbúar á Vopnafirði eru klofnir í afstöðu sinni til jarðakaupa Ratcliffes. Mönnum þykir auðvitað skrýtið að hafa getað veitt í sömu ánni næstum allt sitt líf en nú sé það bara þannig að aðeins vinir Ratcliffes fái að veiða. Þór Steinarsson, sveitarstjóri á Vopnafirði Jarðakaup James Ratcliffe á Norð- austurlandi snúast ekki aðeins um eignarhald á jörðum eða veiðirétt- indum. Umræðan hefur upp á síð- kastið einnig snúist um sundlaug. Sumir hverjir hafa sagt að það sé allt í lagi að stóreignamaður eign- ist jarðir ef hann komi með eitt- hvað til baka til samfélagsins. Bent hefur verið á að engin sundlaug sé í bænum og vilja sumir því fá sund- laug. Sigríður kannast vel við þessa umræðu. „Mér finnst ekkert að því að menn, sem eiga svona mikil ítök á staðnum, séu tilbúnir til að leggja hönd á plóg við eitthvað. Þetta hefur verið rætt og fólk er að ræða. Það er ekkert að því að þessir menn kæmu og bæru ábyrgð. Þessar jarðir eru í eigu hlutafélaga sem greiða ekki útsvar. Því koma engir skattar nema bara fasteignaskattar,“ segir oddviti hreppsins. sveinn@frettabladid.is Fleiri jarðir í sigtinu Vopnafjarðarhreppur er eigandi að einni jörð sem liggur að Hofsá og á veiðihlunnindi að ánni. Sú jörð heitir Þorbrandsstaðir og komst í eigu sveitarfélagsins fyrir nokkrum árum. Sveitarfélagið hefur haft vitneskju um að James Ratcliffe og/eða Jóhannes Krist- insson séu tilbúnir til að kaupa jörðina á dágóðan skilding. Þarna hafa íbúar einnig séð að hægt væri að nýta ágóða af sölu jarðar- innar til þess að byggja téða sundlaug í plássinu. Þeir íbúar sem Fréttablaðið talaði við í gær segja að gömlu Vopnfirðingarnir yrðu vafalítið afar ósáttir við að jörðin yrði seld þar sem hreppurinn hafi fengið jörðina gegn því loforði að hún yrði ekki seld úr sveitarfélaginu. Komi tilboð í jörðina er talið líklegt að íbúar fái að koma að málinu í beinni kosningu um hvort jörðin skuli seld eða ekki. 2 3 . n ó v e m b e R 2 0 1 8 F Ö S T u D a G u R10 F R é T T i R ∙ F R é T T a b L a ð i ð 2 3 -1 1 -2 0 1 8 0 4 :5 2 F B 0 9 6 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 8 5 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 7 D -2 2 7 4 2 1 7 D -2 1 3 8 2 1 7 D -1 F F C 2 1 7 D -1 E C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 9 A F B 0 9 6 s _ 2 2 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.